Menningar- og fræðslunefnd

Menningar- og fræðslunefnd 38. fundur menningar- og fræðslunefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,þriðjudaginn 9. nóvember 2010 og

Menningar- og fræðslunefnd

38. fundur menningar- og fræðslunefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,þriðjudaginn 9. nóvember 2010 og hófst hann kl. 14:30

Fundinn sátu:

Soffía Helgadóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Olga Gísladóttir, Huld Hafliðadóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Sigurður Aðalgeirsson,

Fundargerð ritaði:  Huld Aðalbjarnardóttir, Menningar- og fræðslufulltrúi

Dagskrá:

1.

201011016 - Frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, dagsetningar samræmdra prófa haustið 2011

Lagt fram til kynningar.

 

2.

201011026 - Málræktarsjóður - Aðalfundur 2010 - fundargerð og ársreikningar.

Lagt fram til kynningar.

 

3.

201011025 - Þekkingarnet Þingeyinga - 55. fundur stjórnar - fundargerð

Lagt fram til kynningar.

 

4.

201011024 - Skólaakstur úr Reykjahverfi haust 2011

Huld Aðalbjarnardóttir vék af fundi undir þessum lið.

Sigurður Aðalgeirsson kynnti málið.

Menningar- og fræðslunefnd óskar eftir auka fjárheimild við byggðarráð að upphæð kr. 397.163,- vegna skólaaksturs 5 nemenda úr Reykjahverfi í Borgarhólsskóla frá ágúst til desember 2010.

 

5.

201010076 - Frá Tónlistarskóla Akureyrar, varðandi niðurgreiðslu á gjöldum nemenda úr Norðurþingi

Menningar- og fræðslunefnd sér sér ekki fært að verða við erindinu.

 

6.

201002049 - Mærudagar / sænskir dagar 2010

Mætt voru Hjálmar Bogi Hafliðason, Sigrún Ingvarsdóttir og Einar Gíslason frá Húsavíkurstofu.

Hjálmar Bogi fór yfir skýrslu Mærudaga 2010.

Hjálmar Bogi, Sigrún og Einar viku af fundi kl. 16:00

 

7.

200909017 - Bókasafn Öxarfjarðar - Flutningur bókasafnsins úr Safnahúsinu við Snartastaði

Menningar- og fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn að Bókasafn Öxarfjarðar verði flutt í skólahúsið á Kópaskeri. Einnig leggur nefndin til að sett verði á stofn húsnefnd skólahússins á Kópaskeri þar sæti ættu t.d. fulltrúar frá Bókasafni Öxarfjarðar, Skjálftasetrinu, Öxarfjarðarskóla, Þekkingarnetinu og Norðurþingi. Megin verkefni nefndarinnar verði frekara skipulag og nýting húsnæðisins.

 

8.

201011023 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 v. 2011

Menningar- og fræðslufulltrúi kynnti útgönguspá fyrir málaflokka nefndarinnar vegna 2010 og fyrstu áætlun fyrir árið 2011.

 

9.

201009048 - Öxarfjarðarskóli - erindi frá starfsfólki varðandi rekstur ferðaþjónustu í skólahúsinu í Lundi.

Menningar- og fræðslunefnd leggur áherslu á að ferðaþjónusta verði áfram rekin í Lundi en í fullri sátt og samvinnu við skólastarfið. Auglýst verði eftir ferðaþjónustuaðila og samið verði við hann í fullu samráði við skólastjórnendur Öxarfjarðarskóla og aðra hlutaðeigandi aðila. Þá telur nefndin að möguleiki sé að reka leikskóla yfir sumartímann samhliða rekstri ferðaþjónustu í Lundi. Menningar- og fræðslunefnd vísar málinu áfram til Byggðarráðs.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45

 

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya