
10. fundur tómstunda- og æskulýðsnefndar norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
mánudaginn 16. janúar 2012 og hófst hann kl. 15:30
Fundinn sátu:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Birna Björnsdóttir, Hafsteinn H Gunnarsson, Ingólfur Freysson, Sigríður Valdimarsdóttir, Jóhann Rúnar
Pálsson,
Fundargerð ritaði: Jóhann Rúnar Pálsson, Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá:
1. 201110005 - Tómstunda- og æskulýðsstarf 2012
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór
yfir starfsemi málaflokksins; tómstunda- og æskulýðsmál. Fyrirhugað er að útbúa bækling á rafrænu formi þar sem
íþrótta- og tómstundafélög geta kynnt starfsemi sína.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur áherslu á mikilvægi málaflokksins með tilliti til áframhaldandi forvarnarstarfs.
2. 201006081 - Leikvellir í sveitarfélaginu Norðurþingi.
Skv. tillögu nefndarinnar á fundi sínum 14. febrúar 2011
var lagt til að leiksvæði á Húsavík yrðu endurskilgreind og fækkað úr 16 í 10. Jafnframt yrði 1 leikvöllur
endurnýjaður ár hvert.
Leikvöllurinn milli Baughóls og Uppsalavegar var endurnýjaður 2011.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur til við Framkvæmda- og hafnarnefnd að leikvöllurinn við Túngötu verði endurnýjaður
á árinu 2012
3. 201201039 - Ungmennaráð Norðurþings
Tómstunda- og æskulýðsnefnd óskar eftir því við
Ungmennaráð Norðurþings að ráðið komi með tillögur að auknu samstarfi félagsmiðstöðva í Norðurþingi.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur starfsmanni nefndarinnar að senda erindið til Ungmennaráðs Norðurþings. Einnig er tómstunda- og
æskulýðsfulltrúa falið að kynna starfsvið Tómstunda- og æskulýðsnefndar fyrir ráðinu.
4. 201012049 - Frístundakort
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi kynnti undirbúningsvinnu vegna frístundakorta ungmenna í sveitarfélaginu. Lagt er til að kortin verði
í nafnspjaldastærð og fram komi nafn, fæðingarár og gildistími. Kortin munu vera árskort og gilda frá 1.janúar ár hvert.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að kynna málið og ganga frá útgáfu
kortanna.
5. 201004090 - Sundlaugar Norðurþings
Komið hafa fram óskir um það að í sundlaugum Norðurþings sé
hægt að kaupa hressingu í einhverju formi s.s. kaffi, ís og svaladrykki.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur það til að boðið sé upp á slíkt.
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að útfæra málið.
6. 201009065 - Forvarnarmál
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór yfir forvarnarmál í sveitarfélaginu.
Í sveitarfélaginu er starfræktur forvarnarhópur með fulltrúum úr ýmsum hópum í samfélaginu. Hópurinn hittist
mánaðarlega og fjallar um forvarnarmál í sveitarfélaginu.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur áherslu á það að forvarnarmálum sé gert hátt undir höfði í
sveitarfélaginu í víðu samhengi.
7. 201201040 - Félagsmiðstöðvar
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi kynnti starfsemi og fyrirkomulag
félagsmiðstöðva Norðurþings.
8. 201003092 - Skíðamannvirki Norðurþings.
Umræða um öryggismál í skíðabrekkunni við
Skálamelinn. Búið er að setja upp skilti þar sem ítrekað er að börn og ungmenni séu á ábyrgð foreldra og hvatt er til
þess að viðeigandi öryggisbúnaður sé notaður. Fjölga þyrfti öryggishjálmum til útláns í brekkunni.
Einnig er nauðsynlegt að starfsmanni skíðasvæðis sé tryggður aðgangur að snjósleða.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að fylgja málinu eftir.
9. 201006080 - Sparkvellir á Kópaskeri og á Raufarhöfn.
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að
hefja viðræður við ungmennafélögin á Raufarhöfn og Kópaskeri um mögulega uppbyggingu sparkvalla.
10. 201111032 - Fimleikadeild Völsungs sækir um styrk vegna Danmerkurferðar í ágúst 2012
Fimleikadeild Völsungs sækir
um styrk vegna ferðar til Danmerkur í ágúst 2012.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd samþykkir styrk upp á 200.000 krónur.
11. 201201041 - Hugmyndasmiðjan
Arnhildur Pálmadóttir og Sigríður Hauksdóttir sækja um styrk vegna verkefnisins
Hugmyndasmiðjan. Hugmyndasmiðjan hefur verið í gangi síðan 2009 og þá fyrst sem sumarnámskeið fyrir börn og unglinga frá 10
ára aldri. Markmiðið með verkefninu er að opna augu fólks fyrir umhverfinu þannig að það sjái tækifæri í þeim hlutum
sem eru þeim hversdagslegir og uppgötvi umhverfi sitt og íbúa á annan hátt en áður. Einnig að ýta undir listáhuga og
umhverfisvitund.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd samþykkir styrk uppá 200.000 krónur.
12. 201112055 - Helena Eydís Ingólfsdóttir sendir inn erindi varðandi aðstöðu til íþróttaiðkunar á
Húsavík
Helena kemur með hugmyndir er lúta að uppbyggingu íþróttamannvirkja á Húsavík.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd þakkar Helenu fyrir bréfið og þær ábendingar sem hún hefur fram að færa.
13. 201105088 - UMFÍ til kynningar
UMFÍ óskar eftir því að gera samninga við sveitarfélög, skóla og
gistiheimili um gistingu á afsláttarkjörum fyrir ungmennafélaga. Einnig að óska eftir því við sveitarfélög að þau veiti
hópum sem eru í íþróttakeppni eða öðrum samskiptum afsláttarkjör í skólum viðkomandi sveitarfélags. UMFÍ
óskar eftir svari við þessari málaleitan.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að svara erindinu.
14. 201002015 - Gjaldskrárbreytingar íþróttamannvirkja.
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi kynnti
gjaldskrárbreytingar íþróttamannvirkja fyrir árið 2012.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur það til að mánaðarkort sundlauga kosti 5.500 krónur.
15. 201106024 - UMFÍ unglingalandsmót, vinna að undirbúningi
Á fundi Tómstundar- og æskulýðsnefndar
31.ágúst 2011 var farið fram á rökstuðning af hálfu UMFÍ varðandi valið á mótsstað 2014 og jafnframt óskað eftir
framtíðarsýn UMFÍ á unglingalandsmótum framtíðarinnar er varðar aðstöðu og tilgang.
Í svari UMFÍ kemur fram að unnið sé að vinnureglum vegna umsókna að landsmótum á vegum UMFÍ.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd ákveður að fresta málinu til næsta fundar.
16. 201106026 - Fjárhagsáætlun tómstunda- og æskulýðsnefnd 2012
Tómstunda- og
æskulýðsfulltrúi lagði fram fjárhagsáætlun Tómstunda- og æskulýðsnefndar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:10



