Vinnuskóli Norðurþings er fyrir unglinga á aldrinum 14-16 ára. Markmið Vinnuskólans er að efla félagsleg tengsl og gagnkvæma virðingu ásamt því að kenna unglingum til verka og undirbúa þátttöku þeirra í atvinnulífinu. Skólinn er starfræktur frá byrjun júní til ágústloka.
Umsóknum má skila á eftirfarandi hátt:
-
Rafrænt á vef Norðurþings
-
Á einhverja af skrifstofum Norðurþings (Húsavík, Raufarhöfn eða Kópaskeri)
-
Á skrifstofu tómstunda- og æskulýðsfulltrúa Norðurþings í íþróttahöllinni á Húsavík
Verkefni Vinnuskólans snúa mest að fegrun og hreinsun sveitarfélagsins. Þau verkefni eru sláttur og hriðing grænna svæða, hreinsun blómabeða, málun leiktækja og götuhreinsun.
Yfirumsjón með skólanum hefur Jóhann Rúnar Pálsson, æskulýðsfulltrúi.
- Samkvæmt reglugerð um vinnu barna og unglinga nr. 426/1999 26. grein, mega sveitafélög ráða ungmenni 13 ára og eldri til starfa yfir sumartíma. Ungmennin mega einungis vinna létt verk og vinnutími er takmarkaður sbr. grein 27. Verkefni þau sem ungmennin mega vinna og þau verkfæri sem hver aldurshópur má nota eru útlistuð í viðaukum reglugerðarinnar. Vinnuskólanum er skylt að kynna foreldrum ráðningarkjör, þar með talið lengd vinnutíma sem og tíðni óhappa og slysa sem hugsanlega tengjast starfinu. Fyllsta öryggis þarf að gæta í vinnuskólum og leiðbeinendur þurfa að fá undirbúning um öryggismál áður en þeir hefja störf (gr. 26)
- Samkvæmt viðauka við þessa reglugerð sem er í samræmi við reglur Evrópusambandsins mega ungmenni undir 18 ára aldri ekki vinna með til dæmis vélknúnar trjáklippur, kjarrsagir, sláttuvélar og jarðtætara.
- 15 ára og eldri mega vinna með garðsláttuvélar undir leiðsögn leiðbeinanda ásamt því að slá með vélorfi í görðum og aðstoða á gæsluvöllum og í skólagörðum svo eitthvað sé nefnt.
- 13 og 14 ára mega hreinsa illgresi, gróðursetja, hreinsa gróðurbeð, raka eftir slátt og sinna annarri sambærilegri léttri garðvinnu. Þá mega þau vinna við blóm og grænmeti í gróðurhúsum, hreinsa, sópa og tína rusl, sinna málningarvinnu og fúavörn með umhverfisvænum efnum.
Vinnuskólinn sinnir vinnuuppeldi. Til þess að geta innt þetta verkefni sem best af hendi eru gerðar kröfur til hæfni flokkstjóra og þjálfun þeirra miðuð að því.
Á starfstíma vinnuskólans er stefnd að því að hver árgangur fái sérstaka fræðsludaga. Um er að ræða t.d. fræðslu um umhverfismál og endurvinnslu, fræðslu um atvinnumál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, safnafræðslu og kynningu á listaverkum og merkum byggingum í sveitarfélaginu, sögu sveitarfélagsins, forvarnarmál o.fl.



