Grunnskólinn á Raufarhöfn

Skólastjóri: Frida Elisabeth Jörgensen Sími: 464-9870 Netfang: frida@nordurthing.is  Veffang: http://grunnskoli.raufarhofn.is/ Staðsetning: við

Grunnskólinn á Raufarhöfn

Skólastjóri: Frida Elisabeth Jörgensen

Sími: 464-9870
Netfang: frida@nordurthing.is 
Veffang: http://grunnskoli.raufarhofn.is/
Staðsetning: við Skólabraut, 675 Raufarhöfn

Skólabygging hins samrekna Grunn- og leikskóla Raufarhafnar stendur við Skólabraut en á skólalóðinni er einnig að finna íþróttahús staðarins og sundlaug, sem er innilaug.

Haustið 2009 voru grunnskólinn og leikskólinn sameinaðir í eina samrekna stofnun. Á leikskólanum er um 10 nemendur og í grunnskólanum eru um 30 nemendur í 1. – 10. bekk. Samkennsla er á öllum stigum og einkennist starfið af sveigjanleika og samvinnu með vellíðan nemenda og starfsfólks að leiðarljósi. Við erum í innleiðingarferli Uppbyggingarstefnunnar og komum til með að flagga Grænfánanum innan fárra mánaða. Lögð er áhersla á heilsusamlegan lífsstíl og markvissa íþróttaiðkun nemenda og sækja þeir því einn 60 mínútna íþróttatíma fjóra daga vikunnar.

Skóladagurinn hefst klukkan 8:10 og skólamötuneytið býður upp á máltíð í hádeginu alla virka daga, nema föstudaga. Enginn skólabíll starfar fyrir skólann þar sem allir nemendur búa í þorpinu og koma því gangandi í skólann.

Skólinn er á tveimur hæðum, ásamt kjallara undir austurenda hússins. Í kjallaranum er skólamötuneytið og heimilisfræðiaðstaða, þvottaherbergi, lítil snyrting og geymsla. Á neðri hæð hússins er leikskólinn Krílabær og heimastofur yngri nemenda grunnskólans. Þar er einnig að finna aðstöðu tónlistarskólans, samverukrók, taflborð, fatahengi og salerni nemenda. Á efri hæð hússins eru heimastofur eldri nemenda, listgreinastofa, lesver, samverukrókur, taflborð, borðtennisborð, tölvustofa og kennaraálma sem skiptist í kaffistofu, skrifstofu skólastjóra, ræstikompu, salerni starfsfólks, bókakompu, fatahengi og vinnuherbergi kennara. Í kjallara íþróttahússins er smíðastofa skólans.

Tónlistarskólinn á Raufarhöfn sinnir tónlistarkennslu eftir að kennslu lýkur í grunnskólanum alla virka daga.

Ungmennafélagið Austri býður upp á ýmiskonar æfingar, s.s. frjálsíþróttir og fótbolta, a.m.k. þrjá daga vikunnar.

Íþróttahúsið og sundlaugin er opin alla daga nema þriðjudaga og fimmtudaga (þá eru æfingar) og frítt er í íþróttasalinn og sundlaugina fyrir öll börn í Norðurþingi.

Valmynd

Póstlisti

headerheaderheaderheader