Skipulags- og byggingarnefnd

Skipulags- og byggingarnefnd 88. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 15. febrúar 2012

Skipulags- og byggingarnefnd

88. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 15. febrúar 2012 og hófst hann kl. 13:00


Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Hannes Höskuldsson, Áki Hauksson, Gaukur Hjartarson,

Fundargerð ritaði:  Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Dagskrá:

1.  201105013 - Endurskoðun deiliskipulags miðhafnarsvæðis
 Per Langsöe Christensen kynnti breytta tillögu að deiliskipulagi miðhafnarsvæðis.
Sérstaklega kynnti hann tvær hugmyndir sýnar um byggingarmöguleika á lóðum að Hafnarstétt 19-23. 
 
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að skipulagstillögunni verð breytt til þess að heimila fyrirkomulag  eins og teiknað er upp í tillögu "A".
 
Greinargerð og skipulagsuppdrætti hefur verið  breytt til samræmis við ákvarðanir á síðasta fundi skipulags- og byggingarnefndar.
 
Kynnt var tillaga að byggingu upp fyrir sjávarbakka að Hafnarstétt 11 sem unnin er af Sigríði Sigþórsdóttur hjá Basalt arkitektum.
 
Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar leggur til að gert verði ráð fyrir stöðuleyfum fyrir allt að 45 m² torgsöluhúsum ofan á þökum Hafnarstétta 7 og 11 (sbr. ákvæði kafla 2.6 í gildandi byggingarreglugerð).  Soffía og Áki telja að ákvæði um stöðuleyfi eigi ekki heima í deiliskipulagi og leggjast því gegn ákvæðum um stöðuleyfi í deiliskipulagi þar sem þau telja að um næsta skref sé að ræða.
 
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á tillöguna að gerðum ofangreindum breytingum fyrir sitt leyti og með tilvísan til 5. gr. hafnalaga leggur skipulagsnefnd til við framkvæmda- og hafnanefnd og bæjarstjórn að tillagan verði kynnt á almennum íbúafundi skv. 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
 
Soffía og Áki óska bókað:
"Í aðalskipulagi Norðurþings, skipulagi þéttbýlis, kemur fram á bls. 69: „Mikilvægt er að forðast of mikla endurnýjun og umbreytingu á Hafnarstéttinni til þess að svæðið haldi hluta af upprunaleika sínum og tengslum við hafnarstarfsemi og útgerð.  Hinsvegar er augljóst að ferðamenn sækjast eftir að ganga leiðina sem liggur frá tröppunum neðan kirkjunnar að Hvalasafninu. Þessa leið þarf því að styrkja, bæði sem þjónusturými fyrir Verbúðirnar, en einnig sem örugga og lifandi gönguleið, með eins mörgum virkum framhliðum bygginga eins og mögulegt er.“
Stigar sem eru í dag á leið frá Hafnarstétt að kirkjunni eru í slæmu ástandi og fara yfir einnar hæðar byggingu (Foss), sem er beint fyrir neðan kirkjuna. Ef gera á breytingar á þeirri byggingu þarf að taka tillit til þessarar leiðar og útsýnisins að kirkjunni, sem kynni að tapast ef byggingin yrði stækkuð. Lagt er til í aðalskipulagi, að torg verði fyrir neðan kirkjuna, ofan á einnar hæðar byggingu og af torginu gæti verið inngangur í Verbúðirnar.
Verbúðirnar eru mikilvægar fyrir áframhaldandi smábátaútgerð og líf á svæðinu. Þær segja einnig sögu svæðisins og skapa því sérkenni, þar sem ekki er að finna sambærilega byggingu á landinu, þ.e. tveggja hæða verbúðir. Í ágripi úr sögu Verbúðanna í skýrslu um Húsakönnun miðhafnarsvæðis, kemur fram að árið 1963 fékk Húsavíkurhöfn viðurkenningu sem lögleg viðleguhöfn sem var aðalforsenda þess að styrkveiting fékkst til verbúðabyggingarinnar. Þó svo að allar verbúðirnar séu ekki nýttar fyrir smábátaútgerð í dag, er mikilvægt að varðveita a.m.k. þær sem eru á fyrstu hæðinni sem slíkar, vegna góðra tenglsa þeirra við Helguskúr og til að viðhalda upplifun á útgerðarstarfsemi á svæðinu. Skv. Húsakönnun miðhafnarsvæðis bls. 40, er skrifað um ágrip sögu Helguskúrs. „Starfsemi í húsinu hefur verið tengd sjávarútvegi og þar er nú vísir að sjávarútvegssafni sem er opið fyrir heima- og ferðamenn.“ Jafnframt er lagt til að húsaröð við Hafnastétt og nágrenni hennar verði verndað með hverfisvernd í deiliskipulagi vegna umhverfislegrar sérstöðu þess. Í aðalskipulagi (bls. 71) er vitnað í fund með bæjarbúum og ýmsum hagsmunaaðilum og þar hafi komið fram, að í margra huga er Helguskúr nánast eins mikilvægur bæjarlífinu og kirkjan er bæjarmyndinni, og hjarta samfélags smábátasjómanna.  „Hana ætti því að vernda sem „lifandi safn“ til að vega upp á móti annarri starfsemi sem sett er sérstaklega á fót fyrir ferðamenn.“
Einnig kemur fram í aðalskipulagi Norðurþings (bls. 72), að ekki séu skýr mörk á milli þess svæðis sem ferðamenn nota og þess sem útgerð og hafnarstarfsemi nýtir. Mikilvægt er að smábátaúgerð og ferðaþjónusta fléttist saman á Hafnarstéttinni en hinsvegar þurfi að vera skýr skil á milli þess konar starfsemi og umfangsmeiri hafnar- og útgerðarstarfsemi. Mælt er með því að pollar séu settir við mörk ferðaþjónustusvæðis og athafnasvæðis, jafnframt notaðir til að afmarka bílastæði og aðkomuleiðir.
Ferðamenn njóta þess að upplifa sögu útgerðar í sjávarplássum og fylgjast með sjómönnum að störfum sínum. Það ætti ekki að vera fyrirstaða að geta tvinnað ferðaþjónustu og útgerð saman í ferðaþjónustu á Húsavík. En einn atvinnuvegur má ekki ýta öðrum út af borðinu, og einungis sagan verði sögð í máli og myndum á hafnarsvæðinu. Til þess höfum við Sjóminjasafn við Menningarmiðstöð Þingeyinga. Ferðamennirnir vilja líka sjá hlutina „live“, rétt eins og upplifa hvala- og fuglaskoðun, fegurð og ógnanir hafsins og sjómennskunnar. Uppi í bænum er plássið nóg og tenging mennta- og menningarstofnana. Ætti því ekki að þrengja svo að atvinnuvegi sem sjávarútvegur er, að mögulegt öryggi ferðamanna verði stofnað í hættu. Í aðalskipulagi Norðurþings er bent á, að þegar til lengri tíma sé litið, sé mögulegt að svæðið við gamla slippinn verði skoðað nánar, með frekari uppbyggingu í huga."
   
