Menntun: B.A.próf í þroskaþjálfafræðum frá Háskóla Íslands.
Starfsreynsla: Stuðningsfulltrúi á sambýlinu Pálsgarði, Stuðningsfulltrúi á sambýlinu Hrauntungu í
Kópavogi, vaktstjóri á sambýlinu Ventana í Bournemouth í Englandi, stuðningsfulltrúi á sambýli fyrir fötluð börn
á Holtavegi í Reykjavík, stuðningsfulltrúi á sambýlinu Víðihlíð í Reykjavík, þroskaþjálfi við
Borgarhólsskóla á Húsavík.
Starfslýsing: Sér um allan rekstur sambýlisins Pálsgarði 2, miðlar faglegri þekkingu til annarra starfsmanna , útbýr
einstaklingsáætlanir, sér um öll persónuleg mál íbúa, starfsmannahald og fjármál heimilisins og íbúa.
Diploma á meistarstigi í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ 2008
Próf í kennslufræði til kennsluréttinda í grunn- og framhaldsskóla frá HA 2011
Starfssvið: Starfar sem náms- og starfsráðgjafi. Sinnir námsráðgjöf í grunnskólum á
svæðinu og veitir kennsluráðgjöf. Hlutverk námsráðgjafa er að vinna með nemendum, forráðamönnum, kennurum og öðrum
sérfræðingum innan og utan skólans að ýmiss konar velferðarstarfi er snýr að námi, líðan og framtíðaráformum
nemenda.
Dögg Káradóttir lauk prófi í félagsráðgjöf frá Háskólanum í Gautaborg 1985 og viðskipta- og
rekstrarnámi frá Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands 1997.
Dögg hefur langa starfsreynslu á sviði félagsráðgjafar m.a. sem deildarsérfræðingur í
Félagsmálaráðuneytinu, framkvæmdastjóri Umhyggju, félags langveikra barna, forstöðumaður hjá Tryggingastofnun ríkisins,
framkvæmdastjórn Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa, félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg o.fl.
Dögg er alin upp á Húsavík og bjó hér á árunum 1960 til 1971.
Menntun: Stúdentspróf frá Framhaldsskólanum á Húsavík, B.A. próf í sálfræði frá Háskólanum
á Akureyri.
Starfsreynsla: Stuðningsfulltrúi á sambýlinu Sólbrekku 28, liðveisla, starfsmaður í barnavernd (ráðgjafi og tilsjónarmaður),
verslunarstjóri í Bakarameistaranum í Suðurveri.
Starfslýsing: Forstöðumaður sér um allan rekstur sambýlisins Sólbrekku 28, stýrir meðferð, sér um starfsmannahald og fer með
fjármál heimilisins.
Menntun: Heilsugæslubraut í Gagnfræðaskólanum á Húsavík, Verslunarpróf frá Fjölbrautarskólanum
í Breiðholti, Sálfræði og félagsfræði við framhaldsskólann á Húsavík,
Mannauðsstjórnun við háskólann á Akureyri, Sálgæsla aldraðra við háskóla Íslands.
Starfsreynsla: Búnaðarbankinn aðalbanki, Landsbankinn Húsavík, Vátrygginarfélag íslands Húsavík,
aðstoðarmaður húsnæðisfulltrúa hjá Húsavíkurbæ, Félagsþjónusta Norðurþings.
Starf: Hef umsjón með félagslegri heimaþjónustu á starfssvæði Félagsþjónustu Norðurþings,
úttektir og ráðgjöf við heimilin, einnig allt starfsmannahald á þjónustusvæðinu ásamt úttektum og ráðgjöf.
Menntun: BA í sálfræði frá Hí 1996, diploma í námsráðgjöf frá HÍ 1997 og Cand.Psych í
sálfræði frá HÍ 2001.
Starfssvið: Starfar sem sálfræðingur. Sinnir greiningu og ráðgjöf í grunn-og leikskólum á svæðinu. Veitir
fullorðnum einstaklingnum einnig viðtalsmeðferð í samráði við aðra starfsmenn félagsþjónustu. Er í 50% starfshlutfalli.
Menntun: Leikskólakennari B.ed frá Háskólanum á Akureyri 2000 og hefur lokið Persónustjórnun og Árangri í
starfi sem er LMI nám frá Reyni Ráðgjafastofu á Akureyri.
Reynsla: Deildastjóri í Leikskólanum Skógarlöndum á Egilsstöðum, deildastjóri á Leikskólanum
Grænuvöllum Húsavík.
Menntun: Próf í þroskaþjálfun frá Þroskaþjálfaskóla Íslands 1997 og MA í þekkingar- og
breytingastjórnun frá Háskólanum í Álaborg 2008.
Starfsreynsla: Forstöðumaður á áfangaheimili í Kópavogi á vegum félagsþjónustu Kópavogs.
Forstöðumaður á sambýli í Hafnarfirði á vegum SMFR. Auk þess ýmis störf bæði með börnum og fullorðnum, í
sumardagvist, innan skólakerfisins, í skammtímavistunum, í hæfingu og í búsetu.
Starf: Hefur umsjón með málefnum fatlaðra í Norðurþingi.
Menntun: Kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands. Framhaldsnám í skólastjórnun frá Bristol Polytecknic og
frá Kennaraháskóla Íslands. Leiðtoganám fyrir skólastjórnendur frá Háskólanum Akureyri. Persónuleg stjórnun
frá Reyni ráðgjafarstofu. Sótt fjölda námskeiða varðandi kennslu- og stjórnun.
Starfsreynsla: Grunnskólakennari, skólastjóri við Hrafnagilsskóla Eyjafjarðarsveit, almenn kennsluráðgjöf og
grunnskólafulltrúi.
Starf: Fylgist með og hefur faglegt – og rekstrarlegt eftirlit með starfi grunnskóla Norðurþings fyrir hönd menningar- og
fræðslufulltrúa. Fylgist með nýtingu starfsheimilda, ráðningu starfsmanna og fjárhagsheimildum grunnskóla. Vinn að stefnumótun vegna
skólamála sveitarfélagsins.
Almenn ráðgjöf við stjórnendur og kennara grunnskóla á starfssvæði skólaþjónustu Norðurþings.
Helstu vekefni:
• Rekstrarlegt og faglegt eftirlit og ráðgjöf vegna rekstar grunnskóla Norðurþings.
• Kennsluráðgjöf
• Greiningar og skimanir varðandi stærðfræði
• Skólaþjónusta.