
85. fundur
skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 14. desember 2011 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson,
Hannes Höskuldsson, Gaukur Hjartarson,
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201111042 - Fjárhagsáætlun skipulags- og byggingarnefndar 2012
Bæjarráð ákvað á fundi sínum
þann 8. desember tillögu að rýmkuðum fjárhagsramma fyrir skipulags og byggingarmál (09) árið 2012.
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti tillögu að uppskiptingu nýja rammans á bókhaldsliði.
Skipulags- og byggingarnefnd fagnar auknum fjárveitingum til sviðsins. Leggur nefndin til við bæjarstjórn að fjárhagsáætlun fyrir skipulags-
og byggingarmál verði til samræmis við tillögu skipulags- og byggingarfulltrúa eins og hún var lögð fram.
2. 201111085 - Frá Þingeyjarsveit varðandi Svæðisskipulagsnefnd háhitasvæða í
Þingeyjarsýslum
Óskað er eftir viðræðum við Norðurþing um mögulega breytingu á legu háspennulína
frá Þeistareykjum til Bakka frá því ætlað er í svæðisskipulagi háhitasvæða í Þingeyjarsýslum,
aðalskipulagi Norðurþings og aðalskipulagi Þingeyjarsveitar. Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings leggur til að mögulegar breytingar
svæðisskipulagsins verði ræddar í nýrri samvinnunefnd um svæðisskipulagið.
Hilmar Dúi leggur til að fulltrúar Norðurþings í svæðisskipulagsnefndinni verði Arnþrúður Dagsdóttir og Gaukur
Hjartarson.
Tillaga Hilmars var felld með atkvæðum Jóns, Soffíu, Hannesar og Dóru Fjólu.
Meirihluti skipulags- og byggingarnefndar leggur til við bæjarstjórn að Jón Grímsson og Gaukur Hjartarson verði fulltrúar Norðurþings í
samvinnunefnd um svæðisskipulagið. Hilmar Dúi greiðir atkvæði gegn þessari tilnefningu.
3. 201111039 - Vatnajökulsþjóðgarður, ósk um deiliskipulag í mynni Ásbyrgis
Óskað er eftur aðkomu
Norðurþings að nýju deiliskipulagi í minni Ásbyrgis.
Skipulags- og byggingarnefnd fagnar áhuga á gerð nýs deiliskipulags í minni Ásbyrgis. Fjárhagsleg þátttaka Norðurþings er
háð framlögum til skipulagsmála við frágang fjárhagsáætlunar komandi árs.
Soffía vék af fundi við umfjöllun þessa máls.
4. 201111058 - Sjóböð ehf. ósk um lóð
Óskað er eftir lóð á Húsavíkurhöfða fyrir
sjóböð. Fyrir liggur hugmynd að afmörkun lóðar.
Unnið er að kostnaðarmati vegna breyttrar veglegu út að iðnaðarsvæði á Bakka m.t.t. fyrirhugaðrar uppbyggingar á
Húsavíkurhöfða. Eins og staðan er, er ekki komin niðurstaða í því máli. Skipulags- og byggingarnefnd telur því
ekki forsendur til að ákvarða um lóðarúthlutun á þessu stigi.
5. 201112036 - Trésmiðjan Rein ehf. óskar eftir að lóðin að Víðimóum 14 verði aukin að
lengd
Óskað er eftir að úthlutuð lóð að Víðimóum 14 verði lengd frá því sem gert er
ráð fyrir í deiliskipulagi.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í þessa ósk. Hún stefnir að endurskoðun deiliskipulags iðnaðarsvæðis sunnan
Húsavíkur á nýju ári. Í þeirri vinnu verður tekin endanleg afstaða til lengingar lóðarinnar.
6. 201112022 - Flóki ehf. umsókn um byggingarleyfi fyrir hæð ofaná Uggahús
Ekki er gert ráð fyrir byggingu ofan
á Uggahús í þeirri deiliskipulagstillögu sem er í vinnslu.
Ósk umsækjanda verður tekin fyrir við umfjöllun um deiliskipulagstillöguna í janúar. Óskað er eftir nánari upplýsingum um
hugmyndir lóðarhafa um uppbygginguna fyrir þá umfjöllun.
7. 201112030 - Stefán Þórsson f.h. eiganda Barðahúss, hafnarstéttar 23 á Húsavík, óskar eftir auknum
byggingarétti fyrir húsið
Ekki er gert ráð fyrir byggingu ofan á Barðahús í þeirri deiliskipulagstillögu sem er í vinnslu.
Ósk umsækjanda verður tekin fyrir við umfjöllun um deiliskipulagstillöguna í janúar. Óskað er eftir nánari upplýsingum um
hugmyndir lóðarhafa um uppbygginguna fyrir þá umfjöllun.
8. 201112008 - Vigfús Sigurðsson f.h. eigenda að Uppsalavegi 25 sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við
húsið
Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir 4,4 m² viðbyggingu við bakdyrainngang að Uppsalavegi 25. Meðfylgjandi erindi er teikning
unnin af Per Langsöe Christensen.
Skipulags- og byggingarnefnd telur bygginguna víkja óverulega frá deiliskipulagi og samþykkir að heimila byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi
fyrir framkvæmdinni.
9. 201109052 - Örlygur H. Jónsson, sækir um breytta notkun hússins að Höfða 24b
Erindið var áður til
umfjöllunar á fundi þann 12. október s.l. og var þá skipulags- og byggingarfulltrúa falið að grenndarkynna erindið. Nú liggur
fyrir skriflegt samþykki þeirra nágranna sem fengu grenndarkynningu.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breytta notkun innan lóðarinnar, enda verði skilað inn fullnægjandi teikningum af breytingum hússins til samþykktar
hjá byggingarfulltrúa.
10. 201111036 - Svan Jörgensen óskar eftir leyfi til að breyta stofuglugga að Baughóli 17
Óskað var eftir leyfi til breytinga
á útliti stofuglugga að Baughóli 17.
Erindi var móttekið og samþykkt af byggingarfulltrúa 7. nóvember s.l.
11. 201108007 - Pálsreitur ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir þrjár íbúðir af sex í sambýlishúsi að
Pálsgarði 1
Erindi þetta var endanlega samþykkt af byggingarfulltrúa 30. nóvember 2011.
12. 201112040 - Vegagerðin, ósk um landnúmer lóðar að Tóvegg, Kelduhverfi
Óskað er eftir samþykki fyrir
stofnun lóðar út úr landi Tóveggjar vegna lagnirnar Dettifossvegar.
Skipulags- og byggingarnefnd telur stofnun lóðarinnar til samræmis við stefnu í aðalskipulagi um veglegu og leggur því til við
bæjarstjórn að erindið verði samþykkt.
13. 201112044 - Jón G. Stefánsson óskar eftir samþykki fyrir stofnun leigulóðar undir og umhverfis íbúðarhúsið að
Höfðabrekku
Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun 9.000 m² lóðar undir íbúðarhúsið að
Höfðabrekku í Kelduhverfi. Meðfylgjandi umsókn er teikning af hnitsettri afmörkun lóðarinnar unnin af Guðmundi H Gunnarssyni hjá
Búgarði á Akureyri.
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á stofnun lóðarinnar fyrir sitt leiti og leggur til við bæjarstjórn að hún samþykki lóðarstofnun
að fengnu samþykki annara landeigenda að óskiptu landi Keldunesbæja.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30



