Menningar- og fræðslunefnd

Menningar- og fræðslunefnd   27. fundur menningar- og fræðslunefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, mánudaginn 7. september 2009 og

Menningar- og fræðslunefnd

 

27. fundur

menningar- og fræðslunefndar Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

mánudaginn 7. september 2009 og hófst hann kl. 14:00

 

 

Fundinn sátu:

Gunnlaugur Stefánsson, Olga Gísladóttir, Sigtryggur Sigtryggsson, Ingólfur Freysson, Huld Aðalbjarnardóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Sigurður Aðalgeirsson,

 

Fundargerð ritaði:  Huld Aðalbjarnardóttir, Menningar- og fræðslufulltrúi

 

 

Dagskrá:

 

1.

200909020 - Bókasafnið á Húsavík, kynning á vetrarstarfinu.

 

Mætt var Guðrún Krístín Jóhannsdóttir forstöðumaður.

 

Guðrún gerði grein fyrir fyrirhuguðu starfi vetrarins.

 

 

 

2.

200907030 - Safnahúsið á Húsavík-Tilfærsla Bókasafns Húsavíkur af fyrstu hæð Safnahússins niður á jarðhæð þess

 

Mætt var Sigrún Kristjánsdóttir forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Þingeyinga.

 

Menningar- og fræðslunefnd felur forstöðumanni Bókasafns Húsavíkur og Menningar- og fræðslufulltrúa að gera framkvæmdar- og kostnaðaráætlun vegna verkefnisins.

 

Guðrún Kristín Jóhannsdóttir og Sigrún Kristjánsdóttir viku af fundi kl. 14:30

 

 

 

3.

200909017 - Bókasafn Öxarfjarðar - Flutningur bókasafnsins úr Safnahúsinu við Snartastaði

 

Mætt var Stefanía Gísladóttir forstöðumaður Bókasafns Öxarfjarðar.

 

Menningar- og fræðslunefnd felur forstöðumanni Bókasafns Öxarfjarðar í samstarfi við dreifbýlisfulltrúa að vinna framkvæmdar- og kostnaðaráætlun vegna tímabundinna flutninga á Bókasafni Öxarfjarðar í skólahúsnæðið á Kópaskeri. Jafnframt óskar menningar- og fræðslunefnd eftir umsögn Framfarafélags Öxarfjarðar um framtíðarstaðsetningu bókasafnsins.

 

 

 

4.

200909024 - Bókasafn Öxarfjarðar - vetrarstarfið 2009-2010

 

Stefanía gerði grein fyrir starfi Bókasafns Öxarfjarðar.

 

 

Stefanía Gísladóttir vék af fundi kl. 15:10

 

 

 

5.

200909021 - Dagvistunarmál í Norðurþingi haust 2009, staða mála.

 

Menningar- og fræðslufulltrúi gerði grein fyrir stöðu dagvistunarmála í Norðurþingi.

 

 

 

6.

200906079 - Grænuvelli 2009-2010

 

Mættar voru Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir skólastjóri, Lilja  Sigurðardóttir fulltrúi starfsmanna og Iris M. Waitz fulltrúi  foreldra.

 

Skólastjóri gerði grein fyrir byrjun vetrarstarfsins.

 

 

 

7.

200909018 - Grænuvellir - beiðni um aukið hlutfall stuðningsfulltrúa

 

Menningar- og fræðslunefnd óskar eftir því við Byggðarráð að veitt verði viðbótar fjárheimild að upphæð kr. 300.000,- vegna 25% aukningar á starfshlutfalli stuðningsfulltrúa á Grænuvöllum vegna ársins 2009.

 

Fulltrúar Grænuvalla viku af fundi kl.  15:35

 

 

 

8.

200909019 - Bréf frá Höskuldi Skúla Hallgrímssyni og Brynhildi Gísladóttur vegna þjónustuskerðingar og leikskólagjalda á Grænuvöllum 2009.

 

Menningar- og fræðslunefnd frestar afgreiðslu málsins og felur Menningar- og fræðslufulltrúa að leita álits lögfræðinga Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

 

 

9.

200904058 - Öxarfjarðarskóli 2009-2010

 

Mætt var Guðrún Kristjánsdóttir skólastjóri.

 

Skólastjóri gerði grein fyrir byrjun vetrarstarfsins.

 

 

 

10.

200909022 - Umsókn um aukið stöðuhlutfall á leikskóladeild í Lundi vegna fjölda leikskólabarna.

 

Menningar- og fræðslunefnd óskar eftir því við byggðarráð að veitt verði viðbótar fjárheimild að upphæð kr. 430.000,- fyrir árið 2009 vegna 50% viðbótarstöðu leikskóladeildar Öxarfjarðarskóla í Lundi.

 

Guðrún Kristjánsdóttir vék af fundi kl. 15:55

 

 

 

11.

200905137 - Borgarhólsskóli 2009-2010

 

Mættir voru Halldór Valdimarsson skólastjóri, Pálmi Björn Jakobsson og Ingólfur Jónsson fulltrúar kennara.

 

Skólastjóri gerði grein fyrir byrjun vetrarstarfsins.

 

Fulltrúar Borgarhólsskóla viku af fundi kl. 16:15

 

 

 

12.

200810077 - Skólaakstur úr Reykjahverfi

 

Menningar- og fræðslunefnd óskar eftir því við byggðaráð að það veiti 500.000 kr. til að greiða foreldrum barna úr Reykjahverfi vegna skólaaksturs í Borgarhólsskóla til áramóta 2009-2010.

 

 

 

13.

200905139 - Samstarfssamningur um félags- og skólaþjónustu

 

Formaður menningar- og fræðslunefndar gerði grein fyrir stöðu samningsmála um félags- og skólaþjónustu milli sveitarfélaga á þjónustusvæðinu.

 

 

 

14.

200902059 - Skólaþjónusta - starfsmannamál

 

Menningar- og fræðslufulltrúi gerði grein fyrir stöðu starfsmannamála hjá skólaþjónustunni.

 

 

 

15.

200905141 - Tónlistarveislan 2009

 

Menningar- og fræðlsunefnd felur Menningar- og fræðslufulltrúa að semja við hljómsveitina SOS um fræmkvæmd Tónlistarveislu 2009.

 

 

 

16.

200907073 - Menntamálaráðuneytið-Skerðing framlaga til námsgagnasjóðs

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

17.

200908088 - Menntamálaráðuneytið-Tilkynnt um úttektir á sjálfsmatsaðferðum í grunnskólum haustið 2009

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15

 

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya