Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings 80. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, miðvikudaginn 10.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings

80. fundur skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings
haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 10. ágúst 2011 og hófst hann kl. 13:00


Fundinn sátu:
Jón Grímsson, Soffía Helgadóttir, Guðlaug Gísladóttir, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Áki Hauksson, Gaukur Hjartarson,

Fundargerð ritaði:  Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

Dagskrá:

1.  201107006 - Umhverfisráðuneyti óskar eftir umsögn um nýja skipulagsreglugerð
 Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér drög að reglugerð um landsskipulagsstefnu dags. 4. júlí 2011 sem til kynningar er af hálfu Umhverfisráðuneytis.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings bendir á að ekki koma fram skýr fyrirmæli í reglugerðardrögunum um að landskipulag skuli taka mið af fyrirliggjandi skipulagsáætlunum sveitarfélaga eftir því sem kostur er (sbr. t.d. ákvæði 2 mgr. 11. gr. um skipulagsstefnu fyrir miðhálendi). Úr þessu þyrfti að bæta. Nefndin gerði samsvarandi athugasemd við drög að skipulagslögum enda augljóslega verið að færa skipulagsvald frá sveitarfélögum til ríkis.

Skýrari ákvæði þyrftu að vera um hverjir geti átt aðild að samráðsvettvangi skv. 6. gr. Svo virðist sem nánast hvaða aðili sem er geti "keypt" sér aðgang að þessum vinnuhópi.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur að sveitarfélög eigi að hafa meira vægi í ráðgjafanefnd skv. 3. gr. en reglugerðardrögin gerir ráð fyrir. Nefndin telur eðlilegt að sveitarfélögin eigi að lágmarki 2 fulltrúa af þeim 7 sem lögin gera ráð fyrir.

Að öðru leiti gerir skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings ekki athugasemdir við reglugerðardrögin.


   
2.  201106006 - Umhverfisráðuneyti, ósk um umsögn um drög að reglugerð um framkvæmdaleyfi
 Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér drög að reglugerð um framkvæmdaleyfi dags. 11. maí 2011 sem til kynningar eru af hálfu Umhverfisráðuneytis.
 
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur nauðsynlegt að sett verði viðmiðunarmörk á framkvæmdaleyfisskyldu verkþátta sem tilgreindir eru í 4. gr. s.s. gatnagerð innan þéttbýlis, endurnýjun vega utan þéttbýlis, efnistaka og trjárækt.
 
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings gerir að öðru leyti ekki athugasemd við reglugerðardrögin.
   
3.  201106004 - Umhverfisráðuneyti, ósk um umsögn um vinnudrög að nýrri byggingarreglugerð
 Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings hefur kynnt sér drög að nýrri byggingarreglugerð dags. 25. maí 2011 sem til kynningar er af hálfu Umhverfisráðuneytis.
 
a)  Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings telur viðmiðunarstærð leyfisskildra skilta upp á 0,5 m² of þrönga sbr. 1. mgr. gr. 2.5.1.  Eðlilegt væri að húseigendur hefðu heimild til að setja allt að 2 m² skilti innan lóðar án formlegs samþykkis.  Jafnframt þyrfti að koma fram takmörkun á fjölda skilta eða heildarflatarmál skilta innan lóðar.  Eins væri eðlilegt að skýrt væri hvort auglýsingafánar féllu undir skilgreiningu um skilti. 
 
b)  Heimild fyrir tímalengd stöðuleyfi báta (gr. 2.6.4) er óþarflega þröng.  Mælt er með að byggingarfulltrúi geti gefið allt að 6 mánaða stöðuleyfi fyrir bát utan skipulagðra geymslusvæða.  Til álita kæmi að heimila byggingarfulltrúa að samþykkja stöðuleyfi til allt að 6 mánaða fyrir hjólhýsi, gáma, báta og torgsöluhús.
 
c)  Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings leggur til að skilgreind verði kvöð um neyðarlýsingu í töfluherbergi skv. gr. 6.13.4.
 
d)  Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings leggur til að skilyrt verði í gr. 14.3.3 að gólfniðurfall skuli vera í rými tengigrindar (gr. 14.3.3).
 
e)  Endurskoða þyrfti orðalag 5 mgr. greinar 14.5.10 um lágmarkshita kyrrstæðs vatns í neysluvatnslögn þannig að skýrt verði við hvað er átt.
 
Að öðru leiti gerir skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings ekki athugasemdir við reglugerðardrögin.
   
4.  201108006 - Pálsreitur ehf. sækir um lóð að Pálgarði 1
 Pálsreitur ehf óskar eftir úthlutun lóðarinnar að Pálsgarði 1 skv. samþykktu deiliskipulagi.
 
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að Pálsreit ehf verði úthlutað lóðinni.
   
5.  201106052 - Norðursigling ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir auglýsingarskiltum
 Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti bréf Logos lögmannsþjónustu til Norðurþings dags. 22. júlí 2011 þar sem lýst er ágöllum á málsmeðferð þegar farið var fram á að skilti sem sett voru upp í leyfisleysi af Norðursiglingu á lóð Norðurþings að Hafnarstétt 17 á Húsavík. Ennfremur kemur fram í bréfinu að Norðursigling hefði talið sig í góðri trú með að skiltin væru í samræmi við samþykkt sveitarfélagsins um skilti.

