Þorpið Kópasker stendur á vesturströnd Melrakkasléttu og er eini þéttbýliskjarninn í Öxarfirði. Þorpið fór að byggjast eftir 1910 og byggir tilvist sína að mestu leiti á þjónustu við landbúnaðinn í nágrannsveitunum. Íbúar þar eru um 120 talsins.
Þorpið Kópasker sækir nafn sitt til skers er fyrrum gekk út í sjóinn og núverandi hafnargarður stendur á. Fyrsta íbúðarhúsið á Kópaskeri, Bakka, reisti Árni Ingimundarson frá Brekku árið 1912. Húsið brann um áramótin 1988-1989, en þar má sjá minningarskjöld um húsið. Bakkafjölskyldan var stór og setti svip sinn á þorpið.

Kópasker (Kópaskersvogur) varð löggiltur verslunarstaður 1879. Kaupfélag Norður-Þingeyinga (KNÞ) var stofnað 1894 og hóf uppbyggingu fyrir starfsemi sína á staðnum. Fyrsta verslunarhúsið var byggt 1908 en brann 1943. Nýtt verslunarhús var byggt 1944-45 og þar var auk verslunarinnar, skrifstofuaðstaða félagsins. Í viðbyggingu við verslunarhúsið rak kaupfélagið hótel til margar ára en eftir að Kaupfélagið hætti starfsemi 1989 var hótelið rekið af einstaklingum um nokkurra ára skeið. Kaupfélagshúsið er myndarleg bygging og fallega hönnuð. Þar er nú stjórnsýsluhús Norðurþings, bankaþjónusta og pósthús.
Á Kópaskeri er bifreiðaverkstæðið Röndin, vöruafgreiðsla flutningabíla, starfsstöð RARIK, ýmiss verktakastarfsemi og önnur þjónusta.
Dagvöruverslunin Búðin er í viðbygginu gamla kaupfélagshússins og býður upp á flestar þær vörur sem heimilin þarfnast dags daglega.
Alltaf hefur verið róið til fiskjar frá Kópaskeri, enda örstutt á fengsæl fiskimið. Þá eru grásleppuveiðar stundaðar frá staðnum.
Hitaveita er á Kópaskeri og vatnið leitt þangað úr borholu í Öxarfirði.
Heilsugæsla er á staðnum með héraðslækni sem hefur haft þar aðsetur í tugi ára. Stóra-Mörk nefnist nýleg félagsmiðstöð fyrir aldraða í sveitarfélaginu, þar sem boðið er upp á ýmsar tómstundir alla virka daga auk hádegisverðar. Barnaskóli sveitarinnar var áður í Núpasveitarskóla við Snartarstaði en flutti í nýtt húsnæði á Kópaskeri 1978. Nú hefur kennslu þar verið hætt og börnin sækja nám við Öxarfjarðarskóla í Lundi.
Í barnaskólahúsinu er starfrækt Skjálftasetið þar sem ferðamenn geta fræðst um þær miklu jarðhræringar sem dundu á héraðinu 1975 og 1976 og enduðu með stóra Kópaskersskjálftanum 13. janúar 1976. Mikið tjón varð af þessum skjálftum, einkum á húsum og öðrum mannvirkjum.
Sem fyrr segir sá Kaupfélag Norður- Þingeyinga um slátrun og afurðasölu fyrir bændur en eftir daga þess var stofnað félagið Fjallalamb sem er myndarleg og vel þekkt afurðastöð. Er aðsetur Fjallalambs á Röndinni, sjávarkambi suður af þorpinu, þar sem einnig er að finna merkar jarðfræðiminjar, m.a. setlög með steingervingum.
Núverandi flugvöllur svæðisins er upp af Grímshöfninni þar sem Kópaskersviti stendur. Flugvöllurinn er með tveimur flugbrautum. Um margra ára skeið var haldið uppi áætlunarflugi til Kópaskers, fyrst af Flugfélagi Íslands og síðar af öðrum aðilum. Ágæt aðstaða er fyrir ferðafólk; gisting og tjaldstæði.