2.  201110042 - Tillaga að breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna miðhafnarsvæðis
 Engar breytingar hafa verið gerðar á áður kynntri tillögu.
 
Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar leggur til við framkvæmda- og hafnanefnd að tillagan verði kynnt á almennum íbúafundi  til samræmis við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eins og hún er lögð fram.  Litið verði svo á að fyrri auglýsing skipulagstillögunnar gildi sem kynning lýsingar skv. 1. mgr. 30. gr.
 
Soffía og Áki sátu hjá við þessa afgreiðslu.
 
 
   
3.  201202023 - Landsnet hf. óskar eftir breytingu á aðalskipulagi Norðurþings vegna lagningar jarðstrengs
 Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Norðurþings 2010-2030 vegna jarðstrengs frá virkjanasvæði Þeistareykja að Kópaskerslínu við Höfuðreiðarmúla ásamt drögum að umhverfisskýrslu.
Skipulagsnefnd samþykkir að auglýsa tillöguna sem óverulega breytingu samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga. Skipulagsnefnd samþykkir jafnframt að senda tillöguna ásamt drögum að umhverfisskýrslu til Skipulagsstofnunar til kynningar sbr. ákvæði 2. mgr. 6. gr. laga um umhverfismat áætlana, en þau varða ákvörðun um umfang og nákvæmni upplýsinga í umhverfisskýrslunni.
Þegar umsögn Skipulagsstofnunar um drögin (matslýsinguna) liggja fyrir verður gengið frá breytingartillögunni ásamt umhverfisskýrslu til auglýsingar skv. 2. mgr. 6. gr. skipulagslaga og 1. gr. 7. gr. laga um umhverfismat áætlana. Athugasemdafrestur er 6 vikur skv. síðarnefndu lögunum.
   
4.  201202022 - Norðurþing sækir um útskipti lóðar og stofnun úr lóð Skúlagarðs undir skólastjórabústað. Nafnið verði Höfðaborg
 Fyrir liggur afmörkun lóðar um Skúlagarð sem sátt er um við aðliggjandi landeigendur.  Óskað er eftir samþykki skipulagsnefndar fyrir afmörkun lóðarinnar og útskiptingu lóðar út úr henni umhverfis gamla skólastjórabústað.  Fyrir fundi liggur hnitsett lóðarmynd.  Ennfremur er óskað eftir samþykki fyrir heitinu Höfðaborg á lóðina undir gamla skólastjórabústað.
 
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að afmörkun beggja lóða verði samþykkt og samþykkir fyrir sitt leyti áformað heiti lóðar.
   
5.  201202005 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Auði Gunnarsdóttur f.h. Fensala ehf.
 Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið.
   
6.  201201066 - Sigmar Stefánsson, f.h. eigenda Garðarsbrautar 12, sækir um leyfi til að bæta við gluggum á kjallara
 Erindi var móttekið og samþykkt af skipulags- og byggingarfulltrúa 26. janúar s.l.
 
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemd við þessa afgreiðslu.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:15




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya