
48. fundur sveitarstjórnar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 21. desember 2010 og hófst hann kl. 16:15
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Stefánsson, Jón Grímsson, Hólmfríður Soffía Helgadóttir, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Helgi Björnsson, Olga
Gísladóttir, Þráinn Guðni Gunnarsson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Sigríður Valdimarsdóttir, Bergur Elías Ágústsson,
Guðbjartur Ellert Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill sveitarstjóra
Dagskrá:
1. 201011010F - Byggðarráð Norðurþings - 136
Fundargerð 136. fundar byggðarráðs Norðurþings
afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.
Fundargerðin staðfest með umræðu um liði 1.1., 1.5. og 1.14.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu.
1.1. 201011085 - Eignarhaldsfélagið Fasteign hf, hluthafafundur þriðjudaginn 7. desember 2010
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Bergur og Gunnlaugur
1.2. 201011086 - Samgönguráðuneyti,Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga-Niðurstaða ársreikninga 2009
1.3. 201010094 - Þjónustusamningur um símaþjónustu fyrir Norðurþing
1.4. 201011084 - Umhverfisnefnd Alþingis, ósk um umsögn vegna frumvarps um meðhöndlun úrgangs
1.5. 201006094 - Hitaveita Öxarfjarðarhéraðs
Til máls tók: Bergur
1.6. 201011080 - 781. fundargerð stjórnar Sambands ísl. sveitarfélaga
1.7. 201011070 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn vegna þingsályktunartillögu varðandi orkunýtingu í
Þingeyjarsýslum, 102. mál
1.8. 201011069 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn vegna þingsályktunartillögu um atvinnuuppbyggingu og orkunýtingu í
Þingeyjarsýslum
1.9. 201011067 - Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, ósk um styrk
1.10. 201011066 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn
1.11. 201011050 - 218. fundur stjórnar Eyþings
1.12. 201011003 - Ósonering í Sundlaug Húsavíkur
1.13. 201001003 - Félagsleg ráðgjöf
1.14. 201011088 - Skipulagsstofnun ríkisins-Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum vegna stóriðju á Bakka
Til máls tóku: Jón Helgi og Gunnlaugur.
Eftirfarandi er tillaga að bókun sveitarstjórnar:
Sveitarstjórn Norðurþings fagnar því að sameiginlegu umhverfismati vegna stóriðju á Bakka skuli vera lokið. Því skal
haldið til haga að sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum hafa á annan áratug unnið að því að efla atvinnustig í
héraði þar sem megin markmiðið hefur verið að örva hagvöxt og bæta lífsskilyrði íbúa í Þingeyjarsýslum.
Nýting þeirrar miklu orku sem er þar að finna mun án efa skipta verulegu máli fyrir framtíð svæðisins.
Staðan í dag, eftir langa baráttu er sú að sameiginlegu umhverfismati er lokið, skipulag háhitasvæða í Þingeyjarsýslum er
lokið, mikil nýtanleg orka hefur verið staðfest með rannsóknum, skipulag iðnaðarsvæða er lokið og því fátt til
fyrirstöðu annað en að ganga til samninga við orkukaupanda, einn eða fleiri.
Sveitarstjórn Norðurþings telur ákaflega mikilvægt að Landsvirkjun og ríkisstjórn taki höndum saman um að ljúka samningum um
uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum sem allra fyrst. Þannig að á svæðinu skapist störf fyrir fólk og
fyrirtæki.
Sveitarstjórn fer jafnframt fram á það að stjórnvöld leggi ekki fleiri steina í götu uppbyggingar orkufreks iðnaðar í
Þingeyjarsýslum.
Tillagan samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.
2. 201011011F - Félags- og barnaverndarnefnd Norðurþings - 19
Fundargerð 19 fundar féalgs- og barnaverndarnefndar Norðurþings
afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
2.1. 201011089 - Reglur um aðstoð til greiðslu lögmannskostnaðar í barnaverndarmálum
2.2. 201009023 - Fjárhagsáætlun Norðurþings 2010 - 2011
3. 201012001F - Framkvæmda- og þjónustunefnd Norðurþings - 33
Fundargerð 33. fundar framkvæmda- og
þjónustunefndar afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.
Fundargerðin staðfest án umræðu.
3.1. 201012018 - Fjárhagsáætlun framkvæmda- og þjónustunefndar
3.2. 201011090 - Umhverfisráðuneyti, ósk um upplýsingar varðandi hreinsun stranda og ástand þeirra
3.3. 201011028 - Erindi frá Rúnari Óskarssyni, varðandi tengingu Smiðjuteigs við þjóðveg í Reykjahverfi
3.4. 201012017 - Götulýsing, möguleg hagræðing
3.5. 201012019 - Húsnæðisnefnd Norðurþings/Eignasjóður - rekstur
4. 201012002F - Hafnanefnd Norðurþings - 27
Fundargerð 27. fundar hafnanefndar Norðurþings afgreidd og staðfest eins og einsök
erindi bera með sér.
Liður 4.10. er afgreiðsluliður.
Fundargerðin staðfest með umræðu um lið 4.6., aðrir liðir staðfestir án umræðu.
4.1. 201012012 - Erindi frá Áka Haukssyni varðandi mælasnúrur í höfninni
4.2. 201011060 - Logos lögmannsþjónusta f.h. Norðursiglingar óskar eftir frekari skýringum vegna hækkunar farþegagjalda
4.3. 201011048 - 333. fundur stjórnar Hafnasambands íslands
4.4. 201011046 - Tillögur að árgjöldum 2011-2012 frá Hafnasambandinu ásamt rekstrarreikningi
4.5. 201011044 - Ályktun frá 37. þingi Hafnasambandsins varðandi hlutverk og tækifæri hafna
4.6. 201007027 - Ásgeir Þórðarson f.h. leigjenda verbúða á neðri hæð að Hafnarstétt 17, ósk um kaup á
verbúðunum
Til máls tóku: Hilmar Dúi og Bergur.
4.7. 201009119 - Haukur Eiðsson, umsókn um pláss í verbúð
4.8. 201009118 - Erindi frá Áka Haukssyni í þremur liðum, 1.)Farþegagjöld hafna 2.)Öryggi við flotbryggjur 3.)Eignir
hafnarsjóðs
4.9. 201012016 - Fjárhagsáætlun hafnarsjóðs
4.10. 201011022 - Hafnareglugerð og gjaldskrá
Til máls tók: Bergur
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða fyrirliggjandi hafnareglugerð.
5. 201012003F - Byggðarráð Norðurþings - 137
Fundargerð 137. fundar byggðarráðs Norðurþings afgreidd og
staðfest eins og einstök erindi bera með sér.
Liður 5.2. er afgreiðsluliður.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir með umræðu um liði 5.1. og 5.7.
5.1. 201012033 - Ályktun Barnaheilla, beint til ríkisstjórnar og sveitarstjórna
Til máls tóku: Hjálmar Bogi og Gunnlaugur.
5.2. 201012032 - Álagning gjalda 2011
Til máls tók: Gunnlaugur.
Fyrirliggjandi er tillaga um álgagningu gjalda fyrir árið 2011:
Útsvar 13,28% - (með fyrirvara).
Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt, þ.e. 13,28% en með fyrirvara um að
nauðsynlegar lagabreytingar nái fram að ganga á Alþingi um tilfærslu þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga og
hækkun útsvarhlutfalls um 1,20 prósentustig sem af því leiðir, verður álagningarhlutfallið 14,48% á árinu 2011.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða ofangreinda tillögu byggðarráðs og leggur fram eftirfarandi bókun:
"Vakin skal athygli á því að breyting á útsvari úr 13,28% í 14,48% er aukin hlutdeild sveitarfélagsins á kostnað
ríkisvaldsins og mun þar af leiðandi ekki hafa í för með sér aukna skattbyrgði á íbúa sveitarfélagsins. Þessi
breyting er til komin vegna yfirtöku sveitarfélagsins á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga".
5.3. 201012031 - Efnahags- og skattanefnd Alþingis, ósk um umsögn vegna frumvarps um kjarasamninga opinberra starfsmanna og Lífeyrissjóð starfsmanna
ríkisins
5.4. 201002069 - Dvalarheimili aldraðra Húsavík, fundargerðir 2010
5.5. 201012010 - Garðarshólmur SES, kaupsamningur vegna gömlu síldarverksmiðjunnar að Hafnarstétt 33, Húsavík
5.6. 201012008 - Veraldarvinir, ósk um samstarf
5.7. 201012003 - Björgunarsveitin Garðar, umsókn um rekstrarstyrk fyrir 2010
Til máls tók: Hjálmar Bogi
5.8. 201007040 - Ósk um söluheimild vegna íbúðar að Grundargarði 6, nr. 101
5.9. 201012002 - Ályktun frá kennarafélagi Framhaldsskólans á Húsavík
5.10. 201011096 - Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um málefni fatlaðra
5.11. 201011091 - 130. fundur Heilbrigðisnefndar norðurlands eystra
5.12. 201011066 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn
5.13. 201011069 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn vegna þingsályktunartillögu um atvinnuuppbyggingu og orkunýtingu í
Þingeyjarsýslum
5.14. 201011070 - Iðnaðarnefnd Alþingis, ósk um umsögn vegna þingsályktunartillögu varðandi orkunýtingu í
Þingeyjarsýslum, 102. mál
6. 201012005F - Æskulýðsnefnd Norðurþings - 25
Fundargerð 25. fundar æskulýðsnefndar afgreidd og staðfest eins og
einstök erindi bera með sér.
Liðir 6.6. og 6.10. eru afgreiðsluliðir.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir með umræðu um liði 6.1., 6.4., 6.9. og 6.13.
6.1. 201009063 - Hugmyndir að byggingu gervigrasvallar á Húsavík.
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Hjálmar Bogi, Gunnlaugur og Jón Helgi.
6.2. 201012046 - Björgunarsveitin Núpar, umsókn um styrk
6.3. 201012037 - Skákfélagið Goðinn, umsókn um styrk
6.4. 201012024 - Vinnumálastofnun, ósk um gjaldfrjáls afnot af íþróttamannvirkjum fyrir atvinnuleitendur
Til máls tóku: Hjálmar Bogi, Hilmar Dúi, Þráinn og Jón Helgi.
6.5. 201012023 - Unnar Þór Garðarsson, umsókn um styrk vegna námskeiðs
6.6. 201012014 - Boð á Álaborgarleikana 2011
Til máls tóku: Hjálmar Bogi, Jón Grímsson, Þráinn og Gunnlaugur.
Gunnlaugur leggur til að erindinu verði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011.
Tillagan samþykkt samhljóða.
6.7. 201011083 - Samanhópurinn, ályktun vegna skemmtana fyrir unglinga undir lögaldri
6.8. 201011049 - Snorraverkefnið, umsókn um styrk
6.9. 201011018 - Umhverfisstofnun vekur athygli á nýrri reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum
Til máls tóku: Jón Grímsson og Hjálmar Bogi.
6.10. 201010096 - Ungmennaráð Norðurþings - erindisbréf
Til máls tóku: Jón Helgi, Hjálmar Bogi, Bergur, Sigríður, Gunnlaugur, Jón Grímsson og Hilmar Dúi.
Jón Helgi lagði fram eftirfarandi breytingatillögu á erindisbréfi Ungmennaráðs Norðurþings.
"Lagt er til að Nemendaráð Hafralækjaskóla tilnefni einn fulltrúa og einn til vara úr hópi nemenda búsettum í
Norðurþingi".
Gunnlaugur og Þráinn leggja til að fulltrúum Borgarhólsskóla verði fjölgað um einn þannig fulltrúafjöldinn í
ráðinu standi á oddatölu.
Sveitarstjórn samþykkir erindisbréf Ungmennaráðs Norðurþings með ofangreindum breytingum.
6.11. 201010030 - Arnhildur Pálmadóttir og Sigríður Hauksdóttir - umsókn um styrk í lista og -menningarsjóð. Hugmyndasmiðja
veturinn 2010-2011
6.12. 200909078 - Kynning Æskulýðsfulltrúa
6.13. 201012049 - Frístundakort
Til máls tóku: Hilmar Dúi og Hjálmar Bogi.
6.14. 201012066 - Skotfélag Húsavíkur, ósk um styrk vegna tækja kaupa
6.15. 201010097 - Fjárhagsáætlun Æskulýðsnefndar
7. 201012006F - Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings - 39
Fundargerð 39. fundar menningar- og fræðslunefndar afgreidd og staðfest
eins og einstök erindi bera með sér.
Fundargerðin staðfest með umræðu um liði 7.3. og 7.8. aðrir liðir staðfestir án umræðu.
7.1. 201012038 - Skólaskýrsla Sambands Íslenskra sveitarfélaga
7.2. 201012039 - Björgunarsveitin Núpar - varðandi þorrablót á Kópaskeri
7.3. 201012041 - PISA niðurstöður fyrir Ísland
Til máls tóku: Hjálmar Bogi, Soffía, Þráinn og Jón Helgi.
7.4. 201012042 - Aðalnámskrá grunnskóla - inngangskafli - frestur til athugasemda.
7.5. 201012043 - Umsókn um leikskólapláss og akstursstyrk vegna barna í Grímstungu.
7.6. 201002049 - Mærudagar / sænskir dagar 2010
7.7. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.8. 201012040 - Reglur um inntöku barna á leikskóla í Norðurþingi - erindi frá Kristjönu Lilju Einarsdóttur
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Soffía, Hjálmar Bogi og Gunnlaugur.
7.9. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.10. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.11. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.12. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.13. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.14. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.15. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.16. 201012045 - Hafralækjarskóli fjárhagsáætlun 2011
7.17. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.18. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.19. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
7.20. 201012044 - Fjárhagsáætlun 03-04-05 vegna 2011
Fundargerð skipulag- og byggingarnefndar Norðurþings afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera 8. 201012007F - Skipulags- og byggingarnefnd
Norðurþings - 71
með sér.
Liður 8.1. er afgreiðsluliður.
Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir með umræðu um lið 8.5.
8.1. 201012015 - Arhildur Pálmadóttir f.h Gentle Giants - Hvalaferða ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir þjónustu- miðasöluhús á
þaki Hafnarstéttar 7
Til máls tók: Jón Grímsson
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu skipulags- og byggingarnefndar um að veita stöðuleyfi fyrir húsið til 31. október 2013.
8.2. 201012001 - Almar Eggertsson f.h. Agnars V. Indriðasonar sækir um leyfi fyrir breytingum að Grænuási 1, Raufarhöfn
8.3. 201011092 - Sylvía Smáradóttir sækir um leyfi til að opna snyrtistofu að Steinagerði 8 neðri hæð
8.4. 201009078 - Sveinn Hreinsson f.h. Norðurþings sækir um heimild til að rífa einbýlishúsið Hól
8.5. 201012010 - Garðarshólmur SES, kaupsamningur vegna gömlu síldarverksmiðjunnar að Hafnarstétt 33, Húsavík
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Þráinn, Jón Grímsson, Hjálmar Bogi og Jón Helgi.
9. 201012008F - Byggðarráð Norðurþings - 138
Fundargerð 138. fundar byggðarráðs Norðurþings afgreidd og
staðfest eins og einstök erindi bera með sér.
Liðir 9.3., 9.13., 9.14. og 9.16. eru afgreiðsluliðir.
Aðrir liðir fundagerðarinnar staðfestir með umræðu um liði 9.6 og 9.12.
9.1. 201002049 - Mærudagar / sænskir dagar 2010
9.2. 201012043 - Umsókn um leikskólapláss og akstursstyrk vegna barna í Grímstungu.
9.3. 201012067 - Samningur við sveitarfélög í Þingeyjarsýslum um ráðgjafaþjónustu
Til máls tóku: Bergur og Olga.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða samning við sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum um félags- og
skólaþjónustu.
9.4. 201010041 - Félags- og tryggingamálaráðuneyti, samkomulag um fjármögnun og byggingu íbúðir fyrir geðfatlaða á
Húsavík
9.5. 201012058 - 131. fundur Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra
9.6. 201012056 - Sorpsamlag Þingeyinga, fundargerðir ársins 2010
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Þráinn og Gunnlaugur.
9.7. 201012055 - Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, fundargerðir ársins 2010
9.8. 201012054 - Menningarmiðstöð Þingeyinga, fundargerðir ársins 2010
9.9. 201012051 - Björgunarsveitin Núpar, umsókn um rekstrarstyrk
9.10. 201012034 - Samband íslenskra sveitarfélaga á köldum svæðum, fundargerð stjórnar frá 1. des. 2010
9.11. 201012070 - Hlutafjáraukning - Rekstrarframlag til AÞ 2011.
9.12. 201012069 - Hluthafafundur Sorpsamlags Þingeyinga
Til máls tóku: Hilmar Dúi, Þráinn, Bergur, Soffía og Jón Grímsson.
9.13. 201012032 - Álagning gjalda 2011
Til máls tóku: Gunnlaugur.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu byggðarráðs um álagningu gjalda fyrir árið 2011.
Álagning gjalda 2011 verða:
Fasteignaskattur:
A flokkur 0,575%
B flokkur 1,32%
C flokkur 1,65%
Lóðaleiga I 1,5%
Lóðaleiga II 2,5%
Vatnsgjald:
A flokkur 0,225%
B flokkur 0,45%
C flokkur 0,45%
Holræsagjald:
A flokkur 0,225%
B flokkur 0,225%
C flokkur 0,225%
9.14. 201009023 - Fjárhagsáætlun Norðurþings - 2011
Til máls tóku: Bergur, Jón Helgi og Hjálmar Bogi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætlun ársins 2011 til annarar umræðu í sveitarstjórn.
9.15. 201012066 - Skotfélag Húsavíkur, ósk um styrk vegna tækja kaupa
9.16. 201012010 - Garðarshólmur SES, kaupsamningur vegna gömlu síldarverksmiðjunnar að Hafnarstétt 33, Húsavík
Til máls tóku: Bergur, Soffía, Gunnlaugur, Jón Helgi, Jón Grímsson, Hjálmar Bogi, Sigríður, Olga, Hilmar Dúi og
Þráinn.
Soffía óskaði bókað:
"Í nýsamþykktu aðalskipulagi Norðurþings er gengið út frá að hús og lóðir á suðurhafnarsvæði (H5)
nýtist fyrst og fremst starfsemi tengdri fiskvinnslu og útgerð. Innan þess svæðis stendur gamla síldarverksmiðjan á lóðinni að
Hafnarstétt 33.
Hvorki er til staðar fjármögnunaráætlun vegna þessara kaupa né kostnaðaráætlun vegna enduruppbyggingar á verksmiðjunni
sjálfri. Talið var að Garðarshólmi þyrfti 100-200 fermetra undir starfsemina en þarna er verið að gera kaupsamning á 1.000 fermetrum.
Soffía telur ekki rétt að draga ferðamannaumferð inn á athafnasvæði fiskvinnslu frekar en orðið er og eigi frekar að velja því
stað á neðri hæð Hvalasafnsins. Því getur hún ekki sætt sig við að gömlu síldarverksmiðjunnar verðir teknar undir
ferðaþjónustu. Hins vegar þurfi þá sveitarstjórn að taka umræðu hvort breyta eigi nýsamþykktum reglum ef fólk telur að
fiskiðnaður eigi ekki eftir að aukast á Húsavík í framtíðinni eða aðrar ástæður".
Soffía Helgadóttir - sign.
Meirihluti sveitarstjórnar samþykkir fyrirliggjandi samning, með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Jóns Grímssonar, Olgu og Þráins, milli
Vísis hf. og Garðarshólms SES, með þeim takmörkunum sem er að finna í ábendingum skipulags- og byggingarnefndar.
