Skipulags- og byggingarnefnd

Skipulags- og byggingarnefnd 63. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, mánudaginn 17. maí 2010 og

Skipulags- og byggingarnefnd

63. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, mánudaginn 17. maí 2010 og hófst hann kl. 08:15

Fundinn sátu:

Jón Grímsson, Hannes Höskuldsson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Gaukur Hjartarson, Arnar Sigurðsson,

Fundargerð ritaði:  Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Dagskrá:

 

1.

200806049 - Alcoa inc. Tillögur að matsáætlun álvers á Bakka

Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti frummatsskýrslur fyrir:

1.  Kröfluvirkjun II.

2.  Þeistareykjavirkjun.

3.  Háspennulínur (220 kV) frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík.

4.  Álver Alcoa á Bakka við Húsavík.

5.  Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum ofangreindra framkvæmda.

Tekið er við athugasemdum við skýrslurnar til 14. júní.  Lagt fram til kynningar.

 

 

2.

201004065 - Tjörneshreppur óskar eftir umsögn um tillögu að aðalskipulagi sveitarfélagsins

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér tillögu að aðalskipulagi Tjörneshrepps 2008-2020 og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að koma eftirfarandi ábendingum á framfæri við sveitarstjórn Tjörneshrepps:

1. Í kafla 1.6.1 er gefið í skyn að efnistaka í Hlíðarhorni (ranglega nefnt Heiðarhorn í greinargerð) hafi haft lykiláhrif til hins verra á afkomu kríuvarps við Máná.  Það virðist ekki skynsamleg ályktun og varla viðeigandi í aðalskipulagsgreinargerð.  Jafnframt skal áréttað að í Hlíðarhorni hefur fyrst og fremst verið um að ræða grjótnám frekar en malarnám.

2.  Á skýringarkorti 4 er lundabyggðin á Voladalstorfu sögð besti lundaskoðunarstaður á Íslandi.  Þó Voladalstorfa hafi á árum áður verið aðgengilegur staður til lundaskoðunar verður að teljast vafasamt að um sé að ræða besta lundaskoðunarstað landsins og það orðalag því ekki viðeigandi í aðalskipulagsgreinargerð.

3.  Í töflu 2.5.1 er Norðausturvegur skilgreindur sem tengivegur.  Skv. vegaskrá Vegagerðarinnar er vegurinn hinsvegar talinn stofnvegur.

4.  Í kafla 2.5 um samgöngur er umtalsverð umfjöllun um Dettifossveg sem alfarið er innan Norðurþings og Skútustaðahrepps.  Í drögum að aðalskipulagi Norðurþings er tekin skýr afstaða til vegtenginga meðfram jökulsá frá Kelduhverfi að hringvegi.  Aftur er fjallað um þessa vegtengingu í kafla 3.2.  Umfjöllun um þessa vegtengingu á varla heima í aðalskipulagi Tjörneshrepps.

5.  Misræmi virðist milli umfjöllunar um veðurathuganir í Tjörneshreppi þar sem í kafla 1.2 er talað um meira en 60 ára sögu veðurathuganna en í kafla 2.6.8 er talað um upphaf veðurathuganna að Mánárbakka 1956.

6.  Í kafla 2.6.1 er fjallað um starfsemi byggingarfulltrúa Þingeyjarsýslu.  Starfsheitið er hinsvegar byggingarfulltrúi Þingeyinga.

7.  Í kafla 3.1.1 er sérstaklega tilgreint að allar byggingarframkvæmdir í Tjörneshreppi skuli vera í samræmi við deiliskipulög.  Þessi stefna er stífari en viðgengst í öðrum dreifbýlissveitarfélögum hérlendis og má vænta þess að stefnan hafi í för með sér umtalsverðan kostnað fyrir húsbyggjendur og/eða sveitarfélagið.

8.  Í kafla 3.5.4 er fjallað um fjölmörg hverfisverndarsvæði í Tjörneshreppi.  Í inngangi er vitnað í kafla 4.22.1 í skipulagsreglugerð þar sem segir til um að tilgreina skuli með hverfisverndinni réttindi, skyldur og kvaðir fyrir stjórnvöld og borgara varðandi landnotkun og framkvæmdir innan hverfisverndarsvæðanna.  Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur kvaðir fylgjandi hverfisverndinni óskýrar.

9.  Skilgreint er hverfisverndarsvæði í votlendi á Héðinshöfða og afmarkað á skipulagsuppdrætti.  Hverfisverndin er rökstudd með verndun auðugs fuglalífs.  Skipulags- og byggingarnefnd telur rétt að breyta afmörkun þessa hverfisverndarsvæðis, þar sem stór hluti þess eru einfaldlega ræktuð tún Héðinshöfða sem varla geta talist auðug af fuglalífi.  Á hinn bóginn virðist ekki allt votlendið njóta hverfisverndarinnar.

10.  Í kafla 3.8.2 er tilgreint að heitt vatn til heimilisnota á Héðinshöfða komi frá hitaveitu Húsavíkur.  Söluaðili heita vatnsins heitir nú Orkuveita Húsavíkur ehf.

11. Í kafla 3.9 er tilvísun í kafla 4.9.2 í skipulagsreglugerð þar sem fjallað er um efnistökusvæði í svæðisskipulagsáætlunum.  Þar sem ekki er unnið að svæðisskipulagi væri rétt að vísa í ákvæði reglugerðarinnar um efnistökusvæði í aðalskipulagi.

