Sveitarstjórn Norðurþings

Sveitarstjórn Norðurþings   45. fundursveitarstjórnar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,þriðjudaginn 5. október 2010 og hófst hann kl.

Sveitarstjórn Norðurþings

  45. fundursveitarstjórnar Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,þriðjudaginn 5. október 2010 og hófst hann kl. 16:15  Fundinn sátu:Gunnlaugur Stefánsson, Hólmfríður Soffía Helgadóttir, Hjálmar Bogi Hafliðason, Jón Helgi Björnsson, Olga Gísladóttir, Trausti Aðalsteinsson, Friðrik Sigurðsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Benedikt Kristjánsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,  Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill sveitarstjóra Dagskrá: 
1. 201010006 - Sala á eignarhlut Orkuveitu Húsavíkur ehf. í Þeistareykjum ehf
Til máls tóku:  Bergur, Jón Helgi, Þráinn, Hjálmar Bogi, Trausti, Gunnlaugur, Benedikt, Friðrik, Soffía og Olga.  Fulltrúi V listans í sveitarstjórn vill leggja fram eftirfarandi bókun: "Eins og við bentum á í aðdraganda kosninga þá er staða sveitarfélagsins þannig að við höfum ekki fjármagn til að halda áfram vinnu á Þeistareykjasvæðinu erum því tilneydd til að selja hlut okkar í Þeistareykjum ehf.Jafnframt viljum við fagna því að það sé Landsvikjun sem kaupir hlut okkar en ekki einhverjir aðrir því Landsvikjun er jú í eigu Íslensku þjóðarinnar". Trausti Aðalsteinsson - sign. Vegna sölu Orkuveitu Húsavíkur ehf á nánast allri eign sinni í Þeistareykjum ehf  vill undirritaður fulltrúi Þinglistans í sveitarstjórn Norðurþings óska eftirfarandi bókað: „Þeistareykir ehf voru stofnaðir árið 1999 og var eignarhlutur Orkuveitu Húsavíkur við stofnun 40%.  Þrátt fyrir góðan vilja sveitarfélagana sem að stofnun félagsins stóðu hefur ekki tekist enn að tryggja kaupanda að orku af svæðinu nú rúmum 11 árum eftir stofnun félagsins.  Það er von mín að þau skref sem nú eru stigin verð til þess að virkjanaframkvæmdir á Þeistareykjum hefjist sem fyrst og kaupandi verð tryggður af þeirri orku.  Jafnframt er það krafa mín að sú orka verði nýtt í Þingeyjarsýslu íbúum til hagsbóta.Þinglistinn hefur ekki haft aðkomu að söluferli eignarhluts Orkuveitunar í Þeistareykjum og hefur heldur ekki verið upplýstur um gang mála við þá vinnu.  Salan er því alfarið á ábyrgð meirihluta sveitarstjórnar Norðurþings.  Ég mun því sitja hjá við afgreiðslu á tillögu um sölu á eignarhlut þessum.“Friðrik Sigurðsson fulltrúi Þinglista í sveitarstjórn Norðurþings  Sveitarstjórn Norðurþings samþykkir tillögu stjórnar Orkuveitu Húsavíkur ehf., um sölu á 28,771% eignarhlut félagsins í Þeistareykjum ehf. með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Trausta, Benedikts, Soffíu, Hjálmars, Olgu og Þráins. Friðrik sat hjá við atkvæðagreiðsluna.
 
2. 201010007 - Staða heilbrigðisþjónustu í Þingeyjarsýslum
Til máls tóku:  Jón Helgi, Hjálmar Bogi, Benedikt, Bergur, Þráinn, Friðrik, Gunnlaugur og Soffía. Sveitarstjórn Norðurþings staðfestir einróma sameiginlega ályktun sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum  Niðurskurður á fjárveitingum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga  Ályktun sveitarfélaganna í Þingeyjarsýslum  Sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum austan Vaðlaheiðar lýsa yfir miklum og þungum áhyggjum vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á heilbrigðisþjónustu á Norðausturlandi. Sá niðurskurður á fjárveitingum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, sem kynntur hefur verið í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, er ein mesta ógn sem steðjað hefur að búsetu á þessu svæði um langa hríð og myndi hafa mjög alvarlegar afleiðingar, ekki bara fyrir stofnunina heldur alla íbúa í Þingeyjarsýslum frá Ljósavatnsskarði í vestri til Þórshafnar í austri. Krafa um tæplega 40% niðurskurð þýðir stórauknar álögur á almenning á starfssvæði stofnunarinnar, atvinnumissi fólks í tugatali og myndi draga stórkostlega úr möguleikum sveitarfélaganna til uppbyggingar á komandi árum. Jafnframt er ljóst að krafa um 85% niðurskurð á sjúkrasviði þýðir í raun lokun á sjúkahúsinu. Slíkt á ekkert skylt við eðlilegar  sparnaðartillögur. Heilbrigðisstofnun Þingeyinga er mikilvægt öryggisnet á stóru landsvæði þar sem fara þarf um allt að 300 km leið á milli staða. Sveitarfélögin Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur, Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð skora á ráðherra heilbrigðismála, ráðherra fjármála og þingmenn Alþingis að falla frá þessari tillögu og leggjast á eitt um að halda áfram rekstri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á forsendum fjárlaga ársins 2010.  
 
   Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00  


Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya