![]()
Álaborg
Í Danmörku heitir vinabær okkar Álaborg. Álaborg er iðnaðar- og háskólaborg og er íbúafjöldi um 123.000. Samskipti hafa
verið töluverð og eiga margir Húsvíkingar góðar minningar af dvöl sinni í Álaborg og þátttöku á
Álaborgarleikum.
Veffang Álaborgar: http://www.aalborg.dk/
![]()
Fredrikstad
Norski vinabærinn okkar heitir Fredrikstad. Bærinn er staðsettur á suðausturströnd Noregs með um 73.000 íbúa. Aðal iðnaðurinn
í bænum er ýmis konar efnaiðnaður og annar léttur iðnaður. Á árum áður var þar mikill
trjásögunar- og trjáútflutningsiðnaður og síðar skipasmíðaiðnaður.
Norðmenn hafa alltaf verið duglegir við að senda okkur upplýsingar um staðinn og m.a. hafa húsvískar handboltastúlkur dvalið og tekið
þátt í keppni í Fredrikstad.
Veffang Fredrikstad: http://www.fredrikstad.kommune.no/
![]()
Karlskoga
Í Svíþjóð er það sjálfur Nobelsbærinn Karlskoga sem er okkar vinabær. Þar búa um 27.000 manns. Bærinn var
formlega stofnaður árið 1586 og á 17. öld hófst mikil járnvinnsla á svæðinu sem bærinn er þekktur fyrir.
Veffang Karlskoga: http://www.karlskoga.se/
![]()
Riihimaki
Riihimaki er finnski vinabærinn okkar. Hann er staðsettur í suðurhluta landsins um 69 km norðan við Helsinki. Í Riihimaki búa tæplega
29.000 manns. Bærinn byggðist upp í kringum Riihimaki lestarstöðina sem var fyrsta stöðin sem byggð var á lestarteinunum sem lágu til
Sánkti Pétursborgar í Rússlandi og var opnuð árið 1869.
Fjölmargir Húsvíkingar hafa ferðast til þessa vinabæjar okkar. Ungir íþróttamenn hafa tekið þátt í mótum
þar, m.a. knattspyrnumenn. Þá hafa tónlistarmenn og kórar heimsótt Riihimaki.
Veffang Riihimaki: http://www.riihimaki.fi/
![]()
Qeqertarsuaq
Á Grænlandi heitir vinabærinn Qeqertarsuaq eða Godhavn. Bærinn er á Diskó eyju við vesturströndina og liggur rétt norðan við
69 breiddargráðu. Þar búa um 900 manns. Þó nokkur ferðamannaiðnaður er í bænum og þar er einn af fáum stöðum
á Grænlandi þar sem hægt er að fara í hundasleðaferðir í miðnætursólinni á sumrin.
Veffang Qeqertarsuaq: http://www.qeqertarsuaq.gl/

Eastport
Fyrir nokkrum árum var svo undirritaður samningur milli Húsavíkur og Eastport í Maine fylki í Bandaríkjunum um vinabæjasamskipti. Þau
samskipti hafa þó verið frekar stopul. Í Eastport búa um 2000 manns.
Veffang Eastport: http://www.eastport-me.gov/

Fuglafjörður
Í Færeyjum er Fuglafjörður vinabær Norðurþings. Bærinn er staðsettur á Eysturey á austurströnd Færeyja og eru
fiskveiðar og fiskimjöls framleiðsla aðal undirstaða atvinnu í bænum. Hann hefur á seinni árum orðið frægastur fyrir
glæsilega menningarmiðstöð sem staðsett er í miðbænum.Vinabæjarsamningur var undirritaður í Færeyjum af fulltrúum
Fuglafjarðar og Norðurþings árið 2009. Í Fuglafirði búa í kringum 1500 manns.
Veffang Fuglafjarðar: http://www.fuglafjordur.fo/



