Orkugangan
Orkugangan, 60 km skíðaganga frá Mývatnssveit að Húsavík er árlegur viðburður í mars eða apríl.
Auk 60 km göngu er boðið upp á styttri vegalengdir, Buch skíðagönguna, 25 km, 10 km og 1 km.
Allar vegalengdir eru gengnar með hefðbundinni aðferð.
Rásmark Orkugöngunnar (60 km) er við Kröflu, rásmark 25 km er við Þeistareyki, rásmark 10 km suðaustan við Höskuldsvatn og 1 km gangan er gengin á svæði gönguskíðafólks á Reykjaheiði.
Orkugangan gefur stig til Íslandsgöngu Skíðasambandsins