
73. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 15. febrúar 2011 og hófst hann kl. 13:00
Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Guðlaug Gísladóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Hilmar Dúi Björgvinsson, Gaukur
Hjartarson,
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
1. 201102048 - Ný samþykkt um gatnagerðar og þjónustugjöld í
Norðurþingi
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti tillögu að nýrri samþykkt um gatnagerðargjald, stofngjald holræsa,
byggingarleyfisgjald, gjöld vegna skipulagsvinnu auk afgreiðslu- og þjónustugjalda. Tillagan innifelur óverulegar breytingar á eldri gjaldskrá
frá desember 2007, nema hvað skilgreind er í galdskránni gjaldtaka vegna skipulagsvinnu skv. heimild í 20. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leiti og vísar henni til umfjöllunar í framkvæmda- og hafnanefnd og síðan til
bæjarstjórnar.
2. 201102047 - Deiliskipulög
Rætt var um forgang verkefna við deiliskipulagsgerð í Norðurþingi.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að hefja undirbúning að deiliskipulagsvinnu svæðis milli Útgarðs og
Pálsgarðs. Jafnframt er skipulags- og byggingarfulltrúa falið að hefja undirbúning að endurskoðun deiliskipulags miðhafnarsvæðis og
suðurhafnar.
3. 201102046 - Almar Eggertsson hjá Faglausn ehf. f.h. Gentle Giants, óskar eftir breytingu á deiliskipulagi
hafnarsvæðis
Óskað er eftir að skipulags- og byggingarnefnd samþykki breytingu á byggingarrétti lóðarinnar að
Hafnarstétt 7. Meðfylgjandi erindi er ófullgerð teikning af húsi sem lóðarhafi hefur áhuga á að byggja á lóðinni en
fellur ekki að gildandi deiliskipulagi.
Ákveðið hefur verið að hefja endurskoðun deiliskipulags miðhafnarsvæðis þar sem tillaga lóðarhafa verður til skoðunar. Nefndin
frestar því afgreiðslu erindisins.
4. 201101092 - Byggingarskýrsla Norðurþings 2010
Byggingarfulltrúi kynnti byggingarskýrslu Norðurþings fyrir
árið 2010.
Engar athugasemdir gerðar.
5. 201101048 - Sveinn Hreinsson f.h. eignasjóðs Norðurþings sækir um leyfi til að rífa húsið Stafnes á
Raufarhöfn.
Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu erindisins til næsta fundar.
6. 201101022 - Veitingahúsið Setberg ehf. sækir um leyfi til að setja tvo nýja glugga á neðri hæð Sölku að Garðarsbraut
6
Meðfylgjandi erindi eru teikningar af breytingu hússins og umsögn Húsafriðunarnefndar.
Skipulags- og byggingarfulltrúi veitti leyfi fyrir framkvæmdinni með bréfi dags. 17. janúar 2011.
Skipulags- og byggingarnefnd gerir ekki athugasemdir við þessa afgreiðslu.
7. 201102049 - Björn Jóhannsson f.h. eigenda að Héðinsbraut 4, óskar eftir samþykki fyrir fjölgun
fasteigna.
Meðfylgjandi erindi eru teikningar af húsinu unnar af Birni Jóhannssyni.
Fyrir liggur umsögn eldvarnareftirlits Norðurþings dags. 14. febrúar 2011.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið með þeim fyrirvara að skilað verði inn til byggingarfulltrúa fullnægjandi brunavarnaruppdrætti skv.
gr. 18.7 í byggingarreglugerð nr. 441/1998. Uppdrátturinn skal sýna skiptingu byggingarinnar í brunasamstæður og brunahólf ásamt
öðrum atriðum er lúta að brunavörnum í tilvísaðri grein.
8. 201102056 - Árni Hilmarsson óskar eftir endurskoðun á skráningu fasteigna að Ástjörn
Óskað er eftir
samþykki fyrir breyttri skráningu fasteigna að Ástjörn þannig að hús verði skráð sem frístundahús í stað
atvinnuhúsnæðis.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt, enda samræmast bæði byggingar og notkun þeirra
frístundahúsanotkun.
9. 201101072 - Alþingi, ósk um umsögn v/breytinga á skipulagslögum, 113. mál
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings
hefur kynnt sér frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum nr. 123/2010, þingskjal 122 - 113. mál.
Nefndin telur framlagðar breytingar til bóta og veitir því jákvæða umsögn um frumvarpið.
10. 201101018 - Trésmiðjan Rein ehf. f.h. eigenda Skúlagarðs sækir um leyfi til innri breytinga á
húsnæðinu
Málið var áður til umfjöllunar á fundi nefndarinnar í janúar s.l.
Nú hafa borist frekari teikningar af fyrirhuguðum breytingum unnar af Arnhildi Pálmadóttur arkitekt. Fram kemur í byggingarlýsingu að unnið sé að brunahönnun og hönnun sjálfvirks brunaviðvörunarkerfis.
Kjallari hússins er ekki sýndur á teikningum og því ekki brunahólfun hans frá öðrum rýmum.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir ósk um breytingar enda verði skilað inn til byggingarfulltrúa fullnægjandi endanlegum teikningum, þ.m.t. brunahólfun kjallara, brunaviðvörunarkerfi og stærðarskráningartöflu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30



