Norðurþing er stofnaðili að Menningarmiðstöð Þingeyinga (MMÞ). MMÞ er sjálfseignarstofnun en auk Norðurþings eru
stofnaðilar: Aðaldælahreppur, Langanesbyggð, Skútustaðahreppur, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Þingeyjarsveit.
Rekstur Menningarmiðstöðvarinnar lýtur ákvæðum safnalaga, þjóðminjalaga, laga um Þjóðskjalasafn Íslands og reglugerð um héraðsskjalasöfn. Einnig laga varðandi náttúrugripa- og listasöfn er snerta starfsemi stofnunarinnar, allt eftir því sem við á.
Á vegum Menningarmiðstöðvarinnar eru fjölmargar sýningar sem finna má nánari upplýsingar um á vef stofnunarinnar http://www.husmus.is/
Staðsetning: Stórigarður 17 640 Húsavík
Sími: 464 1860
Netfang: safnahus@husmus.is
Veffang: http://www.husmus.is/



