Vinna við nýtt aðalskipulag fyrir Norðurþing hófst í apríl 2008. Í aðalskipulaginu er sett fram framtíðarsýn fyrir sveitarfélagið í heild, sem nær til allra þeirra sviða sem sveitarfélagið starfar á, þ.e. umhverfis-, atvinnu-, félags- og menningarmála.
Aðalskipulag Norðurþings 2011 - 2030 var undirritað til staðfestingar af umhverfisráðherra 22. desember 2010.
Ráðgjafafyrirtækið Alta hefur haft umsjón með skipulagsvinnunni í samráði við skipulags- og byggingarnefnd. Verkefnisstjóri er Matthildur Kr. Elmarsdóttir skipulagsfræðingur



