Skólastjóri: Árni Sigurbjarnarson
Símanúmer: 464 7290
Netfang: ritari@tonhus.is
Veffang: http://www.tonhus.is/
Staðsetning: Skólagarði 1, Húsavík
Opnunartími skrifstofu:
9:00 – 13:00 alla virka daga.
Norðurþing rekur Tónlistarskóla Húsavíkur sem hefur mannaðar starfsstöðvar á Húsavík, Kópaskeri/Lundi og á Raufarhöfn. Tónlistarskólinn þjónar öllum sem sækjast eftir tónlistarnámi, hvort sem það eru börn á skólaaldri eða fullorðnir. Boðið er upp á fjölbreytt hljóðfæranám, söngkennslu auk skólahljómsveita og kóra.
Árið 2010 sameinuðust Tónlistarskóli Húsavíkur, Tónlistarskóli Öxarfjarðarhéraðs og Tónlistarskóli Raufarhafnar undir nafni Tónlistarskóla Húsavíkur.



