Skipulags- og byggingarnefnd

Skipulags- og byggingarnefnd 94. fundur skipulags- og byggingarnefndar   haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,  11. júlí 2012 og hófst hann kl.

Skipulags- og byggingarnefnd

94. fundur skipulags- og byggingarnefndar  
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
 11. júlí 2012 og hófst hann kl. 13:00.

Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Guðlaug Gísladóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Gaukur Hjartarson, 

Fundargerð ritaði:  Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi.

Dagskrá:

1.  201206077 - Skipulagsstofnun, breyting á legu Þeistareykjalínu og Hólasandslínu við Bakka. Færsla á tengivirki.-beiðni um umsögn
 Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér tillögu Landsnets að breyttri legu Þeistareykjalínu og Hólasandslínu við Bakka og tilheyrandi færslu á tengivirki.
 
Ný staðsetning tengivirkis austan þjóðvegar við Bakka mun að líkindum valda minni umhverfisáhrifum en sú lega sem áður var gert ráð fyrir vestan þjóðvegar.  Loftlínur munu ekki þvera þjóðveg 85 eins og fyrri hugmyndir gerðu ráð fyrir og munu því sjónræn áhrif línanna minnka verulega.  Tilfærsla á línunni sjálfri sunnan þjóðvegar breytir litlu frá fyrri hugmyndum, en hún er þó nokkru styttri og færist lítillega lengra frá nágrönnum á Héðinshöfða sem verður að teljast jákvætt.
 
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur tilfærslu lína og spennivirkis umhverfislega til bóta.  Nefndin telur ekki tilefni til að framkvæmdin skuli háð mati á umhverfisáhrifum.
  
2.  201206088 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Sigríði K. Hjálmarsdóttur f.h. Heiðarbær, veitingar sf.
 Óskað er umsagnar um endurnýjun rekstrarleyfis til sölu gistingar og veitinga að Heiðarbæ.
 
Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið.
  
3.  201105013 - Endurskoðun deiliskipulags miðhafnarsvæðis
 Kynningarferli nýs deiliskipulags fyrir miðhafnarsvæði Húsavíkur er lokið og var athugasemdafrestur gefinn til 6. júlí.
 
Engin athugasemd barst við skipulagstillöguna á kynningartíma.  Þó liggur fyrir ósk Stefáns Guðmundssonar f.h. Hvalaferða ehf um rýmri nýtingarrétt á lóðinni að Hafnarstétt 5 en fyrir liggur í kynntri tillögu.  
 
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að nýtingarhlutfall lóðarinnar að Hafnarstétt 5 verði 0,63 til samræmis við óskir lóðarhafa og er skipulagsráðgjafa falið að færa þá breytingu inn á skipulagsuppdrátt.
 
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við framkvæmda- og hafnanefnd og bæjarstjórn Norðurþings að skipulagstillagan verði samþykkt eins og hún var kynnt með innfærðri ofangreindri smávægilegu breytingu og að undangenginni breytingu aðalskipulags sem kynnt var samhliða deiliskipulagstillögunni.
 
4.  201206066 - Aðalgeir Sævar Óskarsson f.h. gistihúsanna Höfða og Hamrahlíðar, sækir um leyfi fyrir auglýsingaskilti
 Óskað er eftir leyfi til að setja niður laust skilti á trönum til að merkja starfsemi gistihúsa að Höfða og Hamrahlíð.  Skiltið yrði sett niður þar sem áður stóðu Bessastaðir.
 
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á erindið.
  
5.  201207004 - Eigendur e. hæðar Stóragarði 4 sækja um byggingarleyfi fyrir 21 m² geymslu á lóð Stóragarðs 4
 Meðfylgjandi umsókn er rissmynd af fyrirhuguðu húsi.
 
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna fyrirhugaða byggingu fyrir nágranna að Stóragarði 6 og afla umsagnar eldvarnareftirlits.  Byggingarfulltrúa falið að gefa út byggingarleyfi berist ekki athugasemdir við kynninguna og að fengnum fullnægjandi gögnum.
  
6.  201207006 - Eigendur e. hæðar Stóragarði 4 sækja um byggingarleyfi fyrir svalir á íbúðarhúsið
 Fyrir liggur skriflegt samþykki meðeiganda í húsinu, jákvæð umsögn húsafriðunarnefndar og munnlegt samþykki næsta nágranna.  
 
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir byggingu svalanna, enda verði þess gætt að allur frágangur og útlit verði í samræmi við aldur og gerð hússins.  Áður en framkvæmdir hefjast skal umsækjandi skila inn til byggingarfulltrúa umsögn húsafriðunarnefndar um nánari útfærslu á frágangi svalanna.
  
7.  201206072 - Þráinn Gunnarsson óskar eftir leyfi til að breyta gluggum að Brúnagerði 6
 Óskað er eftir leyfi til að breyta gluggum að Brúnagerði 6 skv. meðfylgjandi rissmynd.  Erindið var afgreitt af byggingarfulltrúa 25. júní s.l.
 
Lagt fram til kynningar.
  
8.  201206030 - Norðursigling sækir um stöðuleyfi fyrir söluaðstöðu fyrir ofan Skuld, Húsavík
 Óskað er eftir stöðuleyfi fyrir 2 m² miðasöluaðstöðu í stað núverandi "sendiherra".
 
Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar fellst á stöðuleyfi fyrir fyrirhugaðri aðstöðu til loka október 2012.
 
Soffía leggst gegn leyfi fyrir nýju mannvirki á svæðinu og telur að málið hafi verið fullafgreitt á síðasta fundi. 
  
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:50.

Póstlisti

headerheaderheaderheader