12.  Í töflu 11 er fjallað um efnistökusvæði í Hlíðarhorni í landi Mánár.  Fram kemur að fyrst og fremst verði þar malartaka til heimabrúks innan skipulagstímabilsins.  Á það er minnt að náman í Hlíðarhorni var opnuð sem grjótnáma vegna hafnargerðar.  Æskilegt væri að að áfram verði gert ráð fyrir grjóttöku úr námunni, m.a. vegna fyrirhugaðrar hafnargerðar við Húsavík.

 

 

3.

201004088 - Skipulagsstofnun, ósk um umsögn varðandi mat á umhverfisáhrifum vegna fiskeldisins í Haukamýri

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér greinargerð vegna fyrirhugaðrar aukningar framleiðslugetu fiskeldisins í Haukamýri.

Nefndin telur greinargerðina skýra og telur ekki tilefni til þess að krefjast umhverfismats vegna fyrirhugaðra framkvæmda.

 

4.

201004103 - Olíudreifing ehf., deiliskipulag fyrir olíubirgðastöðvar félagsins á Húsavík og Raufarhöfn

Skipulags- og byggingarnefnd felur byggingarfulltrúa að afla nánari upplýsinga um málið.

 

5.

201004101 - Landeigendur Undirveggjar óska eftir samþykki sveitarfélagsins að taka úr landbúnaðarnotum og stofna frístundalóð út úr Undirvegg

Óskað er samþykkis fyrir stofnun lóðar og útskiptingu hennar úr landi Undirveggs í Kelduhverfi.  Jafnframt er þess óskað að sveitarstjórn samþykki að lóðin verði tekin úr landbúnaðarnotum og skilgreind sem frístundahúsalóð.  Meðfylgjandi erindi er uppdráttur frá Búgarði á Akureyri sem sýnir hnitsetta 4.754 m² lóð.

 

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að stofnun lóðarinnar verði samþykkt, henni skipt út úr jörðinni, tekin úr landbúnaðarnotum og skilgreind sem frístundahúsalóð.

 

6.

201003042 - Samþykkt um skilti í Norðurþingi

Á fundi sínum þann 12. maí s.l. fjallaði Framkvæmda- og þjónustunefnd Norðurþings um tillögu skipulags- og byggingarnefndar um samþykkt um skilti í Norðurþingi.  Framkvæmda- og þjónustunefnd gerir ekki athugasemdir við Þau drög sem kynnt voru.

 

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi tillaga verði samþykkt.

 

7.

201003113 - Sigrún Kristjánsdóttir f.h. Safnahússins á Húsavík sækir um leyfi fyrir auglýsingaskiltum

Sigrún Kristjánsdóttir mætti til fundarins til að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum varðandi merkingar og kynningu safnahússins.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir leyfi fyrir skilti safnahússins utan á Flókahúss fyrir sitt leiti, enda merki skiltið starfsemi og staðsetningu sjóminjasafns.  Leyfi fyrir skiltinu er tímabundið til eins árs eða þar til húsið verður fjarlægt.  Framkvæmdaaðili hafi samráð við leigutaka húss um gerð og staðsetningu skiltisins.

 

8.

201005023 - Húsavíkurstofa - ósk um leyfi fyrir þjónustuskilti

Óskað er eftir leyfi til uppsetningar skiltis til að merkja staðsetningu upplýsingarmiðstöðvar Húsavíkurstofu.  Útlit skiltis og afstaða er sýnd á teikningu.

 

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að skiltið verði staðett norðan aðkeyrslu að bílastæði enda umsótt staðsetning innan lóðar við Sölku.

 

9.

201005051 - Marianne Rasmussen f.h. Norðurþings sækir um leyfi til uppsetningar skiltis fyrir Wild North project við Húsavíkurhöfn

Óskað er eftir leyfi fyrir skilti, ca. 80 cm x 100 cm um samstarfsverkefnið "Hið villta norður".  Meðfylgjandi erindi er teikning af skiltinu og fyrirhugaðri afstöðu þess.

 

Skipulags- og byggingarnefnd hafnar staðsetningu skiltisins.  Nefndin telur ekki heppilegt að skerða útsýni til hafnarinnar frá hafnarstétt frekar en orðið er.

 

 

 

10.

201005020 - Heiðar Smári Þorvaldsson og Helga Sveinbjörnsdóttir sækja um leyfi til að gera ný bílastæði á lóð Garðarsbrautar 36

Óskað er eftir leyfi til að gera bílastæði í sv-horni lóðarinnar að Garðarsbraut 36.  Með umsókn fylgir skriflegt samþykki næstu nágranna.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

11.

201005036 - Jón Kristján Ólason f.h. Trémáls ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 18 m² timburhús á Kópaskeri

Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir 18 m² húsi sunnan Sviðastöðvar og austan veiðarfærageymslu Helga Viðars Björnssonar skv. meðfylgjandi afstöðumynd.

 

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að stöðuleyfi verði veitt fyrir húsinu til 31. maí 2012.

 

12.

201005022 - Stéttarfélögin sækja um leyfi til breytinga á félagsaðstöðu félaganna að Garðarsbraut 26

Óskað er eftir heimild til breytinga innanhúss og á útliti glugga að Garðarsbraut skv. teikningum unnum af Arnhildi Pálmadóttur arkitekt.

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið að því tilskyldu að umsækjandi skili inn skriflegu samþykki meðeigenda í húsinu.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30

 

 



Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya