Forsíða

Opinber vefur sveitarfélagsins Norðurþings

Húsavík

Húsavík

Húsavík er fjölmennasti byggðarkjarninn í Norðurþingi, en þar búa rúmlega 2.200 manns.  Byggðin stendur við austanverðan Skjálfanda og eru aðalatvinnuvegir; sjósókn, fiskverkun, ýmis opinber þjónusta, margskonar þjónustuiðnaður, landbúnaður og þjónusta við ferðamenn. 

Hvalaskoðunarferðir frá Húsavík eru löngu þekktar hérlendis sem og víðast annars staðar í heiminum og kemur fjöldi íslenskra og erlendra ferðamanna til Húsavíkur gagngert til að skoða hvali. Vinsældir þessara skoðunarferða hefur orðið til þess, að bærinn er nú kallaður: „Hvalahöfuðborg heimsins”.

Stutt er í eina af þekktustu laxveiðiám landsins, Laxá í Aðaldal, en einnig býðst veiði í vötnum og öðrum ám í nágrenninu. Fjölmargir áhugaverðir staðir eru í nágrenni Húsavíkur og má t.d. nefna Tjörnes, þar finna má skeljar í berglögum vel fyrir ofan sjávarmál. Skammt er til Mývatns, Kelduhverfis, Jökulsárgljúfra og annnarra áhugaverðra staða frá Húsavík.

Lesa meira
Kópaskersviti

Kópasker

Þorpið Kópasker stendur á vesturströnd Melrakkasléttu og er eini þéttbýliskjarninn í Öxarfirði.  Þorpið fór að byggjast eftir 1910 og byggir tilvist sína að mestu leiti á þjónustu við landbúnaðinn í nágrannsveitunum. Íbúar þar eru um 120 talsins.

Þorpið Kópasker sækir nafn sitt til skers er fyrrum gekk út í sjóinn og núverandi hafnargarður stendur á.  Fyrsta íbúðarhúsið á Kópaskeri, Bakka, reisti Árni Ingimundarson frá Brekku árið 1912. Húsið brann um áramótin 1988-1989, en þar má sjá minningarskjöld um húsið. Bakkafjölskyldan var stór og setti svip sinn á þorpið.

Lesa meira
Frá Raufarhöfn

Raufarhöfn

Raufarhöfn er sjávarþorp sem stendur á austurströnd Melrakkasléttu og er það nyrsti byggðarkjarni landsins.  Aðalatvinnuvegur þorpsins er sjávarútvegur og er íbúafjöldinn um 200 manns.

Náttúruleg höfn Raufarhafnar er varin klettahöfða, Höfðanum er teygir sig austur í hafið, svo gott sem út í Íshafið sjálft. Framundan Höfðanum, stendur áberandi stakur klettahöfði; Hólminn og skilur sund þeirra á milli. Handan hafnarinnar er þessi mynd greinileg og eftir raufinni, sem aðskilur Höfðann og Hólmann, dregur jörðin og staðurinn nafn sitt.

Lesa meira
Úr Reykjahverfi

Reykjahverfi

Reykjahverfi er syðsti hluti sveitarfélagsins Norðurþing og liggur austan Hvammsheiðar og nær frá Skjálfanda suður að Kringluvatni. Það var áður sjálfstæður hreppur en sameinaðist Húsavík 2002 og tilheyrir nú Norðurþingi. Svonefndur Kísilvegur liggur frá þjóðvegi 85 um Reykjahverfi, yfir Hólasand og upp í Mývatnssveit.

Reykjahverfi er kennt við jörðina Reyki en í landi hennar er að finna mikinn jarðhita. Þaðan er leitt vatn til hitaveitu á Húsavík. Á Hveravöllum er nú einhver mesta gróðurhúsarækt landsins, en þar hefur jarðhitinn verið nýttur til ylræktar allt frá 1904. 

Lesa meira
Frá Lóni í Kelduhverfi

Kelduhverfi

Kelduhverfi liggur inn af botni Öxarfjarðar á Norðausturlandi.  Næst sjónum eru víðáttumikilir "sandar" (Vestursandur) sem eru nú að mestu grónir.  Þetta eru óshólmar Jökulsár á Fjöllum, mýrlent land, víða kjarri vaxið, með sjávarlónum, stöðuvötnum og ám.  Síðan tekur við gamalgróið hraun og er byggðin nú öll á þessum forna hraunjaðri, enda liggur þjóðvegurinn þar. Landið hækkar síðan smátt og smátt til suðurs, vel gróin heiðarlönd, sums staðar með verulegum skógarleifum, sem ná um 15 km upp frá byggðinni.  Lengst inn til landsins austanvert eru auðnir og melar enda landið komið í meira en 500 m hæð frá sjó.

Lesa meira
Húsavíkurhöfn

Húsavík

Húsavík er fjölmennasti byggðarkjarninn í Norðurþingi, en þar búa rúmlega 2.200 manns.  Byggðin stendur við austanverðan Skjálfanda og eru aðalatvinnuvegir; sjósókn, fiskverkun, ýmis opinber þjónusta, margskonar þjónustuiðnaður, landbúnaður og þjónusta við ferðamenn. 

