
Húsavík er fjölmennasti byggðarkjarninn í Norðurþingi, en þar búa rúmlega 2.200 manns. Byggðin stendur við austanverðan Skjálfanda og eru aðalatvinnuvegir; sjósókn, fiskverkun, ýmis opinber þjónusta, margskonar þjónustuiðnaður, landbúnaður og þjónusta við ferðamenn.
Hvalaskoðunarferðir frá Húsavík eru löngu þekktar hérlendis sem og víðast annars staðar í heiminum og kemur fjöldi íslenskra og erlendra ferðamanna til Húsavíkur gagngert til að skoða hvali. Vinsældir þessara skoðunarferða hefur orðið til þess, að bærinn er nú kallaður: „Hvalahöfuðborg heimsins”.
Stutt er í eina af þekktustu laxveiðiám landsins, Laxá í Aðaldal, en einnig býðst veiði í vötnum og öðrum ám í nágrenninu. Fjölmargir áhugaverðir staðir eru í nágrenni Húsavíkur og má t.d. nefna Tjörnes, þar finna má skeljar í berglögum vel fyrir ofan sjávarmál. Skammt er til Mývatns, Kelduhverfis, Jökulsárgljúfra og annnarra áhugaverðra staða frá Húsavík.
Örnefnið Húsavík er talið vera eitt hið elsta á Íslandi. Í Landnámabók (Sturlubók) segir frá
Garðari Svavarssyni, sænskum víkingi, sem sigldi til landsins og umhverfis það og uppgötvaði að það var eyja.
Nefndi hann landið Garðarshólma. Garðar hafði vetursetu á Húsavík, byggði sér hús og af því er nafnið talið
dregið. Þegar Garðar sigldi burt, vorið eftir, sleit frá honum bát sem á voru maður nefndur Náttfari, ásamt þræl og ambátt.
Þingeyingar hafa löngum litið á Náttfara sem fyrsta landnámsmanninn og því fögnuðu þeir 11 alda afmæli Íslandsbyggðar
árið 1970, fjórum árum fyrr en flestir aðrir landsmenn.
Gamli Húsavíkurhreppur, á 19. öld, samanstóð af þeim sveitarfélögum sem seinna urðu Tjörneshreppur, Reykjahreppur og
Húsavíkurhreppur, en það var árið 1912 sem kauptúnið var gert að sérstökum hreppi. Kaupstaðarréttindi hlaut
Húsavík 1. janúar 1950.
Húsavík varð snemma kirkjustaður og kirkja talin hafa verið reist þegar á 12. öld.
Húsavíkurkirkja sem nú stendur, teiknuð af Rögnvaldi
Ólafssyni arkitekt, var vígð sumarið 1907 og rúmaði þá flesta þorpsbúa. Kirkjan stendur miðsvæðis og
er fallegt og virðulegt tákn fyrir bæinn.
Jarðhiti er mikill í landi Húsavíkur og næsta nágrenni og ýmsir framtíðarmöguleikar fólgnir í nýtingu hans.
Jarðhiti hefur þó lengi verið nýttur m.a. til ylræktar á grænmeti og blómplöntum í gróðurhúsum á
Hveravöllum í Reykjahverfi en þaðan var einnig lögð hitaveita til
Húsavík árið 1970. Yfirhiti á vatni úr Reykjahverfi er notaður til rafmagnsframleiðslu í orkustöð á Kaldbaksleiti sem tekin var
í notkun í júlí árið 2000.
Mikil og ört vaxandi þjónusta er við ferðamenn sem koma margir í tengslum við hvalaskoðunarferðir á Skjalfandaflóa, en Húsavík er þekkt, utan- og innanlands, sem miðstöð hvalaskoðunar. Hvalamiðstöðin er á hafnarsvæðinu og býður upp á athyglisverða sýningu um hvali sem dregið hefur að fjölda ferðamanna.
Hið íslenska reðasafn á Húsavík er væntanlega hið eina sinnar tegundar í heiminum, þar sem saman hefur verið safnað reðum af allri spendýrafánu eins lands. Forvitnilegt safn sem gaman er að skoða.
Safnahúsið á Húsavík er menningarmiðstöð Þingeyinga, sem
hýsir hluta af Byggðasafni Suður-Þingeyinga, sjóminjasafn, sem var opnað árið 2002, náttúrugripasafn, héraðsskjalasafn,
ljósamyndasafn og myndlistarsafn. Í húsinu er sýningarsalur þar sem myndlistamenn sýna verk sín. Þar er einnig til húsa Bókasafnið á Húsavík sem býður fjölþætta
þjónustu, m.a. aðgang að Internetinu.
Á Húsavík eru reknar ýmsar almennar þjónustustofnanir svo sem: Leikskólinn Grænuvellir, Borgarhólsskóli, Framhaldsskólinn á Húsavík, Þekkingarnet Þingeyinga, Sundlaug Húsavíkur og
Íþróttahöllin.
Íþróttafélagið Völsungur gegnir veigamiklu hlutverki í skipulagi og uppbyggingu
íþróttastarfs fyrir íþróttaiðkendur í bænum.
Menningarlíf hefur lengi verið blómlegt á Húsavík og í sýslunni allri. Leikfélag Húsavíkur stendur í fremstu röð áhugaleikfélaga í landinu.
Tónlistarlíf er fjölbreytt, tónleikahald, kórar og hljómsveitir krydda menningarlífið. Tónlistarskólinn starfar í nánum tengslum við grunnskólann og er aðsókn að skólanum mjög góð.
Aðal starfsstöð Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga er á Húsavík. Þrjú meginsvið eru í starfseminni: Heilsugæsla í Suður-Þingeyjarsýslu, Heilsugæsla í Norður-Þingeyjarsýslu og Sjúkrahús á Húsavík.
Skammt fyrir
ofan Húsavík er Botnsvatn. Þangað sækir fólk til að njóta útivistar, en góð gönguleið liggur kringum
vatnið. Þar er hægt að renna fyrir silung án endurgjalds. Úr Botnsvatni rennur Búðará í gegnum Húsavík miðja. Við
ána hefur verið ræktaður fallegur skrúðgarður. Mikið hefur verið gróðursett af trjáplöntum í bæjarlandinu
síðustu áratugi.
Húsavíkurfjall er 417 metra hátt. Þangað liggur akvegur og á toppnum er hringsjá sem sýnir nöfn fjalla og fjarlægðir til þeirra.



