Umhverfismál

Til umhverfismála í Norðurþingi telst rekstur og umhirða opinna svæða innan þéttbyliskjarnanna á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn ásamt Skrúðgarðinum á

Umhverfismál

Til umhverfismála í Norðurþingi telst rekstur og umhirða opinna svæða innan þéttbyliskjarnanna á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn ásamt Skrúðgarðinum á Húsavík og blómareitnum á Kópaskeri. Það er garðyrkjustjóri sem hefur yfirumsjón með verklegum framkvæmdum á sviði umhverfismála hjá Norðurþingi.

Stór svæði á Húsavík og Kópaskeri sem eru tengd landgræðsluskógaverkefninu í samstarfi við Skógræktarfélag Íslands, eru skipulögð með göngustígum til útvistar auk þess sem minni svæði á t.d. Raufarhöfn, í Hrísateig og við Heiðabæ eru skipulögð sem minniháttar skógræktar- og útivistasvæði í rekstri sveitafélagsins. Í samstarfi við Landgræðslu ríkisins hefur sveitafélagið unnið að uppgræðslu  mela meðal annars á Reykjaheiði við Húsavík.

Garðyrkjustjóri sér um rekstur gróðurhúsa á Húsavík, þar sem ræktaðar eru helstu trjá- og runnategundir til skógræktar og gróðusetningar á opnum svæðum. 

Ekki er til nein formleg stefnuskrá varðandi umhverfismál.  Óformleg stefnuskrá umhverfismála í Norðurþingi mótast  t.a.m. af drögum og tillögum til nýs aðalskipulags,  samningum við Skógræktarfélag Íslands og Landgræðslu ríkisins auk stefnu garðyrkjustjóra um t.a.m. að lágmarka notkun af tilbúnum áburði og algjöru banni við notkun eiturefna á opnum svæðum á Húsavík.

Garðyrkjustjóri ásamt starfsfólki þjónustustöðva Norðurþings sinna daglegum verkefnum er tengjast umhverfismálum en þó hefur t.a.m. umhirðu Skrúðgarðsins á Húsavík verið sinnt af verktaka yfir sumartímann.  Flestar nýframkvæmdir eru boðnar út til verktaka.

Helsta verkefni innan opinna svæða eru grasslættir, plöntun sumarblóma og umhirðu beða og trjáplantna samt ruslatínslu.  Á hverju vori fer fram hið árlega hreinsunarátak, þar sem sveitafélagið í samstafi við ýmis félagssamtök stendur fyrir ruslahreinsun víða um sveitafélagið en þó aðallega innan þéttbýliskjarnanna.

Skrúðgarðinn á Húsavík liggur upp með Búðará að vestan. Hófust framkvæmdir við hann árið 1975 og  í dag sinnir hann mikilvægu hlutverki sem staður til afþreyingar og ánægju fyrir íbúa og gesti Húsavíkur.  Þar hefur verið unnið að því að byggja upp trjáplöntusafn og eru um 150 mismunandi trjátegundir að finna í garðinum.

Frekari upplýsingar varðandi skógrækt og landgræðslu má finna hér.

Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya