Starfsemi Norðurþings er þannig háttað að lýðræðislega kjörnir fulltrúar í nefndum ákvarða um einstök mál, móta stefnu í málaflokknum og samþykkja reglugerðir sem heyra undir viðkomandi nefnd.
Hver nefnd hefur síðan sinn fulltrúa eða framkvæmdarstjóra sem sér um að vinna eftir ákvörðunum nefndarinnar.
Nefndir og ráð
Bæjarráð
Ráðið hefur umsjón og eftirlit með fjármálalegri starfsemi Norðurþings.
Fjármálastjóri: Guðbjartur Ellert Jónsson
Fræðslu- og menningarnefnd
Nefndin fjallar um málefni grunnskóla, leikskóla, tónlistarskóla og menningarmála.
Fræðslu- og menningarfulltrúi: Huld Aðalbjarnardóttir
Félags- og barnaverndarnefnd
Nefndin fer með málefni félagsþjónustu í sveitarfélaginu m.a. þjónustu við fatlaða og aldraða, barnavernd, liðveislu og forvarnir.
Félagsmálastjóri: Dögg Káradóttir
Skipulags- og byggingarnefnd
Nefndin fer með málefni sem tengjast skipulagsmálum og byggingarframkvæmdum m.a. gerð aðal- og deiliskipulagstillagna, fjallar um þær og hefur eftirlit með því að skipulagsákvæði séu virt.
Skipulags- og byggingarfulltrúi: Gaukur Hjartarson
Framkvæmda- og hafnanefnd
Nefndin fer með málefni sem tengjast m.a. framvkæmdum á vegum sveitarfélagsins, umferðar og samgöngumál, umhverismál, bruna- og almannavarnarmál, veitumál, garðyrkju og opnum svæðum.
Nefndin fer einnig með málefni hafna sveitarfélagsins s.s. rekstur hafnarmannvirkja auk eftirlits- og öryggismála.
Framkvæmda- og hafnafulltrúi: Tryggvi Jóhannsson
Tómstunda- og æskulýðsnefnd
Nefndin fer með málefni er tengjast íþrótta-, tómstunda-, og æskulýðsmálum á vegum sveitarfélagsins.
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi: Jóhann Rúnar Pálsson