Fyrir liggur yfirlýsing frá aðilum samningsins er varðar sameiginlegan skilning á efnisinnihaldi hans. Þar kemur fram að í þriðju
málsgrein undir fyrirsögninni Kaupverð á bls. 1. í samningnum, beri að skilja svo að kaupandi geti einhliða tilkynnt um að hann standi ekki við
kaupsamninginn, og seljandi skuli þar með taka yfir hið selda í samræmi við skilmála samningsins. Með öðrum orðum, þá
verður ákvæðið ekki skilið þannig að seljandi hafi val um það hvort hann taki yfir húsnæðið að nýju eða
þrautareyni innheimtu á grunni kaupsamningsins, hafi kaupverð ekki verið greitt fyrir 31. október 2013.
Þessi skilningur felur í sér að ekki sé verið að fjárhagslega skuldbinda sveitarfélagið við samþykki samningsins.
Soffía og Hjálmar Bogi greiddu atkvæði gegn samþykkt samningsins og Sigríður og Hilmar Dúi sátu hjá.
Jón Helgi vék af fundi eftir afgreiðslu þessa liðar eða kl. 19:50 og á fundinn, í hans stað, kom Sigurgeir Höskuldsson.
10. 201006036 - Tillaga meirihluta sveitarstjórnar Norðurþings um endurskoðun á samþykktum sveitarfélagsins
Til máls
tóku: Hjálmar Bogi, Bergur, Jón Grímsson, Gunnlaugur, Hilmar Dúi og Olga.
Við undirrituð leggjum fram eftirfarandi breytingartillögur vegna breytinga á samþykktum Norðurþings:
Meirihluti vinnuhópsins hefur tekið þá undarlegu ákvörðun að leggja til að í sveitarfélaginu Norðurþingi
verði starfandi bæjarstjóri, bæjarráð og bæjarstjórn. Hér eru því að rætast varnaðarorð þeirra
íbúa sem vöruðu við því að Húsavík væri að yfirtaka hin sveitarfélögin og með því að ætla
að kalla sveitarstjórn Norðurþings bæjarstjórn er það orðið ljóst.
Samsetning sveitarfélagsins er með þeim hætti að aldrei verður hægt að tala um að það sé eitt bæjarfélag og hvað
þá að það hafi bæjarráð eða bæjarstjórn.
Eftirfarandi breytingatillögur eru:
1. Starfstitill sveitarstjóra Norðurþings verði í samþykktum þessum
framkvæmdastjóri sveitarfélagsins Norðurþings.
2. Að starfsheiti sveitarstjórnarfulltrúa verði óbreytt frá því sem nú
er í samþykktum sem í gildi eru í dag.
3. Að Byggðarráð haldi sínu heiti.
4. Að sveitarstjórn verði áfram sveitarstjórn.
Hilmar Dúi Björgvinsson - sign
Sigríður Valdimarsdóttir - sign
Fyrirliggjandi breytingatillaga felld með atkvæðum Gunnlaugs, Sigurgeirs, Olgu, Jóns Grímssonar, Soffíu, Hjálmars Boga og Þráins. Hilmar
Dúi og Sigríður greiddu atkvæði með tillögunni.
Tillaga meirihluta starfshóps um breytingu á samþykktum sveitarfélagsins borin upp til atkvæðagreiðslu.
Tillagan samþykkt með atkvæðum, Gunnlaugs, Sigurgeirs, Olgu, Jón Grímssonar, Soffíu, Hjálmars Boga og Þráins. Hilmar Dúi
greiddi atkvæði á móti tillögunni en Sigríður sat hjá.
11. 201006035 - Norðurþing, skipan fulltrúa í nefndir og ráð 2010-2014
Fyrirliggjandi eru tillögur í skipan nefnda:
Félagsheimilanefnd Heiðarbæjar.
Sem aðalmenn, Sveinn Hreinsson, Páll Ólafsson og Gunnlaugur Stefánsson.
Sem varamenn, Tryggvi Jóhannsson, Oddur Örvar Magnússon og Hrólfur Þórhallsson.
Húsnefnd Skúlagarðs / Willardssafnsnefnd.
Sem aðalmenn, Sveinn Hreinsson, Olga Gísladóttir og Soffía Helgadóttir.
Sem varamenn, Tryggvi Jóhannsson, Stefánía Gísladóttir og Sólveig Mikaelsdóttir.
Þar sem aðrar tillögur komu ekki fram skoðast þessar samþykktar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 21:25



