Hrútadagurinn á Raufarhöfn er haldinn fyrsta laugardag í október ár hvert í Faxahöllinni á Raufarhöfn.
Það var hópur framtakssamra bænda í Þistilfirði, Sléttu og Öxarfirði sem ákváðu að safna þeim hrútum saman á einn stað sem bændum á þessu svæði þóttu söluhæfir. Þetta var gert m.a. til að auðvelda kaupendum valið, þ.e.a.s. að hafa hrútana alla á einum stað og geta borið þá saman. Faxahöllin á Raufarhöfn var ákjósanlegur staður, miðsvæðis á sölusvæðinu og góð aðstaða fyrir bæði menn og fé. En einnig er þetta gert til að koma saman, bændur af svæðinu og þeir sem eru lengra að komnir í kauphugleiðingum, ásamt öðrum sem eru áhugasamir um ræktun á sauðfé.
Fyrir utan uppboð á hrútum er ýmislegt annað skemmtilegt í boði. Handverksfólk á svæðinu, frá Þórshöfn að Húsavík, er með ullarvörur til sölu í höllinni auk þess sem keppt er um Íslandsmeistaratitil í kjötsúpugerð þar sem gestum gefst kostur á að gæða sér á rjúkandi heitri súpu keppenda.
Um kvöldið er svo haldið hagyrðingakvöld sem líkur svo með dansleik.



