
Forstöðumaður: Alma Lilja Ævarsdóttir
Staðsetning: Árgata 12, 640 Húsavík
Sími: 464-1740
Setrið, geðræktarmiðstöð er batahvetjandi stuðningsúrræði fyrir einstaklinga innan Þingeyjarsýslu sem búa, eða hafa búið við geðraskanir, atvinnuleysi og/eða alvarleg veikindi með þeim afleiðingum að lífsgæði þeirra hafa skerst.
Markmið Setursins eru m.a. að efla sjálfstraust og ábyrgð til félagslegrar þátttöku, að auka færni til samskipta, að efla þátttöku í ýmiskonar iðju, að efla virkni og þátttöku í daglegu lífi, að efla trú á eigin áhrifamátt, að draga úr fordómum gegn geðröskunum, að draga úr neikvæðum áhrifum geðraskana á einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild, að fækka innlögnum á geðdeildir og að efla geðheilbrigði.
Setrið er samstarfsverkefni Félagsþjónustu Norðurþings, Félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Húsavíkurdeildar Rauða kross Íslands. Setrið hefur verið starfrækt frá október 2006.
Í Mývatnssveit er Sólsetrið sem opnaði formlega þann 29. mars 2009. Sólsetrið var sett á fót fyrir tilstuðlan notenda geðræktarmiðstöðvarinnar Setursins, sem búsettir eru í Mývatnssveit. Sólsetrið er því útibú frá Setrinu. Sveitarfélagið Skútustaðahreppur leggur til húsnæði fyrir starfsemina en faglegt starf og ráðgjöf er veitt frá Setrinu. Í boði er ráðgjöf, iðjuþjálfun og stuðningur við einstaklinga sem miðar að því að efla sjálfstraust þeirra og færni í daglegu lífi.
Sólsetrið er eins og Setrið, batahvetjandi stuðningsúrræði.



