13.feb.12 | 19:51Hala niður pdf af fundargerð 

11. fundur
tómstunda- og æskulýðsnefndar norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
mánudaginn 13. febrúar 2012 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Birna Björnsdóttir, Hafsteinn H Gunnarsson, Ingólfur Freysson, Sigríður Valdimarsdóttir, Jóhann Rúnar
Pálsson,
Fundargerð ritaði: Jóhann Rúnar Pálsson, Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá:
1. 201004090 - Sundlaugar Norðurþings
Sveinn Rúnar Arason deildarstjóri Sundlaugar Húsavíkur mætti á fundinn.
Til umræðu voru öryggismál, aðstaða og aðgengi fatlaðra í sundlauginni á Húsavík.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd þakkar Sveini Rúnari fyrir sitt innlegg í umræðuna.
Nefndin leggur á það áherslu að farið sé í framkvæmdir við sundlaugina sem stuðla að bættu aðgengi og öryggi
við laugina.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að vera í samstarfi við hlutaðeigandi aðila um
framkvæmd málsins.
2. 201106024 - UMFÍ unglingalandsmót, vinna að undirbúningi
Tómstunda- og æskulýðsnefnd samþykkir að senda bréf til UMFÍ þar sem
óskað er eftir betri skýringum á staðarvali ULM.
Sveitarfélagið Norðurþing óskaði eftir rökstuðningi hjá stjórn UMFÍ vegna staðsetningar á unglingalandsmóti
UMFÍ árið 2014. Sveitarfélaginu barst svarbréf 1.nóvember 2011 þar sem greint er frá því að stjórnarmenn greiða
atkvæði eftir bestu sannfæringu. Þá vakna eftirfarandi spurningar; 1) á hverju byggja stjórnarmenn ákvörðun sína og 2) hvað er
lagt til grundvallar hjá UMFÍ þegar staðsetning er valin.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að skrifa bréf til UMFÍ.
3. 201005028 - Vinnuskóli Norðurþings
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi kynnti áætlanir vegna Vinnuskóla
Norðurþings.
4. 201009065 - Forvarnarmál
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór yfir hugmyndir er snúa að
samþættingu forvarnarmála innan sveitarfélagsins. Hugmyndin er sú að samræma aðgerðaáætlanir stofnana og fyrirtækja í
sveitarfélaginu sem koma að þessum málum með einum eða öðrum hætti.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að fylgja málinu eftir á næsta fundi
forvarnarhóps Norðurþings.
5. 201102059 - Heimöx, umsókn um styrk
Tómstunda- og æskulýðsnefnd tekur jákvætt í erindið og felur starfsmanni
nefndarinnar að vera í sambandi við Heimöx vegna málsins.
6. 201007035 - Icefitness ehf. ósk um styrk vegna skólahreysti
Tómstunda- og æskulýðsnefnd hafnar styrkbeiðninni.
7. 201202031 - Tómstunda- og íþróttafélög Norðurþings
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur það til að fulltrúum tómstunda-,
æskulýðs- og íþróttafélaga með starfsemi innan Norðurþings verði boðið að kynna starfsemi sína fyrir nefndinni og
í leiðinni koma fram með óskir um aðbúnað og aðstöðu.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að senda fimleika- og handknattleiksdeild Völsungs boð um
það að kynna starfsemi sína.
8. 200909078 - Kynning tómstunda- og æskulýðsfulltrúa
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór yfir málefni tómstunda- og
æskulýðssviðs.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 19:00



