
Reykjahverfi er syðsti hluti sveitarfélagsins Norðurþing og liggur austan Hvammsheiðar og nær frá Skjálfanda suður að Kringluvatni. Það var áður sjálfstæður hreppur en sameinaðist Húsavík 2002 og tilheyrir nú Norðurþingi. Svonefndur Kísilvegur liggur frá þjóðvegi 85 um Reykjahverfi, yfir Hólasand og upp í Mývatnssveit.
Reykjahverfi er kennt við jörðina Reyki en í landi hennar er að finna mikinn jarðhita. Þaðan er leitt vatn til hitaveitu á Húsavík. Á Hveravöllum er nú einhver mesta gróðurhúsarækt landsins, en þar hefur jarðhitinn verið nýttur til ylræktar allt frá 1904.
Garðræktarfélag Reykhverfinga hf. var stofnað það ár en fyrst var um kartöflu- og grasrækt að ræða en árið 1933 hófst ylrækt í gróðurhúsi á Hveravöllum, því fyrsta á Norðurlandi, og hefur sú starfsemi stöðugt elfst í tímans rás. Ræktaðar eru nokkrar tegundir grænmetis sem og margskonar sumarblóm.
Það
er þó fleira að finna á svæðinu. Trésmiðjan Rein hefur um langt árabil verið með öfluga starfsemi og sinnt verkefnum
um allt héraðið. Þar er nú einnig starfrækt sérstök verksmiðja sem framleiðir gólflista o.fl. Flestir vinna við
hefðbundinn landbúnað, þ.e. kúabúskap og sauðfjárrækt.
Í félagsheimilinu Heiðarbæ, er sundlaug og jafnframt rekin gisti- og ferðaþjónusta á sumrin. Gisting er einnig í boði að Skógum I og Skógum II og enn fremur í smáhýsum við Kaldbak, rétt við bæjardyr Húsavíkur. Við Hrísateig er lítill þéttbýliskjarni og þar starfar rótgróið samgöngu- og ferðaþjónustufyrirtæki. Skammt sunnan við Húsavík er Saltvík og er þar rekin hestamiðstöð.
Hópferðabílar Rúnars Óskarssonar eru á Hrísateigi 5 en fyrirtækið hefur auk þess að sinna flutningum með hópferðabílum einnig sinnt háfjallaferðum fyrir ferðamenn á sérútbúnum jeppum.
Fyrirtækið Norðurlax hf. hefur rekið klak- og eldisstöð á Laxamýri allt frá árinu 1972.
Lax og urriðaveiði þykir góð í Mýrarkvísl, en hún rennur niður Reykjahverfi undir austurhlíð Hvammsheiðar og rennur í Laxá við Heiðarendann áður en hún fellur um Æðarfossa niður á sandinn við botn Skjálfandaflóa. Einnig er veiði í Langavatni og Kringluvatni.



