Sænskir dagar / Mærudagar
Bæjarhátíðin Mærudagar er haldin á hverju sumri á Húsavik og fer hún fram síðustu helgina í júlí. Í tengslum við Mærudaga er boðið uppá dagskrá Sænskra daga en þeir fara fram í sömu viku og eru nokkurs konar undanfari Mærudaganna.Hrútadagurinn á Raufarhöfn
Hinn árlegi Hrútadagur er haldinn í Faxahöllinni á Raufarhöfn um mánaðarmótin sept/okt. Þar eru til sölu kynbótahrútar frá bæjum úr Öxarfirði, Sléttu, Þistilfirði og Langanesi.
Menningar- og markaðsdagur í Öxarfirði
Fyrirtæki, félög og einstaklingar af svæðinu kynna starfsemi sína með ýmsu móti. Dagurinn er haldinn í íþróttahúsinu á Kópaskeri (Pakkhúsinu) fyrstu helgina í desember.
Sléttuganga
Gengið er frá Gjótnesi til Raufarhafnar aðra helgina í ágúst. Að kvöldi Sléttugöngunnar er afmæli félagsheimilisins Hnitbjarga fagnað með dansleik.
Bjart er yfir Raufarhöfn
Menningarhátíð á Raufarhöfn sem haldin er síðustu heilu vikuna í október.
Jökulsárhlaup
Hlaupið er í fallegu umhverfi þjóðgarðsins við Jökulsá á Fjöllum.
Tónlistarveisla Norðurþings
Sumartónleikar Norðurþings, eða Tónlistarveislan eins og hátíðin er gjarnan nefnd, er árlegur viðbuður sem er styrktur af menningar- og fræðslunefnd. Nefndin velur framkvæmdaraðila úr hópi umsækjenda til að sjá um framkvæmd tónleika þar sem áhersla er lögð á að ungt tónlistarfólk úr Norðurþingi og þeir sem reynslumeiri eru sameini krafta sína í metnaðarfullum viðburði á sviði söngs og tónlistar.



