8. fundur Hafnarnefndar Norðurþings, 13. júlí, kl. 15:00 í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík.
Fundarmenn
Jón Grímsson
Egill Aðalgeir Bjarnason
Þráinn Gunnarsson
Hilmar Dúi Björgvinsson
Bergur Elías Ágústsson, Hafnarstjóri ritaði fundargerð.
Dagskrá fundar.
•1. N1. Ósk um leyfi fyrir olíuafgreiðslu á flotbryggju 2007060018
Hafnarnefnd Norðurþings samþykkir bráðabirgðaleyfi fyrir olíuafgreiðslu á flotbryggju til 31. september 2007. Að þeim tíma loknum fer hafnarstjórn fram á að búnaðurinn verði fjarlægður og mun ekki veita leyfi til olíuafgreiðslu á flotbryggjunni að þeim tíma loknum.
•2. Bréf frá Hafnasambandi Íslands varðandi skerðingar á aflaheimildum á þorski. 2007070023
Hafnarnefnd Norðurþings tekur heilshugar undir ályktun stjórnar Hafnasambands Íslands frá 21. júní sl., sem er á þá leið að ríkisvaldið láti skoða sérstaklega hvernig vega megi gegn neikvæðum áhrifum aflaskerðingar á þau byggðalög og hafnir sem verst sett eru.
•3. Tilboð í verkið „Húsavík, Bökugarður - þekja, lagnir og raforkuvirki". 2006030003
Hafnarnefnd samþykkir að ganga til samninga við Norðurvík ehf. sem átti lægsta tilboðið í verkið, að upphæð 57.074.505.- krónur. Hafnarnefnd felur Hafnarstjóra undirritun samninga við Norðurvík ehf.
•4. Opnun útboða á timbri vegna Suðurgarðs. 2007070024
Hafnarnefnd samþykkir tilboð Mest ehf. í efni timburbryggju á Húsavík að upphæð 13.500.000.- krónur og felur hafnarstjóra að tilkynna þessa ákvörðun til Siglingastofnunar.
•5. Opnun útboða á festingum í nýsmíði og endurbyggingu timburbryggju. 2007070024
Hafnarnefnd samþykkir tilboð EP - Verk ehf. í festingaefni fyrir endurnýjun trébryggju við Suðurgarð á Húsavík og felur hafnarstjóra að tilkynna þessa ákvörðun til Siglingastofnunar.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 15:57.
Jón Grímsson (sign. )
Egill Aðalgeir Bjarnason (sign. )
Þráinn Gunnarsson (sign. )
Hilmar Dúi Björgvinsson (sign. )



