
75. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 13. apríl 2011 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Guðlaug Gísladóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Áki Hauksson, Gaukur Hjartarson,
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201104050 - Ásdís Kjartansdóttir og Vigfús Sigurðsson óska eftir leyfi til að setja skilti á ljósastaur
við Héðinsbraut
Meðfylgjandi erindi er rissmynd af staðsetningu skiltisins.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir uppsetningu skiltisins, enda verði nánari útfærsla þess gerð í samráði með
byggingarfulltrúa.
2. 201104015 - Sigurður Eyfells f.h. Garðarshólma ses. sækir um leyfi fyrir breyttri notkun á Hafnarstétt 33
Óskað er
eftir samþykki fyrir breyttri nýtingu Hafnarstéttar 33. Húsið hefur verið notað sem geymsla og verkstæði en yrði nýtt í
þágu ferðaþjónustu.
Húsið að Hafnarstétt 33 stendur á reit H5 skv. aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030. Gert er ráð fyrir að sá hluti hafnarsvæðisins sé fyrst og fremst fyrir stærri útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki. Nú er hinsvegar staðan sú að stærri fiskvinnslufyrirtæki virðast ekki hafa þörf fyrir þetta húsnæði og fleiri hús á svæðinu þegar í annari notkun en gert er ráð fyrir í aðalskipulagi. Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar telur því að sveitarfélaginu sé ekki stætt á að hafna erindinu á þeim grunni að það sé ekki í samræmi við aðalskipulag. Meirihlutinn samþykkir því fyrir sitt leiti breytta starfsemi á lóðinni.
Áki, fulltrúi Þinglistans, situr hjá við þessa afgreiðslu og óskar bókað: "Ljóst er að mesta aðdráttarafl ferðamanna að hafnarsvæðinu eru hvalasiglingar og hvalasafnið. Með því að beina ferðamannastraumnum að gömlu síldarverksmiðjunni skapast mikil hætta á slysum vegna þeirra umferðar sem er við hafnarvogina vegna landana úr bátum og skipum. Mikil umferð lyftara og vöruflutningabíla er yfir og við hafnarvog í því sambandi má nefna að yfir mesta ferðamannatímann eru smábátar á strandveiðum og krefst þessi svæði sérstakrar aðgæslu meðan að landanir fara fram. Vísað er til texta aðalskipulags um reit hafnarsvæðis H5 þar sem fyrst og fremst er gert ráð fyrir starfsemi tengdri fiskvinnlu og útgerð á svæðinu."
Soffía, fulltrúi Framsóknarflokksins, leggur til við bæjarstjórn að erindinu verði hafnað á þeim forsendum að notkun lóða á reit H5 samræmist ekki aðalskipulagi og óskar bókað: "Ég tel ekki rétt að draga ferðamannaumferð inn á athafnasvæði fiskvinnslu frekar en orðið er. Því get ég ekki sætt mig við að gömlu síldarverksmiðjurnar verði teknar undir ferðaþjónustu."
Með vísan til 3. gr. Hafnarreglugerðar fyrir hafnir Norðurþings vísar skipulags- og byggingarnefnd málinu til umfjöllunar í framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings áður en það fer til endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar.
3. 201103115 - Eigendur Laxamýrar óska eftir samþykki fyrir að skipta lóð út úr Laxamýri land
172598
Óskað er eftir samþykki fyrir uppskiptingu lóðar um útihús á Laxamýri skv. hnitsettum uppdrætti.
Þar með yrði stofnuð ein ný lóð en eldri lóð minnkuð að sama skapi.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að stofnun nýrrar lóðar verði samþykkt sem og hnitsetningar beggja
lóðanna.
4. 201103111 - íbúafundir í sveitarfélaginu
Farið var yfir niðurstöður íbúafunda "Mitt hjartans
mál" sem haldnir voru í mars og apríl.
Lagt fram til kynningar á þessu stigi og stefnt at nánari umfjöllun nefndarinnar síðar.
5. 201103102 - Guðmundur Þórarinsson sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhúsið að Vogum í
Kelduhverfi
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir stigahúsi vestan á íbúðarhúsið að Vogum í Kelduhverfi.
Teikning er unnin af Berki Ottóssyni.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna erindið eigendum Grásíðu. Skipulags- og byggingarfulltrúa er
heimilað að gefa út byggingarleyfi fyrir mannvirkinu ef ekki kemur athugasemd frá tilgreindum nágrönnum.
6. 201103100 - Vinnuvélar Eyþórs ehf. óska eftir leyfi til að skipta upp eigninni að Höfða 12
Óskað er eftir
leyfi til að skipta Höfða 12 í tvær eignir skv. teikningum unnum af Þresti Sigurðssyni í Opus.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.
7. 201101048 - Sveinn Hreinsson f.h. eignasjóðs Norðurþings sækir um leyfi til að rífa húsið Stafnes á
Raufarhöfn.
Óskað er eftir leyfi til að rífa íbúðarhúsið Stafnes á Raufarhöfn. Erindið var
áður til umfjöllunar á 73. fundi nefndarinnar en var þá frestað. Engin tilboð hafa borist í húseignina við auglýsingu.
Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu erindisins þar til fyrir liggur umsögn fyrirhugaðrar hverfisnefndar.
8. 200809087 - Yfirlit yfir stöðuleyfi
Farið var yfir lista yfir veitt stöðuleyfi frá árinu 2002.
9. 201104051 - Rarik sækir um, leyfi til endurnýjunar og breytinga á aðveitustöð á Raufarhöfn
Óskað er eftir
leyfi til útlitsbreytinga og breytinga innanhúss skv. teikningum unnum af Per Langsöe Christensen arkitekt.
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings fellst á breytingar hússins fyrir sitt leiti. Minnt er þó á ákvæði reglna um brunavarnir spennistöðva (sjá leiðbeiningar nr. 197.BR1) þar sem fram kemur m.a.:
Loftræstibúnaður skal stöðvast sjálfkrafa við bruna.
Spennsistöð sem geymir meiri olíu en 1.000 lítra skal brunahönnuð.
Í hverri spennistöð skal vera handslökkvitæki sem viðurkennt er fyrir þá spennu sem er á stöðinni.
Í spennistöð skal vera sérstök neyðarlýsing fyrir sérstök hættusvæði.
Á spennistöð skal vera búnaður sem losar þrýsting af sprengingu úr spennum.
Farið er fram á að teikningar verði lagfærðar til samræmis við þessi ákvæði.
10. 201104066 - Rarik ohf. sækir um byggingarleyfi fyrir endurnýjun á spennistöð að Langholti 2,
Húsavík
Óskað er eftir leyfi til að skipta um spennistöð á lóð umsækjanda í Langholti á
Húsavík. Ennfremur er óskað eftir samþykki fyrir nýjum jarðstrengjum út frá spennistöðinni. Fyrir fundi liggur sniðmynd af
húsi og ljósmyndir af sambærilegu mannvirki.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir ósk um leyfi fyrir nýrri spennistöð að því gengnu að hæðarsetning stöðvarinnar og lega jarðstrengja verði ákvörðuð í samráði við framkvæmda- og þjónustufulltrúa.
11. 201104072 - Saltvík ehf. sækir um leyfi til að skipta upp hesthúsi og reiðskemmu í Saltvík í fjórar
eignir
Með erindi er lögð fram teikning af uppskiptingu eigna í hesthúsinu og tillaga að eignaskiptasamningi.
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á erindið að því tilskildu að ákvæði byggingarreglugerðar um hesthús séu
að fullu uppfyllt.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30