Ennfremur var kynnt minnisblað frá rekstrarstjóra Norðursiglingar dags. 10. ágúst 2011.

Norðursiglingu hefur ítrekað verið gerð grein fyrir þeim vinnureglum sem sveitarfélagið hefur sett sér um skilti og var fyrirtækinu ítrekað boðið að koma sínum sjónarmiðum um skiltamerkingar á framfæri við skipulags- og byggingarnefnd. Sú skiltasamþykkt Norðurþings var sett í gildistíma eldri skipulags- og byggingarlaga nr 73/1997 sem tilslakandi ákvæði við þágildandi byggingarreglugerð. Logos bendir réttilega á að þau lög um mannvirki sem tóku gildi um s.l. áramót innihalda ekki sambærileg ákvæði um heimildir sveitarfélaga til að setja reglur um auglýsingaskilti og fyrri lög og því vafasamt að skiltasamþykktin sem vísað er til hafi lagalegt gildi.

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings lítur því svo á að skilti þau sem Norðursigling setti upp á smáhýsi sitt ofan á þaki verbúða Norðurþings án samþykkis lóðarhafa lúti ákvæðum 9 gr. laga um mannvirki nr. 160/2011. Þar kemur m.a. fram í 1. mgr. að "Óheimilt er að grafa grunn fyrir mannvirki, reisa það, rífa eða flytja, breyta því, burðarkerfi þess eða lagnakerfum eða breyta notkun þess, útliti eða formi nema að fengnu leyfi viðkomandi byggingarfulltrúa".

Ekki var sótt um leyfi fyrir umræddum skiltum, hvorki hjá byggingarfulltrúa né lóðarhafa.
   
6.  201107010 - Gunnar Bóasson og Friðrika Guðjónsdóttir óskar eftir leyfi fyrir breytingum á Túngötu 5, Húsavík
 Málið var áður til umfjöllunar á fundi nefndarinnar 13. júlí s.l.  Umsækjandi hefur nú lagt fram undirskrifað samþykki nágranna fyrir breytingum á húsinu.
 
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir breytingarnar fyrir sitt leiti og felur byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi fyrir breytingum á húsinu þegar fullnægjandi gögn þar að lútandi hafa borist.
   
7.  201107020 - Siglingadeild Völsungs-Ósk um stöðuleyfi fyrir hús Siglingadeildar Völsungs við Slippinn
 Skipulags- og byggingarnefnd fellst á stöðuleyfi fyrir umræddu mannvirki til eins árs.
 
Ákvarðanir um varanlega staðsetningu verða teknar á grundvelli deiliskipulags þegar það verður til endurskoðunar.
   
8.  201105075 - Pétur Pétursson óskar eftir leyfi til að reisa garðhýsi að Baughól 33
 Erindið var áður til umfjöllunar á fundi nefndarinnar í júní og þá ákveðið að grenndarkynna það nágranna að Baughóli 31C.  Fyrir liggur undirskrifað samþykki annara nágranna.
 
Með bréfi dags. 12. júlí komu nágrannar athugasemd á framfæri.  Þar leggjast þeir gegn byggingu hússins þar sem stærð þess og staðsetning hindri útsýni þeirra af sinni lóð og skerði þannig þau lífsgæði sem þau hafa búið við til fjölda ára.
 
Áki Hauksson vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.
 
Um er að ræða lítið (7,2 m²) og lágreist (mesta hæð 2,7 m) garðhús sem eðlilegt sé að lóðarhafi fái leyfi til að byggja á sinni lóð skerði það ekki umtalsvert hagsmuni nágranna.  Skipulags- og byggingarnefnd hefur skoðað aðstæður á byggingarstað.  Nefndin telur að húsið skerði aðeins óverulega útsýn af lóð Baughóls 31C enda húsið lágreist og lóðin að Baughóli 33 um einum metra lægri í landi en lóðin að Baughóli 31C auk þess sem gólfhæð húss að Baughóli 31C er nokkuð (um 40 cm) yfir lóðarhæð.  Nefndin tekur því ekki undir þau sjónarmið nágranna að lífsgæði þeirra skerðist umtalsvert við fyrirhugaða byggingu.
 
Skipulags- og byggingarnefnd fellst á byggingu garðhússins enda verði það að lágmarki 3 m frá lóðarmörkum að Baughóli 31C.  Gólfhæð hússins verði að hámarki 15 cm yfir núverandi meðalyfirborðshæð jarðvegs á grunnstæði þess.
   
9.  201107013 - Almar Eggertsson óskar eftir leyfi fyrir breytingum á tveimur gluggum að Brúnagerði 1, Húsavík
 Óskað er eftir leyfi fyrir breytingum á gluggum að Brúnagerði 1 skv. meðfylgjandi rissmynd.
 
Erindið var móttekið og samþykkt af embætti byggingarfulltrúa 16. júlí 2011.
   
10.  201106030 - Rarik ohf. sækir um leyfi til að gera nýjar dyr út úr spennistöð á neðstu hæð frystihúss Vísis hf.
 Rarik óskar eftir leyfi til breytinga á húsnæði Vísis, frystihúsi á Húsavík.  Um er að ræða útlitsbreytingar þar sem sett verður tvöföld hurð út úr spennistöðinni út í port.  Fyrir liggur samþykki húseiganda.
 
Erindið var móttekið og samþykkt af embætti byggingarfulltrúa 1. júlí 2011.
   

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:15




Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya