Veitur

Vatns- og hitaveitur Orkuveita Húsavíkur ehf. starfrækir vatns- og hitaveitur á Húsavík og í Reykjahverfi.  Orkuveitan er þjónustufyrirtæki sem er að

Veitur

Vatns- og hitaveitur

Orkuveita Húsavíkur ehf. starfrækir vatns- og hitaveitur á Húsavík og í Reykjahverfi.  Orkuveitan er þjónustufyrirtæki sem er að fullu í eigu sveitarfélagsins Norðurþings.

Skrifstofa Orkuveitunnar er í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, Ketilsbraut 9.

Framkvæmdastjóri er Guðrún Erla Jónsdóttir.

Auk vatns- og hitaveitu starfrækir Orkuveitan jarðvarmavirkjun að Hrísmóum. Heitt vatn er aðkeypt frá Hveravöllum en vatnsból er í landi Húsavíkur.

Gjaldskrá

Nánari upplýsingar um Orkuveituna er að finna á http://www.oh.is/

Neyðarsími vegna bilana vatns- og/eða hitaveitu er 4640909.

Norðurþing starfrækir vatnsveitur á Kópaskeri, Raufarhöfn og í Lundi og heyrir sú starfsemi undir framkvæmda- og þjónustunefnd.

Það eru þjónustumiðstöðvar sveitarfélagsins sem þjónusta vatnsveiturnar á hverjum stað.

Rafveitur

RARIK rekur dreifikerfi fyrir raforku í Norðurþingi en Norðurþing er eigandi og rekstraraðili götulýsingar í sveitarfélaginu.

RARIK

Bíldshöfða 9
110 Reykjavík
netfang: rarik@rarik.is
Sími: 528 9000
Opið skiptiborð 8:00 -16:00

Bilanavakt allan sólarhringinn á Norðurlandi: 528 9690

Norðurþing

Sími: 4646 100
Opið virka daga kl. 8:45 - 12:15 og 12:45 - 16:00

Fráveitur

Sveitarfélagið rekur fráveitur í Hrísateig, á Húsavík, Kópaskeri og Raufarhöfn.

Fráveiturnar eru í umsjá Framkvæmda- og þjónustunefndar og sjá þjónustustöðvar sveitarfélagsins um daglegan rekstur og viðhald.

Valmynd

Póstlisti

headerheaderheaderheader