Söfn og sýningar

Grenjaðarstaður er glæsilegur torfbær í Aðaldal. Jörðin er landnámsjörð og fornt höfuðból, kirkjustaður og prestssetur, og þar var áður starfrækt pósthús.

Söfn og sýningar

Grenjaðarstaður er glæsilegur torfbær í Aðaldal. Jörðin er landnámsjörð og fornt höfuðból, kirkjustaður og prestssetur, og þar var áður starfrækt pósthús. Grenjaðarstaður þótti á sinni tíð mestur og reisulegastur allra bæja í héraðinu, enda um 775 m2 að stærð, einn stærsti torfbær landsins. Elsti hluti hans var reistur árið 1865 en búið var í bænum til 1949.

Nánari upplýsingar...

Byggðasafn N-Þingeyinga er mjög áhugavert safn sem er staðsett við Kópasker, sem er um 30 kílómetra frá Ásbyrgi, um mjög fallega sveit.  Aðal sérkenni safnsins er óvenjulega fjölbreytt safn handverks, t.d. útsaumur, vefnaður, brúðarbúningar frá 19 öld, verkfæri og útskurður. Á safninu er stórt ljósmyndasafn frá bæjum og íbúum héraðsins.

Nánari upplýsingar...

Hið íslenska reðasafn á Húsavík er væntanlega hið eina sinnar tegundar í heiminum, þar sem saman hefur verið safnað reðum af allri spendýrafánu eins lands.  Hið íslenska reðasafn telur nú 200 reði og reðurhluta af nálega öllum land- og sjávarspendýrum hinnar íslensku fánu. Í safninu eru 52 eintök af 16 tegundum hvala, 1 eintak af bjarndýri, 31 eintak af 7 tegundum sela og rostunga og 114 eintök af 20 tegundum landspendýra, eða alls 200 eintök af 45 dýrategundum. Við þetta bætist loforð fyrir fjórum eintökum af tegundinni Homo Sapiens og eruvottfest gjafabréf því til staðfestingar.

Nánari upplýsingar...

Í Safnahúsinu á Húsavík er glæsileg sjóminjasýning sem sýnir þróun útgerðar í Þingeyjarsýslum. Þar er einnig nútímaleg og framsækin sýning helguð Samvinnuhreyfingunni á Íslandi sem og athyglisverð náttúrugripa- og byggðasafnssýning sem sýnir samspil manns og náttúru í Þingeyjarsýslum á tímabilinu 1850 til 1950.  Í Safnahúsinu er einnig listasalur og rými fyrir ljósmyndasýningar og aðrar styttri sýningar.

Nánari upplýsingar...

Hvalasafnið á Húsavík er fræðslustaður um hvali og lífríki sjávar. Safnið var stofnað árið 1997 og hefur verið sjálfseignarstofnun síðan árið 2004. Aðalmarkmið safnsins er að miðla fræðslu og upplýsingum um hvali og lífríki þeirra á lifandi og áhugaverðan hátt. Safnið tengir fræðslu um dýrin við hvalaskoðunarferðir á Skjálfandaflóa og styrkir upplifun ferðamanna sem heimsækja Húsavík.

er fræðslustaður um hvali og lífríki sjávar. Safnið var stofnað árið 1997 og hefur verið sjálfseignarstofnun síðan árið 2004. Aðalmarkmið safnsins er að miðla fræðslu og upplýsingum um hvali og lífríki þeirra á lifandi og áhugaverðan hátt. Safnið tengir fræðslu um dýrin við hvalaskoðunarferðir á Skjálfandaflóa og styrkir upplifun ferðamanna sem heimsækja Húsavík.

Nánari upplýsingar...

 

Póstlisti

headerheaderheaderheader
Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya