
9. fundur
tómstunda- og æskulýðsnefndar norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 13. desember 2011 og hófst hann kl. 14:00
Fundinn sátu:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Birna Björnsdóttir, Hafsteinn H Gunnarsson, Ingólfur Freysson, Sigríður
Valdimarsdóttir, Jóhann Rúnar Pálsson,
Fundargerð ritaði: Jóhann Rúnar Pálsson, Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá:
1. 201112003 - Réttindagæslumaður fyrir fólk með fötlun á Norðurlandi, erindi varðandi aðgengi að Sundlaug
Húsavíkur
Tómstunda- og æskulýðsnefnd hefur ítrekað borist erindi vegna aðgengi fyrir fatlaða í Sundlaug
Húsavíkur en aðgengi og aðstaða fyrir fatlaða er verulega ábótavant. Nefndin leggur það til að gerðar verði
úrbætur vegna þessa í Sundlaug Húsavíkur. Tómstunda- og æskulýðsnefnd vísar málinu til afgreiðslu í
Bæjarráði Norðurþings. Nefndin felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að svara erindinu.
2. 201111081 - Frá skólastjóra Borgarhólsskóla varðandi sérútbúna aðstöðu í sundlaug
Húsavíkur
Tómstunda- og æskulýðsnefnd vísar í afgreiðslu dagskrárliðar 1. enda erindið um sama mál.
Nefndin felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að svara málinu.
3. 201111078 - Kristín S. Gunnarsdóttir, ósk um vetrar opnun sundlaugarinnar í Lundi, Öxarfirði
Tómstunda- og
æskulýðsnefnd getur ekki orðið við erindinu þar sem sundlaugin er ekki í notkun yfir vetrartímann en bendir á möguleikann á
því nýta heitan pott við laugina. Tómstunda- og æskulýðsfulltrúa falið að ræða málin við hlutaðeigandi
aðila.
4. 201111032 - Fimleikadeild Völsungs sækir um styrk vegna Danmerkurferðar í ágúst 2012
Tómstunda- og
æskulýðsnefnd frestar afgreiðslu málsins.
5. 201112024 - Unglingadansleikur
Tómstunda- og æskulýðsnefnd sækir um styrkveitingu til Bæjarráðs að
upphæð 400.000 krónur til að halda unglingadansleik 29.12.´11 á Húsavík fyrir ungmenni sveitarfélagsins. Boðið yrði upp á
sætaferð frá Raufarhöfn/Kópaskeri til Húsavíkur. Ungmenni úr öðrum sveitarfélögum í Þingeyjarsýslum
yrðu velkomin.
6. 200909078 - Kynning tómstunda- og æskulýðsfulltrúa
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór yfir
stöðuna í málaflokknum; nýstofnað ungmennaráð sveitarfélagsins og starfsmannamál málaflokksins.
7. 201106026 - Fjárhagsáætlun tómstunda- og æskulýðsnefnd 2012
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur
eftirfarandi til við Bæjarráð Norðurþings.
1. Tekin verði upp gjaldtaka fyrir 17 ára og yngri í sundlaugar Norðurþings. Aðgangseyrir 250 krónur stakur miði
á veturna og 300 krónur á sumrin (júní – ágúst).
2. Útbúin verði frístundakort fyrir ungmenni sveitarfélagsins, 17 ára og yngri sem veitir aðgang að sundlaugum
og skíðasvæði sveitarfélagsins. Almennt verð á árskorti yrði 4000 krónur, árskort fyrir annað barn 3000 krónur,
árskort fyrir þriðja barn 2000 krónur og ekki yrði greitt fyrir fjórða barn.
3. Breyting og hækkun á gjaldskrá fyrir sundlaugar Norðurþings. Tekið yrði upp sumar- og vetrargjald. Lagt er til
að vetrargjald verði 500 krónur á stökum fullorðins miðum og sumargjald (júní – ágúst) 650 krónur á
stökum fullorðins miðum. 10 miða afsláttarkort verði krónur 4000.
4. Lagt er til að helgaropnun Sundlaugarinnar á Húsavík verði frá kl. 10 til kl. 15 yfir vetrartímann.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd leggur til að tillögurnar taki gildi .janúar 2012.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:30



