Lista- og menningarsjóður Norðurþings var stofnaður af bæjarstjórn Húsavíkur á 40 ára afmæli Húsavíkurkaupstaðar. Hlutverk sjóðsins er að efla list- og menningarviðburði af ýmsu tagi í Norðurþingi og það er Menningar- og fræðslunefnd Norðurþings fer með stjórn sjóðsins.
Styrkveitingar fara fram tvisvar á ári, í mars og október og skal auglýst eftir styrkumsóknum í febrúar og september ár hvert.



