Jökulsá á Fjöllum er talin 206 km löng frá upptökum sínum í Vatnajökli þar til hún byltir sér fram, kolmórauð, út í Öxarfjöðinn. Á þessari löngu leið hefur hún skilið eftir sig tilkomumikil ummerki sem sveitarfélagið Norðurþing fer ekki varhluta af. Hið efra flæðir hún víða breið yfir sandmikil svæði öræfanna, en er halla tekur undan fer hún að kljást við berggrunn landsins – árfarvegurinn þrengist og straumþunginn eykst að sama skapi. Eitthvað verður undan að láta og hið harða berg brotnar og molnar, gljúfrin dýpka og flúðir og tilkomumiklir fossar verða til; Selfoss og Hafragilsfoss að ógleymdum aflmesta fossi Evrópu, Dettifossi, sem steypist um hálft hundrað metra niður í þröngt gljúfrið. Á einstaka stöðum þar sem áin hefur brotið sér leið í gegnum fornar eldstöðvar hafa nokkrir bergtappar, eins og við Hljóðakletta, staðið af sér ósköpin en bera vitni um tröllsleg átök Jöklu er hún fór þar um forðum daga.
Flýtilyklar
Stjórnsýsla
Þjónusta
Norðurþing fyrir
Norðurþing og ...
| Börn og ungmenni | |
| Fjölskyldan | |
| Aldraðir | |
| Fatlaðir | |
Vefir Norðurþings
Hvað viltu gera?
Vefmyndavél linkur
27.feb.12 | 20:00
Skipulag miðhafnarsvæðis - almennur kynningarfundur
Skipulags- og byggingarnefnd og framkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings boða til almenns kynningarfundar um skipulagsmál á miðhafnarsvæði Húsavíkur. Fundurinn verður haldinn í fundasal Hvalasafnsins á Húsavík, mánudaginn 27. febrúar n.k. kl. 20:00.
Lesa meira21.02.12 |
| Hlekkir | Dagsetning | Pdf útgáfur | |
|---|---|---|---|
| Framkvæmda- og hafnanefnd | 17.02.2012 | ![]() |
|
| Bæjarráð Norðurþings | 16.02.2012 | ![]() |
|
| Skipulags- og byggingarnefnd | 15.02.2012 | ![]() |
|
| Fræðslu og menningarnefnd | 14.02.2012 | ![]() |
21.feb.12 | 13:22
Skeglan 8. tbl. 3. árg. - Fréttabréf
Fréttabréfið Skeglan: 8. tbl. 3. árgangur - miðvikudagur 22. febrúar
Lesa meira
31.01.12 |
