Fara í efni

Fræðslunefnd

11. fundur 08. febrúar 2017 kl. 13:00 - 15:00 í stjórnsýsluhúsi Norðurþings
Nefndarmenn
  • Olga Gísladóttir formaður
  • Stefán L Rögnvaldsson aðalmaður
  • Sigríður Hauksdóttir varaformaður
  • Anný Peta Sigmundsdóttir aðalmaður
  • Jón Höskuldsson Ritari
  • Berglind Jóna Þorláksdóttir aðalmaður
Fundargerð ritaði: Jón Höskuldsson Fræðslufulltrúi
Dagskrá

1.Vegvísir samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags Grunnskólakennara

Málsnúmer 201702021Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd hefur til umfjöllunar vegvísi samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna Félags grunnskólakennara. Í kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna
Félags grunnskólakennara sem samþykktur var 29. nóvember 2016 var samstarfsnefnd
aðila falið, með bókun 1, að leggja fram í janúar 2017 vegvísi að aðgerðaráætlun til
sveitarfélaga um nánari greiningu á því ástandi sem kennarar og stjórnendur hafa lýst að
ríki í starfsumhverfi grunnskóla og jafnframt kallað eftir úrbótum á.
Samningsaðilar eru sammála um að framkvæmd breytinga á vinnuumhverfi kennara sem
samið var um í kjarasamningi árið 2014 hafi ekki tekist sem skyldi í mörgum grunnskólum og
nauðsyn þess að greina nánar þann vanda sem lýst er og leita leiða til úrbóta.
Fræðslunefnd felur fræðslufulltrúa að vera fulltrúi sveitarfélags við vinnu að vegvísi að aðgerðar- og umbótaáætlun.

2.Aukið samstarf grunn- og framhaldsskóla

Málsnúmer 201702020Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd hefur til umfjöllunar hugmyndir um aukið samstarf grunn- og framhaldsskóla.
Fræðslufulltrúi kynnti fyrir fræðslunefnd stöðu mála um aukið samstarf grunn- og framhaldsskóla.

3.Samskipti kjörinna fulltrúa og embættismanna

Málsnúmer 201702019Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd fjallar um samskipti kjörinna fulltrúa og embættismanna. Vísað er til námskeiðs Róberts Ragnarssonar um samskipti kjörinna fulltrúa og embættismanna sem fræðslufulltrúi sat.
Fræðslufulltrúi upplýsti fræðslunefnd um innihald námskeiðs Róberts Ragnarssonar.

4.Jafnréttis-og framkvæmdaáætlun Norðurþings 2014-2018

Málsnúmer 201607309Vakta málsnúmer

Fræðslunefnd hefur til umfjöllunar jafnréttis og framkvæmdaáætlun Norðurþings.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 15:00.