Skipulags- og byggingarnefnd

Skipulags- og byggingarnefnd 74. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 9. mars 2011 og

Skipulags- og byggingarnefnd

74. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 9. mars 2011 og hófst hann kl. 13:00


Fundinn sátu:
Soffía Helgadóttir, Guðlaug Gísladóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Unnur Katrín Bjarnadóttir, Gaukur Hjartarson,

Fundargerð ritaði:  Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Dagskrá:

1.  201103005 - Neyðarlínan hf. óskar eftir byggingarleyfi fyrir fjarskiptamastur og tækjahús á Húsavíkurfjalli
 Neyðarlínan ehf og Fjarskipti ehf óska eftir 400 m² lóð undir fjarskiptamastur og aðstöðuhús á Húsavíkurfjalli.  Jafnframt er óskað eftir byggingarleyfi fyrir 30 m háu stálgrindarmastri og 8,7 m² aðstöðuhúsi.
 
Í kafla 23.22.4 í gildandi aðalskipulagi segir m.a. "Fjarskiptamöstur sem eru innan við 30 m há og fjarkskiptamannvirki sem rúmast innan 300 fm lóðar eru heimil á landbúnaðarsvæðum, óbyggðum svæðum og opnum svæðum til sérstakra nota, iðnaðarsvæðum, athafnasvæðum og verslunarsvæðum ef unnt er að sýna fram á í deiliskipulagi að mannvirkin rýri ekki umhverfisgæði verulega.  Sveitarstjórn getur heimilað slík mannvirki án deiliskipulags, að undangenginni grenndarkynningu ef einsýnt er að það hafi ekki áhrif á hagsmuni annara landeiganda eða aðra landnotkun.
 
Norðurþing er landeigandi á Húsavíkurfjalli.  Ekki verður séð að fyrirhuguð mannvirki rýri umhverfisgæði verulega enda umrætt mastur af svipaðri hæð og það mastur sem þegar stendur á fjallinu.  Ekki verður heldur séð að umrætt mannvirki hafi umtalsverð áhrif á aðra landnotkun á Húsavíkurfjalli.
 
Skipulags- og byggingarnefnd leggur því til við sveitarstjórn að umsækjendum verði veitt lóð til samræmis við umsóknina og jafnframt veitt byggingarleyfi fyrir þeim mannvirkjum sem óskað er eftir.
 
   
2.  201102092 - Sigmar P. Mikaelsson sækir um byggingarleyfi fyrir garðhús á lóðinni að Holtagerði 16
 Fyrir liggur rissmynd af 12 m² húsi og skriflegt samþykki nágranna.
 
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.
   
3.  201102085 - Benedikt Kristjánsson f.h. Norðlenska sækir um leyfi til að setja iðnaðarhurð norðan á sláturhúsið
 Meðfylgjandi umsókn er rissmynd af fyrirhuguðum breytingum.
 
Skipulags- og byggingarfulltrúi samþykkti erindið 22. febrúar s.l.
 
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við þá afgreiðslu.
   
4.  201009089 - Steinunn Sigurjónsdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við frístundahúsið að Laxárlundi 3
 Erindið var áður tekið fyrir á fundi skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings þann 13. október s.l. og þá synjað á þeim grundvelli að fyrirhugað hús væri ekki í samræmi við deiliskipulag svæðisins.
 
Umsækjandi óskar nú endurupptöku málsins og skilar nú inn skriflegu samþykki næstu nágranna og fulltrúa landeigenda fyrir fráviki frá deiliskipulagi.
 
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 14:00




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya