FUNDARGERÐ HAFNARSTJÓRNAR
3. apríl 2007
Árið 2007, þriðjudaginn 29. maí, kom Hafnarstjórn Norðurþings saman til fundar á sveitarstjórnarskrifstofunni á Húsavík og hófst fundur kl. 1600.
Fundinn sátu:
Jón Helgi Björnsson, formaður
Hilmar Þór Guðmundsson
Þráinn Gunnarsson
Trausti Aðalsteinsson
Stefán Stefánsson hafnarvörður
Gaukur Hjartarson hafnarstjóri ritaði fundargerð.
Fundargerð er rituð í tölvu blaðsíður 13-14.
Jón Helgi setti fund og bauð fundarmenn velkomna.
•1. Útboð endurbóta Suðurgarðs
Tilboð í harðvið til endurbóta Suðurgarðs verða opnuð 5.6. Útboð framkvæmdanna fylgja í kjölfarið. Reiknað er með að efni komi í ágúst og þá verði hægt að hefjast handa við verkið.
•2. Útboð frágangs þekju á Bökugarði
Fulltrúar Siglingastofnunar skoðuðu aðstæður í síðustu viku og vinna að hönnun þekjusteypu og gerð útboðsgagna. Nú er gert ráð fyrir útboði um miðjan júní og að verkið hefjist í ágúst.
•3. Rekstur hafna Norðurþings 2006
Fyrir liggur ársreikningur hafna Norðurþings fyrir árið 2006. Reikningurinn er nokkuð frábrugðinn ársreikningum fyrri ára og samanburður því nokkuð snúinn. Ársreikningurinn nú er tvískiptur. Rekstrartekjur og rekstrargjöld Húsvíkurhafnar reiknast fyrir allt árið. Fyrir Raufarhafnarhöfn og Kópaskershöfn er hinsvegar reiknað fyrir tímabilið frá 11.06 til ársloka.
Helstu niðurstöður eru eftirfarandi:
Rekstrartekjur: 36,6 m. króna
Rekstrargjöld: 62,7 m. króna
Rekstrartap f. fjármagnsliði 26,1 m. króna
Fjármagnsliðir: -71,9 m. króna
Tap ársins: 98,0 m. króna
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir rekstri einstakra deilda og skýrði frávik frá samþykktri fjárhagsáætlun.
Rekstur hafna Norðurþings er verulega þungur. Ljóst er að tekjur Húsavíkurhafnar skertust mikið við lokun Kísiliðjunnar í Mývatnssveit eða um rúm 35%. Einnig hafa útgerðarhættir og minni vöruflutningar sjóleiðis leitt til tekjutaps. Þessar staðreyndir undirstrika mikilvægi þess að auka flutninga um höfnina til að nýta betur þau mannvirki sem þegar hafa verið byggð. Til þess að svo verði telur hafnarstjórn mikilvægt að stóriðja rísi við Bakka og að stjórnvöld komi að nauðsynlegum endurbótum hafnarinnar nú sem áður.
Trausti situr hjá við þessa bókun.
•4. Verbúðir - staða mála við útleigu
Formaður gerði grein fyrir viðræðum sínum við leigjendur verbúða. Hann leggur til að Tjörnesi ehf verði boðið að leigja hálfa verbúð.
Hafnarstjórn fellst á tillöguna og felur hafnarverði að auglýsa lausar verbúðir til leigu.
•5. Erindi frá Norðursiglingu
Óskað er eftir eftir leyfi til að færa "Vitann" á verbúðarþakinu um 7 metra til austurs.
Hafnarstjórn samþykkir erindið.
•6. Erindi frá Fjarðaflugi ehf
Óskað er eftir leyfi til að setja niður söluskála á verbúðarþaki.
Hafnarstjórn fellst ekki á að reist verði annað hús á þaki verbúðar og erindinu er því hafnað.
•7. Vigt við Húsavíkurhöfn
Stefán gerði grein fyrir að vinna yrði við viðhald á vigtinni við Húsavíkurhöfn. Viðhaldið er óhjákvæmilegt. Hann telur jafnframt að setja þurfi hliðgrindur við báða enda til að loka vigtinni fyrir almennri umferð.
Fleira ekki bókað og fundi slitið kl. 1800.
Jón Helgi Björnsson
Hilmar Þór Guðmundsson
Þráinn Gunnarsson
Trausti Aðalsteinsson
Stefán Stefánsson
Gaukur Hjartarson



