Menningar- og fræðslunefnd 35. fundur

Menningar- og fræðslunefnd 35. fundur 35. fundur menningar- og fræðslunefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, mánudaginn 23. ágúst

Menningar- og fræðslunefnd 35. fundur

35. fundur

menningar- og fræðslunefndar Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

mánudaginn 23. ágúst 2010 og hófst hann kl. 14:00

Fundinn sátu:

Soffía Helgadóttir, Anna Kristrún Sigmarsdóttir, Olga Gísladóttir, Huld Hafliðadóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Sigurður Aðalgeirsson,

Fundargerð ritaði:  Huld Aðalbjarnardóttir, Menningar- og fræðslufulltrúi

Dagskrá:

 

1.

201008036 - Tónlistarskólar í Norðurþingi. Tillaga að sameiningu tónlistarskólanna í Norðurþingi.

 

Mættur var Árni Sigurbjarnarson skólastjóri Tónlistarskóla Húsavíkur.

Menningar- og fræðslunefnd leggur til við sveitarstjórn Norðurþings að Tónlistarskóli Húsavíkur, Tónlistarskóli Öxarfjarðarhéraðs og Tónlistarskóli Raufarhafnar verði sameinaðir undir stjórn skólatjóra Tónlistarskóla Húsavíkur með mannaðar starfstöðvar á Húsavík, Kópaskeri/Lundi og á Raufarhöfn. Sameiningin tekur gildi þegar í stað og skólaárið 2010-2011 nýtt til að útfæra og þróa skipulag og samræmingu á tónlistarnámi í Norðurþingi.

Greinargerð:

Þrír tónlistarskólar eru í Norðurþingi. Á Húsavík er öflugur skóli með þróaða kennsluhætti og er í nánu samstarfi við aðra skóla á Húsavík. Á Öxarfjarðarsvæðinu og á Raufarhöfn eru litlir skólar með einn starfmann hvor og hafa þar af leiðandi minni möguleika á að bjóða upp á sambærilega þjónustu og er veitt á Húsavík. Með sameiningu skólanna er stefnt að því að samræma þjónustuna og styrkja tónlistarnám í öllu sveitarfélaginu.

 

 

 

2.

201008035 - Tónlistarskóli Húsavíkur haust 2010, kynning á starfseminni.

 

Árni kynnti starfsemi Tónlistarskóla Húsavíkur.

Árni vék af fundi kl. 14:30

 

 

 

3.

201008038 - Grænuvellir haust 2010. Kynning á starfseminni.

 

Mætt voru Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir skólastjóri, Lilja Sigurðardóttir fulltrúi starfsfólks og Óskar Jóhannsson fulltrúi foreldra.

Skólastjóri fór yfir starfsemi Grænuvalla

 

 

 

4.

201008039 - Grænuvellir. Skóladagatal 2010-2011.

 

Menningar- og fræðslunefnd staðfestir fyrirliggjandi skóladagatal.

 

 

 

5.

201008040 - Grænuvellir. Umsókn um aukningu á stöðuhlutfalli við leikskólann Grænuvelli.

 

 Umsókn I 

Menningar- og fræðslunefnd óskar eftir því við byggðarráð að veitt verði viðbótar fjárheimild að upphæð kr. 950.000,- vegna aukningar á stöðuhlutfalli stuðningsfulltrúa um 1 stöðugildi á Grænuvöllum vegna ársins 2010 þar sem greiningargögn liggja fyrir.

Umsókn II

Meirihluti menningar- og fræðslunefnd felur Menningar- og fræðslufulltrúa í samstarfi við skólastjóra að skoða frekari hagræðingarmöguleika innanhúss vegna þessarar umsóknar og frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

Kolbrún Gunnarsdóttir og Huld Hafliðadóttir telja brýnt að umsóknin verði samþykkt nú þegar.

 

Fulltrúar Grænuvalla viku af fundi kl. 15:15

 

 

 

6.

201008037 - Borgarhólsskóli haust 2010. Kynning á starfseminni.

 

Mætt voru Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skólastjóri, Pálmi Björn Jakobsson og Ingólfur Jónsson fulltrúar kennara.

Skólastjóri fór yfir starfsemi Borgarhólsskóla.

Anna Birna Einarsdóttir var ráðin sem deildarstjóri 1.-7. bekkjar og er jafnframt stðagengill skólastjóra og Brynhildur Þráinsdóttir sem deildarstjóri unglingardeildar. Þá verður Hanna Ásgeirsdóttir áfram deildarstjóri sérkennslu.

Hulda Davíðsdóttir þroskaþjálfi, var ráðin sem forstöðumaður skólaselsins og er jafnframt starfandi þroskaþjálfi við Borgarhólsskóla. 

Þórgunnur kynnti verkefnið um heilsueflandi skóla og fór yfir breytingar á starfsáætlun skólans en nýtt skóladagatal 2010-2011 verður lagt fyrir næsta fund menningar- og fræðslunefndar.

Fulltrúar Borgarhólsskóla viku af fundi kl. 15:15

 

 

 

7.

201008041 - Bókasafn Húsavíkur haust 2010. Kynning á starfseminni.

 

Mætt var Eyrún Ýr Tryggvadóttir forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík.

Eyrún fór yfir starfsemi bókasafnsins.

Eyrún vék af fundi kl. 16:10

 

 

 

8.

200909019 - Bréf frá Höskuldi Skúla Hallgrímssyni og Brynhildi Gísladóttur vegna þjónustuskerðingar og leikskólagjalda á Grænuvöllum 2009.

 

Úrskurður Mennta- og menningarmálaráðuneytisins er svo hljóðandi:

„Ákvörðun menningar- og fræðslunefndar Norðurþings um að ákveða óbreytt gjald fyrir barn í leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík þrátt fyrir lokun leikskólans í þrjá daga fyrir páska 2009 og í fjóra daga í ágúst sama ár er staðfest.

Vísað er frá þeirri kröfu kærenda að bóknanir menningar- og fræðslunefndar Norðurþings vegna máls þeirra, sem gerðar voru á fundum nefndarinnar 16. október 2009 og 13. nóvember sama ár, verði dæmdar dauðar og ómerkar."

 

 

 

9.

201006089 - ADHD samtökin, vitundarvika í skólum 20. - 24. september 2010

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

10.

201006093 - Mennta- og menningarmálaráðuneyti, úthlutun úr námsgagnasjóði 2010

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

11.

201008042 - Heilbrigði skólabarna í Norðurþingi.

 

Menningar- og fræðslunefnd fagnar áhuga starfsfólks Borgarhólsskóla á verkefninu "Heilsueflandi skóli" sem rímar við áherslur sveitarstjórnar um heilbrigði skólabarna í Norðurþingi. Menningar- og fræðslufulltrúa er falið að fylgja verkefninu eftir í samstarfi við starfsmenn skólans.

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya