Dagforeldrar veita börnum daggæslu en eru sjálfstætt starfandi. Félags- og barnaverndarnefnd Norðurþings veitir starfsleyfi til dagforeldra og sinnir lögbundnu eftirliti með starfseminni eins og kveðið er á um í reglugerð félagsmálaráðuneytisins nr. 907 frá 2005.
Þegar foreldrar velja dagforeldri fyrir barnið sitt er mikilvægt að þeir kynni sér vel þjónustuna sem í boði er s.s. allan aðbúnað, leikfangakost, hvíldaraðstöðu og leikaðstöðu bæði inni og úti. Ákvörðun um vistun barnsins er á ábyrgð foreldra.
Sameiginlegur þjónustusamningur er gerður milli foreldra, dagforeldra og sveitarfélagsins um vistun barns hjá dagforeldri. Þjónustusamningar og niðurgreiðslur vistunargjalda er í umsjón Menningar- og fræðslufulltrúi Norðurþings samkvæmt samþykktum sveitarfélagsins þar um.
Gjaldskrá dagforeldra í Norðurþingi
Eftirlit - Leyfisveitingar
Félagsþjónusta Norðurþings annast leyfisveitingar og veitir dagforeldrum ráðgjöf og sér um eftirlit. Reglulegar heimsóknir eftirlitsaðila eru tvisvar til þrisvar á ári og oftar á reynslutíma dagforeldris og ef upp koma athugasemdir og/eða kvartanir frá foreldrum.
Val á dagforeldri er á ábyrgð foreldra. Þá eru foreldrar í daglegu sambandi við dagforeldri og ætti því að vera í góðri aðstöðu til að fylgjast vel með starfinu. Foreldrar eru hvattir til að ræða við dagforeldri barnsins ef umönnun eða aðbúnaði er ábótavant.
Aðilar með leyfi til daggæslu í Norðurþingi.
Reglugerðir



