Fræðslu- og menningarnefnd hefur m.a. umsjón með menningar-, lista- og safnamálum. Fræðslu- og menningarfulltrúi er Huld Aðalbjarnardóttir.
Fjölbreytt menningarstarf er í boði í Norðurþingi. Fræðslu- og menningarnefnd úthlutar styrkjum til menningarstarfs í gegnum lista- og menningarsjóð Norðurþings.
Einnig hefur fræðslu- og menningarfulltrúi yfirumsjón með skipulagningu bæjarhátíða og annarra menningarviðburða í sveitarfélaginu.
Ýmis söfn eru í Norðurþingi. Sveitarfélagið kemur að rekstri nokkurra þeirra m.a. í gegnum aðild að Héraðsnefnd Þingeyinga.



