Laun, reglur og kröfur

Laun ungmenna í vinnuskóla Norðurþings árið 2011  Fæðingarár  Tímakaup   Tímabil   Lengd tímabils     1997  kr. 386  11.-29. júlí   3 vikur    

Laun, reglur og kröfur

Laun ungmenna í vinnuskóla Norðurþings árið 2011

 Fæðingarár  Tímakaup   Tímabil   Lengd tímabils 
   1997  kr. 386  11.-29. júlí   3 vikur 
   1996  kr. 452  6. júní - 8. júlí   5 vikur 
   1995  kr. 580  6. júní - 29. júlí    8 vikur 

Árgangur 1995 þarf að skila inn skattkorti.

Skipulag, reglur og kröfur vinnuskólans

Skipulag starfsins:

Vinnuskólinn er rekinn af Norðurþingi og heyrir undir Tómstunda- og æskulýðssvið Norðurþings. Dagleg stjórn Vinnuskólans er í höndum flokksstjóra. Helstu verkefni Vinnuskólans varða snyrtingu og fegrun bæjarins og umhverfi hans. Unnið er alla virka daga vikunnar. Vinnutími er frá kl. 08:00 til kl. 11:45 og frá kl. 13:00 til 16:45. Deginum er skipt á hádegi þ.e. hver nemandi vinnur fjóra tíma á dag og er víxlað vikulega fyrir og eftir hádegi. 

Röðun í vinnuflokka:  

Vinnuskólinn lítur svo á að unglingar þurfi að venjast því að vinna með hverjum sem er. Þeim er því ekki raðað eftir vinahópum. Ekki er víst að þeir sem eru settir saman í hóp í upphafi verði saman allt sumarið. Margar ástæður geta orðið til þess að endurraða þurfi í hóp eða hópa.                                 

Helstu kröfur til nemenda vinnuskólans:

Gert er ráð fyrir því að unglingur sem sækir um vinnu í Vinnuskóla Norðurþings sé með umsókn sinni að lýsa yfir áhuga sínum á því að taka þátt í starfi skólans og vinna samviskusamlega þau verk sem honum eru falin. Unglingnum ber að sýna kurteisi í samskiptum við stjórnendur skólans, íbúa sveitarfélagsins og þá sem með honum vinna. Klæðnaður þarf að vera í samræmi við veður og vinnuaðstæður hverju sinni. Unglingar eru beðnir um að hafa með sér nesti til að neyta í kaffitímum. Tóbaksnotkun er alfarið bönnuð í Vinnuskólanum. Fari unglingur ekki að tilmælum flokksstjóra eða sætti sig ekki við þær starf- og vinnureglur sem gilda í Vinnuskólanum verður honum gefið tækifæri til að bæta sig. Beri það ekki árangur er hann sendur heim launalaust í lengri eða skemmri tíma.

Ofnæmi eða aðrir kvillar:

Vinnuskólinn reynir að mæta vandamálum vegna ofnæmis eða annarra sambærilegra kvilla. Til að hægt sé að taka tillit til slíkra beiðna þarf að fylgja vottorð sérfræðings.

 

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hauksdóttir yfirflokksstjóri 899-7975 og Jóhann Rúnar Pálsson tómstunda- og æskulýðsfulltrúi 899-0702

 

 

Valmynd

Póstlisti

headerheaderheaderheader