61. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, þriðjudaginn 13. apríl 2010 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Hannes Höskuldsson, Gunnar Bóasson, Benedikt Kristjánsson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Gaukur Hjartarson,
Fundargerð ritaði: Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi
Dagskrá:
|
1. |
200801042 - Aðalskipulag Norðurþings |
|
|
Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti að enn hefur ekki borist samþykki Skipulagsstofnunar fyrir auglýsingu aðalskipulagstillögu Norðurþings. |
||
|
|
||
|
2. |
201003035 - Rammaáætlun um vernd og nýtingu náttúrusvæða með áherslu á vatnsafl og jarðhitasvæði |
|
|
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér skýrslu um niðurstöður faghópa rammaáætlunar. Skipulags- og byggingarnefnd gerir engar athugasemdir við skýrsluna. |
||
|
|
||
|
3. |
201004002 - Mannvit, ósk um umsögn vegna aðalskipulags Þingeyjarsveitar |
|
|
Óskað er umsagnar um drög að aðalskipulagi Þingeyjarsveitar. Meðfylgjandi erindi eru uppdrættir og greinargerð. Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér skipulagstillöguna og óskar að koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum: 1. Skipulags- og byggingarnefnd telur sveitarfélagamörk um sumarbústaðasvæði og flugvöll í Aðaldal ekki í samræmi við þau mörk sem eigendur Laxamýrar telja rétt og hafa verið færð inn á aðalskipulagstillögu Norðurþings sem nú er í kynningarferli. 2. Skipulags- og byggingarnefnd telur landamerki Þverár í Reykjahverfi við Árbót og Núpa í Aðaldal ranglega innfærð á uppdrátt sbr. athugasemdir Þingeyjarsveitar við aðalskipulag Norðurþings dags. 25. janúar 2010. 3. Skipulags- og byggingarnefnd fellst ekki á landamerki sem dregin eru um Jónsnípu og Höfuðreiðarmúla á skipulagsuppdrátt sbr. afgreiðslu nefndarinnar á athugasemd Þingeyjarsveitar frá 25. janúar 2010. 4. Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur landamerki Þeistareykjalands og Ásheiðar rangt dregin um Gjástykki miðað við þinglýst landamerkjabréf Áss. Að öðru leiti sér skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings ekki tilefni til athugasemda við skipulagstillöguna að svo stöddu. |
||
|
|
||
|
4. |
201003031 - Tillaga að verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs ásamt viðaukum, unnin af Náttúrustofu N-austurlands |
|
|
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér tillögu að verndaráætlun norðursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs. Nefndin telur skýrsluna vel unna en vill þó koma eftirfarandi athugasemdum og ábendingum á framfæri: 1. Í töflu 2.3 hefur gleymst að tilgreina aðalskipulag Kelduneshrepps 1995-2007 sem gildrar skipulagsáætlunar innan þjóðgarðs. 2. Skipulagssvæði Svæðisskipulags háhitasvæða í Þingeyjarsýslum 2007-2025 spannar hluta þjóðgarðsins en skipulagsins er ekki getið. 3. Í kafla 5.2 er umfjöllun um lúpínusvæði við Ásbyrgi. Ekki verður annað séð en umfjöllunin gangi út frá eyðingu lúpínu utan þjóðgarðsmarka sem nefndin telur ekki viðeigandi í verndaráætlun þjóðgarðsins. 4. Í kafla 5.4c er fjallað um þjónustusvæði við gatnamót Dettifossvegar (862) og aðkomuvegar að bílastæðum við Dettifoss (886). Ekki er gert ráð fyrir þjónustusvæði á þessum stað í gildu aðalskipulagi eða tillögu að aðalskipulagi sem nú er í kynningarferli. Engin ósk um skilgreiningu þjónustusvæðis á þessum stað hefur borist Norðurþingi. Sérstaklega skal bent á að þarna er ekki um að ræða aðkomu að þjóðgarðinum eins og sagt er í texta. 5. Í kafla 6.2b er tilgreint að vegir hálendissvæðisins verði ekki uppbyggðir. Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur heppilegra að gera ráð fyrir uppbyggðum vegum þar sem þess er kostur. Það myndi tryggja öruggari og greiðari leiðir gesta þjóðgarðsins, sérstaklega ef veður og færð versnar skyndilega. 6. Í kafla 6.2b er fjallað um ræktun (trjárækt, uppgræðsla) á "jaðri" þjóðgarðsins. Mikilvægt er að það sé skýrt að þarna er eingöngu verið að fjalla um svæði innan þjóðgarðs. 7. Í kafla 6.5a er fjallað um útrýmingu lerkis á söndunum norðan Ásbyrgis. Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings minnir á að umrædd lerkitré standa utan þjóðgarðs og ekki viðeigandi að verndaráætlun þjóðgarðsins fjalli um útrýmingu þeirra. Á svæðinu á sér stað áhugaverð og æskileg gróðurframvinda og telur nefndin enga þörf á að fjarlægja umrædd lerkitré. 