Menningar- og fræðslunefnd

Menningar- og fræðslunefnd   39. fundur menningar- og fræðslunefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 14. desember 2010 og

Menningar- og fræðslunefnd

 

39. fundur menningar- og fræðslunefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 14. desember 2010 og hófst hann kl. 15:30


Fundinn sátu:
Soffía Helgadóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Olga Gísladóttir, Huld Hafliðadóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Sigurður Aðalgeirsson,

Fundargerð ritaði:  Huld Aðalbjarnardóttir, Menningar- og fræðslufulltrúi

 

Dagskrá:

1.  201012038 - Skólaskýrsla Sambands Íslenskra sveitarfélaga
 Lagt fram til kynningar.
   
2.  201012039 - Björgunarsveitin Núpar - varðandi þorrablót á Kópaskeri
 Menningar- og fræðslunefnd sér sér ekki fært að verða við erindinu þar sem þorrablót í sveitarfélaginu heyra ekki undir nefndina en sjálfsagt að nýta heimasíðu sveitarfélagsins til að auglýsa eftir áhugasömum framkvæmdaraðilum.
   
3.  201012041 - PISA niðurstöður fyrir Ísland
 Lagt fram til kynningar.
   
4.  201012042 - Aðalnámskrá grunnskóla - inngangskafli - frestur til athugasemda.
 Lagt fram til kynningar.
   
5.  201012043 - Umsókn um leikskólapláss og akstursstyrk vegna barna í Grímstungu.
 Menningar- og fræðlsunefnd samþykkir að greiða fyrir leikskólapláss í Mývatnssveit. En nefndin sér sér ekki fært að verða við ósk um akstursstyrk vegna aksturs barna til og frá leikskóla.
   
6.  201002049 - Mærudagar / sænskir dagar 2010
 Menningar- og fræðslunefnd óskar eftir því við Byggðarráð að veita aukafjárveitingu að upphæð kr. 186.900,- vegna Mærudaga 2010.
   
7.  201012044 - Fjárhagsáætlun Grunnskóla Raufarhafnar
 Mætt voru í fjarfundi Jóhann Skagfjörð Magnússon skólastjóri, Þóra Soffía Gylfadóttir fulltrúi starfsmanna og Einar Sigurðsson fulltrúi foreldra.
 
Skólastjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Grunnskóla Raufarhafnar fyrir árið 2011.
 
Fulltrúar Grunnskóla Raufarhafnar viku af fundi kl. 15:40
   
8.  201012040 - Reglur um inntöku barna á leikskóla í Norðurþingi - erindi frá Kristjönu Lilju Einarsdóttur
 Mætt var Kristjana Lilja Einarsdóttir.
 
Menningar- og fræðslunefnd tók vel í erindið og felur Menningar- og fræðslufulltrúa að vinna málið áfram.
 
Kristjana vék af fundi kl. 16:05
   
9.  201012044 - Fjárhagsáætlun Grænuvalla
 Mættar voru Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir skólastjóri og Lilja Sigurðardóttir fulltrúi starfsfólks.
 
Skólastjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Grænuvalla fyrir árið 2011.
 
Fulltrúar Grænuvalla viku af fundi kl. 16:20
   
10.  201012044 - Fjárhagsáætlun Borgarhólsskóla
 Mætt voru Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skólastjóri, Sólveig Mikaelsdóttir og Kolbrún Ada Gunnarsdóttir fulltrúar kennara og Snæbjörn Sigurðarson fulltrúi foreldra.
 
Skólastjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Borgarhólsskóla fyrir árið 2011.
 
Fulltrúar Borgarhólsskóla viku af fundi kl. 16:50
 
 
 
   
11.  201012044 - Fjárhagsáætlun Öxarfjarðarskóla
 Mætt voru Guðrún S. Kristjánsdóttir skólastjóri, Vigdís Sigvarðardóttir fulltrúi kennara og Guðríður Baldvinsdóttir fulltrúi foreldra.
 
Skólastjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Öxarfjarðarskóla fyrir árið 2011.
 
Fulltrúar Öxarfjarðarskóla viku af fundi kl. 17:10
   
12.  201012044 - Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Húsavíkur
 Mætt voru Árni Sigurbjarnarson skólastjóri og Adrienne Davis fulltrúi kennara.
 
Skólastjóri gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Húsavíkur fyrir árið 2011.
 
Fulltrúar Tónlistarskóla Húsavíkur viku af fundi kl. 17:25.
   
13.  201012044 - Fjárhagsáætlun Bókasafns Húsavíkur
 Mætt var Eyrún Tryggvadóttir forstöðumaður Bókasafns Húsavíkur.
 
Forstöðumaður gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Bókasafns Húsavíkur fyrir árið 2011.
 
Eyrún vék af fundi kl. 17:50
   
14.  201012044 - Fjárhagsáætlun Bókasafns Raufarhafnar
 Menningar- og fræðslufulltrúi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Bóksafns Raufarhafnar fyrir árið 2011.
   
15.  201012044 - Fjárhagsáætlun Bókasafns Öxarfjarðar
 Menningar- og fræðslufulltrúi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun Bóksafns Öxarfjarðar fyrir árið 2011.
   
16.  201012045 - Hafralækjarskóli fjárhagsáætlun 2011
 Lagt fram til kynningar.
   
17.  201012044 - Fjárhagsáætlun Skólaþjónustu Norðurþings
 Sigurður Aðalgeirsson grunnskólafulltrúi gerði grein fyrir fjárhagsáætlun skólaþjónustu Norðurþings fyrir árið 2011.
   
18.  201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
 Menningar- og fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að skiptingu útgjaldaramma á stofnanir og málaflokka.
Nefndin vísar fjárhagsáætlun 2011 til Byggðarráðs.
   
19.  201012044 - Fjárhagsáætlun 04-annað
 Menningar- og fræðslufulltrúi gerði grein fyrir áætluninni.
   
20.  201012044 - Fjárhagsáætlun 05-annað
 Menningar- og fræðslufulltrúi gerði grein fyrir áætluninni.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:30




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya