Skólastjóri:Guðrún Sigríður Kristjánsdóttir
Staðgengill skólastjóra: Hrund Ásgeirsdóttir
Deildarstjóri Krílakots á Kópaskeri: Aðalbjörg Signý Sigurvaldadóttir
Deildarstjóri Krílakots í Lundi: Elisabeth Hauge
Sími: 465-2247
Fax: 465-2249
Netfang: lundur@kopasker.is
Veffang: oxarfjardarskoli.nordurthing.is
Staðsetning: Lundur 671 Kópasker
Leikskólinn Krílakot Kópaskeri: Akurgerði 4 670 Kópaskeri
Öxarfjarðarskóli er samrekinn grunn- og leikskóli fyrir skólasamfélagið sem nær frá Kelduhverfi til Kópaskers. Tvær leikskóladeildir starfa innan skólans, önnur er staðsett á Kópaskeri en hin í Lundi þar sem grunnskólinn er til húsa.
Nemendur við Öxarfjarðarskóla eru nú 61, þar af 18 leikskólabörn í báðum deildum. Skóladagurinn í Lundi hefst kl. 8:20 og boðið er upp á lengda viðveru, þ.e. þrisvar í viku mánudaga - fimmtudaga stendur nemendum til boða að fá heimanámsaðstoð og sinna tómstundum á fjölbreyttum námskeiðum. Skólabílar aka börnunum í skólann og fara þeir frá Fjöllum og Kópaskeri kl. 7:45 á morgnana.
Leikskólinn Krílakot á Kópaskeri var stofnaður árið 1985. Í fyrstu var hann rekinn af foreldrum en um 1990 tók sveitarfélagið við rekstri hans. Leikskólinn í Lundi var stofnaður 1993. Deildirnar voru sameinaður undir eina stjórn árið 2003.
Leikskólinn á Kópaskeri er rekinn á heilsársgrunni og er opinn frá 8.00 til 16.00 alla virka daga. Börnin fá heitan mat í hádeginu frá Stórumörk þar sem félags- og þjónustumiðstöð eldri borgara starfar.
Leikskólinn sem stofnaður var í Lundi árið 1993 starfar eftir kenningum bandaríska heimspekingsins og uppeldisfræðingsins, John Dewey og kenningum sovéska sálfræðingsins Lev S. Vygotsky. Starfsemi leikskólans helst í hendur við starfstíma grunnskóla, þ.e. frá miðjum ágúst til loka maí. Helstu markmið leikskólans eru; að auka hreyfingu barna og að þau læri að njóta hennar, að börnin kynnist og læri að virða náttúruna og umhverfi sitt, og njóta hvorutveggja og að efla félagsfærni barnanna.