8. Í kafla 6.6 er enn umfjöllun um eyðingu alaskalúpínu utan þjóðgarðsmarka sem nefndin telur ekki viðeigandi. 9. Í töflu 8.1 er fjallað um umferð um Dettifossveg (nr. 862). Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur mikilvægt að ekki verði sett sérstök ákvæði um hámarkshraða um veginn, heldur skuli gilda þar almennar reglur um umferðarhraða á þjóðvegum landsins. Ennfremur leggst nefndin eindregið gegn takmörkunum á þungaflutningum um veginn, enda vandséð að sá takmarkaði flutningur að og frá svæðinu sem líklegt er að muni fara um Dettifossveg skerði að neinu upplifun gesta þjóðgarðsins. 10. Í töflu 8.1 kemur ítrekað fram að ár skuli ekki brúaðar eða sett ræsi. Æskilegt að ár verði brúaðar á sem flestum þeim leiðum sem opnar verði almennri umferð. Á það skal minnt að annað meginmarkmið Vatnajökulsþjóðgarðs er að gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru svæðisins. 11. Í kafla 9.1 er nauðsynlegt að umorða setningu sem hefst á orðunum "Á vaxandi dögum þéttbýlis og áreitis...". 12. Í kafla 9.3h er minnst á berjatínslu innan Þjóðgarðs, en ekki skýrt hvort almenn berjatínsla skal heimil. Nefndin leggur til að berjatínsla til heimilisnota verði almennt heimiluð innan þjóðgarðs. 13. Í kafla 9.3i er talað um kajak- og flúðasiglingar. Ekki er skýrt hvað er heimilt í þeim efnum og hvar má komast að ánni með báta. 14. Í kafla 11.5e er fjallað um skála í eigu Gæsavatnafélagsins við Gæsavötn. Minnt skal á að skálinn er byggður í leyfi sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar fyrir daga þjóðgarðsins. Hann hefur staðið gestum opinn meðan húsrúm leyfir og verður að teljast mikilvægur sem neyðarskýli, enda vel búinn búnaði. Mikilvægt er að verndaráætlun taki tillit til eignarréttar Gæsavatnafélagsins á skálanum og þess starfs sem félagsmenn hafa unnið á svæðinu í formi landgræðslu, slóðamerkinga, vöktunar svæðis o.fl. |
||
|
|
||
|
5. |
201004004 - Sigurður Þórarinsson sækir um leyfi til að breyta gömlu fjósi í kjötvinnslu |
|
|
Meðfylgjandi erindi eru teikningar unnar af Kristjáni Þórarinssyni. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið að því tilskildu að umsækjandi skili inn skriflegu samþykki heilbrigðis- og vinnueftirlits. |
||
|
|
||
|
6. |
201003093 - Sólrún Hansdóttir f.h. Hlíðskjálf ehf. sækir um leyfi fyrir breyttri starfsemi Garðarsbrautar 7 úr verslun í kaffihús |
|
|
Fyrir liggur rissmynd af breyttu skipulagi jarðhæðar hússins. Fyrir liggur samþykki meðeiganda í húsinu og eiganda aðliggjandi eignar að Garðarsbraut 9. Fyrir liggur umsögn slökkviliðsstjóra. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið, enda verði fullnægt kröfum slökkviliðsstjóra og framvísað samþykki heilbrigðis- og vinnueftirlits. |
||
|
|
||
|
7. |
201003042 - Samþykkt um skilti í Norðurþingi |
|
|
Skiltasamþykktin rædd. Nefndin frestar afgreiðslu hennar til næsta fundar. |
||
|
|
||
|
8. |
201003113 - Sigrún Kristjánsdóttir f.h. Safnahússins á Húsavík sækir um leyfi fyrir auglýsingaskiltum |
|
|
Óskað er eftir leyfi til að setja skilti með merkingum Safnahússins á eftirfarandi staði: 1. 3-4 m² skilti á hlið Flókahúss. 2. 2-3 skilti á ljósastaura á leiðinni frá Garðarsbraut um Stóragarð að Safnahúsi. 3. 2-3 skilti á ljósastaur á leiðinni frá Garðarsbraut um Valholtsveg að Safnahúsi. 4. Upplýsingaskilti við bæjarmörk að sunnaverðu eða við verbúðarþak.
Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu erindisins þar til skiltasamþykkt hefur verið afgreidd. |
||
|
|
||
|
9. |
201003004 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Sólrúnu Hansdóttur f.h. Hliðskjálfar ehf. |
|
|
Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði skilyrði sem fram koma við samþykki fyrir breyttri notkun uppfyllt sbr. 6. lið hér að ofan. |
||
|
|
||
|
10. |
201004040 - Erindi frá Sveini Hreinssyni f.h. Norðurþings um leyfi til breytinga á Flókahúsi |
|
|
Óskað er eftir leyfi til útlitsbreytinga á Flókahúsi á Hafnarstétt skv. meðfylgjandi teikningu. Skipulags- og byggingarnefnd fellst á útlitsbreytingu hússins. Það skal áréttað að þar með hefur nefndin ekki samþykkt breytta starfsemi í húsinu eða áframhaldandi stöðuleyfi þess. |
||
|
|
||
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30