Hvalaskoðunarferðir frá Húsavík eru löngu þekktar hérlendis sem og víðast annars staðar í heiminum og kemur fjöldi íslenskra og erlendra ferðamanna til Húsavíkur gagngert til að skoða hvali. Vinsældir þessara skoðunarferða hefur orðið til þess, að bærinn er nú kallaður: „Hvalahöfuðborg heimsins”.

Stutt er í eina af þekktustu laxveiðiám landsins, Laxá í Aðaldal, en einnig býðst veiði í vötnum og öðrum ám í nágrenninu. Fjölmargir áhugaverðir staðir eru í nágrenni Húsavíkur og má t.d. nefna Tjörnes, þar finna má skeljar í berglögum vel fyrir ofan sjávarmál. Skammt er til Mývatns, Kelduhverfis, Jökulsárgljúfra og annnarra áhugaverðra staða frá Húsavík.

Lesa meira
Dettifoss

Dettifoss

Jökulsá á Fjöllum er talin 206 km löng frá upptökum sínum í Vatnajökli þar til hún byltir sér fram, kolmórauð, út í Öxarfjöðinn. Á þessari löngu leið hefur hún skilið eftir sig tilkomumikil ummerki sem sveitarfélagið Norðurþing fer ekki varhluta af. Hið efra flæðir hún víða breið yfir sandmikil svæði öræfanna, en er halla tekur undan fer hún að kljást við berggrunn landsins – árfarvegurinn þrengist og straumþunginn eykst að sama skapi. Eitthvað verður undan að láta og hið harða berg brotnar og molnar, gljúfrin dýpka og flúðir og tilkomumiklir fossar verða til; Selfoss og Hafragilsfoss að ógleymdum aflmesta fossi Evrópu, Dettifossi, sem steypist um hálft hundrað metra niður í þröngt gljúfrið. Á einstaka stöðum þar sem áin hefur brotið sér leið í gegnum fornar eldstöðvar hafa nokkrir bergtappar, eins og við Hljóðakletta, staðið af sér ósköpin en bera vitni um tröllsleg átök Jöklu er hún fór þar um forðum daga.

Lesa meira

Fuglalíf

Fjölskrúðugt fuglalíf er helsta einkenni í fánu Norðurþings. Ástæður þess er fjölbreytileg búsvæði fyrir fugla. Innan sveitarfélagsins eru afar lífrík votlendissvæði þar sem finna má fuglategundir sem eru fátíðar utan Þingeyjarsýslna. Þar má nefna fjölda andategunda sem verpir víða í Öxarfirði og við Víkingavatn í Kelduhverfi.  Laxá rennur að hluta til innan sveitarfélagsins en hún er skráð sem RAMSAR-svæði en það eru votlendissvæði sem eru talin hafa alþjóðlegt mikilvægi.

Þá er einnig að finna mikið af sjófuglum við ströndina og er Rauðinúpur mesta fuglabjargið en þar er m.a. að finna eitt af nokkrum súluvörpum landsins. Þar er einnig að finna svartfugla á við langvíu (Uria aalge), stuttnefju (Uria lomvia), álku (Alca torda) og teistu (Cepphus grylle).  Í Lundey á Skjálfanda og í Mánáreyjum eru stórar lundabyggðir og meðfram allri stönd Norðurþings er að finna mikinn fjölda máfa.

Lesa meira

Gróðurfar

Gróðurfar í sveitarfélaginu er fjölbreytt enda spannar það stórt svæði. Almennt má segja að á  láglendi sé gras- og votlendi áberandi en síðan taki mólendi við. Eftir því sem ofar dregur verður mólendið rýrara og uppblásturssvæði verða áberandi.
Lesa meira

Bókun bæjarstjórnar vegna tillagna til þingsályktunar um samgögnuáætlun


Bæjarstjórn Norðurþings lagði fram eftirfarandi bókun vegna afgreiðslu á tillögum til þingsályktunar um fjögurra og tólf ára samgönguáætlun, 392. mál og 393 mál sem tekið var fyrir á 34. fundi bæjarráðs.

Lesa meira

Greiningarsýning á ljósmyndum á Byggðasafni Norður-Þingeyinga

Greiningarsýning á ljósmyndum á Byggðasafni Norður-Þingeyinga sunnudaginn 5. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar  kl. 14-18 og mánudaginn 6. febrúar  kl. 10-18 verða til sýnis fjölmargar ljósmyndir sem Þorsteinn Jósepsson tók í Norður-Þingeyjarsýslu um miðja 20. öld.

Lesa meira

Skráning á póstlista

Vinsamlegast fyllið út eftirfarandi eyðublað


captcha

Húsavíkurhöfn

Póstlisti

Fundargátt Starfsmenn Hafa Samband
Stefna Hugbúnaðarhús - Moya