Skákfélagið Goðinn var formlega stofnaður 15. mars 2005 og fyrsta stjórn félagsins
kjörin. Þá voru stofnfélagar 11. Félagssvæði skákfélagsins eru Þingeyjarsýslur og Húsavík.
Frá stofnun hefur félagið verið í örum vexti og skráðir félagar eru rúmlega 50 talsins. Flestir búa í
Þingeyjarsýslum en nokkrir félagsmanna eru búsettir á stór-Eyjafjarðarsvæðinu og þó nokkrir á
stór-Reykjavíkursvæðinu.
Goðinn stendur fyrir reglubundnum skákæfingum og skákmótum frá september til og með apríl ár hvert. Skákæfingarnar eru haldnar til skiptis á Húsavík og á Laugum í Þingeyjarsveit öll mánudagskvöld yfir vetrartímann. Skákmót félagsins eru haldin víðsvegar um Þingeyjarsýslur. Goðinn hefur sent skáksveit til keppni á Íslandsmóti skákfélaga undanfarin ár og árið 2011 sendi félagið þrjár skáksveitir til keppni í fyrsta sinn, alls 18 keppendur.
Félagið hefur staðið fyrir skákmótum fyrir börn og ungling á undanförnum árum og hafa þau verið vel sótt. Félagið hefur einnig staðið fyrir skákkennslu fyrir börn og unglinga undanfarin ár. Yfir vetrartímann er skákkennsla á vegum félagsins einu sinni í viku á Húsavík. Kennslunni er skipt í kennslu fyrir byrjendur og lengra komna. Kennt hefur verið í öðrum skólum í sýslunni yfir vetrartímann. Undir venjulegum kringumstæðum er lítil starfsemi á vegum félagsins yfir sumarmánuðina.
Stjórn félagsins
| Formaður | Hermann Aðalsteinsson | lyngbrekka@magnavik.is |
| Ritari | Sighvatur Karlsson | srhvati@simnet.is |
| Gjaldkeri | Sigurbjörn Ásmundsson | stong@visir.is |



