FUNDARGERÐ HAFNARSTJÓRNAR
3. apríl 2007
Árið 2007, þriðjudaginn 3. apríl, kom Hafnarstjórn Norðurþings saman til fundar á sveitarstjórnarskrifstofunni á Húsavík og hófst fundur kl. 1600.
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, formaður
Hilmar Þór Guðmundsson
Þráinn Gunnarsson
Trausti Aðalsteinsson
Stefán Stefánsson hafnarvörður
Gaukur Hjartarson hafnarstjóri ritaði fundargerð.
Fundargerð er rituð í tölvu blaðsíður 11-12.
Jón Helgi setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
•1. Reynir GK 177 - staða mála
Hafnarstjóri kynnti tölvupóst frá skiptastjóra þrotabús Sveins Lárusar Ólafssonar þar sem hann gerir grein fyrir að lögmenn veðréttarhafa og sjóveðréttarhafar hafi líst því yfir f.h. sinna umbjóðenda að þeir samþykki að bátnum verði fargað. Jafnframt er gerð grein fyrir því að þrotabúið hafi ekki möguleika á þátttöku í förgunarkostnaði. Höfninni býðst því að taka við bátnum til förgunar.
Hafnarstjórn leggur til við sveitarstjórn að sveitarfélagið taki við bátnum til förgunar. Kostnaði við förgun verði mætt við endurskoðun fjárhagsáætlunar. Áður en tekið verði við bátnum liggi fyrir veðbókarvottorð sem sýni að báturinn sé veðbandalaus.
•2. Athugasemdir við gjaldtöku
Hafnarstjóri kynnti umkvörtun Saltkaupa ehf vegna fjárhæðar vigtunargjalda hjá höfninni.
Hafnarstjórn sér sér ekki fært að veita afslátt frá gildandi gjaldskrá.
•3. Stóriðjuhöfn
Hafnarstjóri kynnti stöðu mála við hönnun stóriðjuhafnar við s.k. Snásugarð og veg frá hafnarsvæði að stóriðjusvæði að Bakka. Kynntar voru tvær tillögur að legu Snásugarðs, merktar tillögur C og D. Jafnframt voru kynntar 4 tillögur að vegtengingum milli hafnarsvæðis og Bakka.
Hafnarstjórn telur útfærslu D heppilegri en C fyrir staðsetningu Snásugarðs. Jafnframt telur hafnarstjórn veglínu D þjóna best hagsmunum hafnarinnar og íbúðabyggðarinnar.
•4. Bökugarður - fyrirhugað útboð
Unnið er að gerð útboðsgagna fyrir þekjusteypu Bökugarðs hjá Siglingastofnun. Reiknað er með útboði í lok apríl eða byrjun maí.
•5. Endurbætur Suðurgarðs - fyrirhugað útboð
Siglingastofnun vinnur að hönnun og gerð útboðsgagna vegna endurbóta Suðugarðs. Óskað verður eftir tilboðum í efni um miðjan apríl í samhengi við aðrar líkar framkvæmdir í umsjón Siglingastofnunar. Á þessu stigi er miðað við að efni komi í ágúst. Stefnt er að útboði framkvæmdanna sjálfra í júní.
•6. Hafnarvernd í höfnum Norðurþings
Hafnarvörður kynnti sjónarmið sín varðandi hafnarvernd í höfnum Norðurþings og lagði fram greinargerð þar að lútandi.
•7. Bréf frá Tjörnesi ehf varðandi verbúðaleigu
Hafnarstjóri kynnti bréf frá Olgeiri Sigurðssyni f.h. Tjörness ehf.
Hafnarstjórn sér sér ekki fært að veita afslátt frá samþykktri gjaldskrá fyrir leigu verbúða. Hafnarstjóra falið að svara bréfi Olgeirs og gefa honum frest til 1. júní til að rýma húsnæðið vilji hann ekki ganga að þeim kjörum sem í boði eru.
•8. Erindi frá Fiskistofu
Með bréfi dags. 29. mars 2007 óskar Fiskistofa umsagnar Húsavíkurhafnar varðandi endurvigtunarleyfi fyrir Fiskmarkað Húsavíkur ehf, kt. 620302-2280.
Hafnarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindi Fiskmarkaðs Húsavíkur.
Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 1800.
Jón Helgi Björnsson
Hilmar Þór Guðmundsson
Þráinn Gunnarsson
Trausti Aðalsteinsson
Stefán Stefánsson
Gaukur Hjartarson



