Ráðgjafi í málefnum barna og fjölskyldna
Félagsþjónusta Norðurþings auglýsir eftir ráðgjafa í málefnum barna og fjölskyldna. Um er að ræða 100% stöðu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september 2026.
Helstu verkefni starfsins felast í málstjórn mála, bæði í samþættri þjónustu í þágu farsældar barna og barna með langvarandi stuðningsþarfir. Þetta felur í sér skipulag og samræmingu þjónustu, samráð og fagleg samskipti við foreldra og aðra viðeigandi aðila, auk virkrar teymisvinnu til að tryggja samfellu og gæði þjónustunnar.
Starfað er m.a. samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018 og lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis-, menntavísinda eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af félagsþjónustu æskileg
- Hæfni til að starfa í teymi og hugsa í lausnum
- Góðir samskiptahæfileikar
- Góð tölvukunnátta
- Þekking á OneCRM er kostur
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð íslenskukunnátta og hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Gerð er krafa um bílpróf og hreint sakavottorð
Laun eru skv. kjarasamningi Sambands Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Allt áhugasamt fólk er hvatt til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Tinna Ósk Óskarsdóttir, félagsmálastjóri, fyrirspurnir skulu sendar á netfangið tinna@nordurthing.is
Starfsferlisskrá og kynningarbréf sem greinir frá ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni í starfi skulu fylgja umsókninni.
Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2026
Sótt er um starfið hér í gegnum 50skills: Ráðgjafi í málefnum barna og fjölskyldna - 50skills