skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
mánudaginn 26. apríl 2010 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Hannes Höskuldsson, Gunnar Bóasson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Gaukur Hjartarson, Arnar Sigurðsson,
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
|
200801042 - Aðalskipulag Norðurþings |
||
|
|
Borist hefur umsögn Skipulagsstofnunar vegna tillögu að aðalskipulagi Norðurþings.
Skipulags- og byggingarfulltrúi fór yfir tillögu að viðbrögðum við umsögn stofnunarinnar og breytingum á aðalskipulagstillögunni.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að skipulagstillögunni verði breytt til samræmis við tillöguna.
Skipulags- og byggingarfulltrúi lagði til að gildistímaafmörkun skipulagstillögunnar verði breytt til þess að vera 2010-2030 (úr 2009-2029).
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að sú breyting verði samþykkt. |
|
|
|
|
|
|
2. |
201003042 - Samþykkt um skilti í Norðurþingi |
|
|
|
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti breytta tillögu að samþykkt um skilti í Norðurþingi. Gerðar voru breytingar á tillögunni
Skipulags- og byggingarnefnd óskar umsagnar framkvæmda- og þjónustunefndar um tillöguna eins og hún liggur fyrir. |
|
|
|
|
|
|
3. |
201003113 - Sigrún Kristjánsdóttir f.h. Safnahússins á Húsavík sækir um leyfi fyrir auglýsingaskiltum |
|
|
|
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á eftirfarandi merkingar/skilti fyrir safnahúsið umfram þau sem fyrir liggja: 1. Skilti á ljósastaur við Garðarsbraut framan bókaverslunar sem merkir akstursstefnu um Stóragarð að Safnahúsi. Skv. tillögu að vinnureglum um skilti er hámarksstærð skiltis 60x60 cm. 2. Skilti á skiltastand við Stóragarð austan Íslandsbanka.
Ekki er fallist á leyfi fyrir umsótt skilti utan á Flókahús á hafnarsvæði eða Stangarbakka. Nefndin telur einnig ofgert að merkja aksturleið að safnahúsi um Vallholtsveg. |
|
|
|
|
|
|
4. |
201004032 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitinga til handa Ernu Óladóttur |
|
|
|
Á samþykktum teikningum af húsinu eru ekki sýnd rými til gistingar á neðri hæð hússins. Skipulags- og byggingarnefnd veitir því neikvæða umsögn um sölu gistingar á neðri hæð hússins. |
|
|
|
|
|
|
5. |
201004065 - Tjörneshreppur óskar eftir umsögn um tillögu að aðalskipulagi sveitarfélagsins |
|
|
|
Óskað er umsagnar Norðurþings um nýtt aðalskipulag Tjörneshrepps. Erindi þar að lútandi barst 23. apríl og óskað umsagnar fyrir 1. maí. Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings getur ekki skilað af sér umsögn á svo skömmum tíma en stefnir á að koma athugasemdum Norðurþings við skipulagstillöguna fyrir 21. maí n.k.
|
|
|
|
|
|
|
6. |
201004066 - Gentle Giants-Hvalaferðir ehf. sækja um stöðuleyfi fyrir léttri byggingu á þaki björgunarsveitarhúss |
|
|
|
Skv. deiliskipulagi er gert ráð fyrir byggingu ofan á þaki hússins. Því brýtur byggingin ekki í bága við gildandi deiliskipulag. Fyrir liggur skriflegt samþykki húseiganda.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að umsækjanda verði veitt stöðuleyfi fyrir húsinu til 1. júní 2013. Leyfið fellur úr gildi án uppsagnar af hálfu sveitarfélagsins á þeim degi. |
|
|
|
|
|
|
7. |
201004075 - Örlygur Hnefill Örlygsson f.h. Gistiheimilis Húsavíkur ehf. sækir um leyfi til að setja upp leiðbeiningarmerki á ljósastaura |
|
|
|
Óskað er eftir samþykki fyrir tveimur skiltum á skilgreinda ljósastaura við Laugarbrekku.
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á erindið. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00



